Fréttatíminn


Fréttatíminn - 06.02.2015, Qupperneq 30

Fréttatíminn - 06.02.2015, Qupperneq 30
É g opnaði í félagi við vini mína, þau Bjarna Gauk Sigurðsson og Elísabetu Jónsdóttur, leiguíbúðir við Frakka- stíginn fyrir ferðamenn sem við köllum Mengi-Ap- artments. Hugmyndin þar er að bjóða gestum okkar upp hágæða gistingu og upplifun sem tengir saman lista- og menningarlíf Reykjavíkur á meðan á dvöl þeirra stendur og hafa viðtökurnar verið framar vonum. Í kjölfarið fengum við þá hugmynd að bæta íslenskri sveit og náttúru við það sem við höfum upp á að bjóða fyrir ferðamenn- ina. Gaukur og Beta eiga gamalgróinn sveitabæ á dýrðlegum stað í Biskups- tungunum sem heitir Kjarnholt. Á árum áður var þar rekinn sumardvalar- staður fyrir ungmenni og síðar almennt gistihús en síðastliðin ár hefur sú starfsemi ekki verið í hús- inu. Nú ætlum við að bjóða á ný upp á gistingu þar en með okkar áherslum og stefnum við að því að opna í byrjum maí.“ segir Jón Þór. Kjarnholt er ofarlega í Biskupstungum, í grennd við Drumboddsstaði, og frá húsinu er útsýni yfir Geysissvæðið, Langjökul og fjallgarðinn þar í kring. „Þetta er tignarlegur gam- all sveitabær og við verðum með 10 svefnherbergi, 8 tveggja manna og tvö fjöl- skylduherbergi sem rúma 4 manna fjölskyldur,“ segir Jón Þór. „Við stefnum á að opna 1. maí undir nafninu Mengi-Kjarnholt.“ Jón Þór hefur fengist við ótrúlegustu hluti í gegnum tíðina og það er eins og ekkert sé honum óviðkom- andi. Hann ætlar sjálfur að standa vaktina í allt sumar á hótelinu. „Ég ætla að búa þarna eins og fínn maður fram í september,“ segir Jón Þór. „Ég er mjög spenntur fyrir því,“ segir hann og glottir. „Ég er svo mikill sveitamaður í mér. Mér líður mjög vel þegar ég er á landsbyggðinni. Ég er mikið á Ísafirði þar sem mér líður mjög vel. Einnig á Snæfellsnesi þaðan sem ég á ættir að rekja og mesta áskorunin með þetta gistiheimili er að vera á stað sem ég þekki ekki,“ segir Jón Þór. „Ég veit ekki hvað bæirnir heita í kring og næsta mál á dagskrá er að heimsækja þá og kynn- ast. Hitta alla grænmetis- bændurna sem ég ætla að versla við og þess háttar.“ – fyrst og fre mst ódýr! 399 kr.pk. Verð áður 699 kr. pk. Krónu Gouda ostur sneiddur, 500 g 42%afsláttur Alltaf til í eitthvað nýtt Athafnamaðurinn Jón Þór Þorleifsson tekur að sér ólík og mörg verkefni á hverju ári. Hann hefur framleitt auglýsingar, farið með hljómsveitir í tónleikaferðalag á báti, haldið utan um útgáfu með Mugison, sýnt útlendingum hvar þeir eiga að borða, haldið utan um tónlistarhátíðina Aldrei fór ég suður, og í sumar ætlar hann að reka hótel í Biskupstungunum. Hann er alltaf með mörg járn í eldinum og dreymir um að fara hringinn í kringum landið í loftbelg. Jón Þór Þorleifsson ætlar að reka hótel í sumar. Ljósmynd/Hari. Frá Kjarnholti. Ljósmyndir/Auður Þórhallsdóttir. Auðvelt að gleðja útlendinga Á Mengi-Kjarnholti verður hægt að fá morgunmat og fyrirfram pantaða kvöldverði, en Jón ætlar ekki að hafa opinn veitingastað. „Gestir hótelsins geta pantað kvöldverði en það verður ekki opið fyrir gesti og gangandi,“ segir Jón. „Ég verð þarna með vinkonu mína með mér og við verðum á vaktinni allan sólar- hringinn. Þetta er bara vertíð,“ segir Jón og hann hlakkar greini- lega mikið til. „Mér finnst gaman að taka á móti útlendingum og það er mjög auðvelt að gleðja þá. Ég hef vanið mig á að sýna þeim sem mest í nærumhverfinu og þeim líður miklu betur með það, í stað þess að koma bara inn á hótel og vita ekkert hvert þeir eiga að fara,“ segir Jón Þór. Þú nýtur þín innan um fólk. „Já það er óhætt að segja það,“ segir Jón Þór. Loftbelgur draumurinn Jón Þór hefur tekið að sér hin ótrúlegustu verkefni og það virð- ist allt henta honum. Hann segir allar áskoranir vera spennandi. „Þegar maður er bara að vinna fyrir sjálfan sig þá gerir maður bara það sem manni dettur í hug,“ segir Jón Þór. „Ég er með Mengi- apartments sem fastan pól, en fyrir utan það getur maður leyft sér að gera allt milli himins og jarðar. Ég er alltaf með eitthvað framundan, einhverja áskorun. Það eru fullt af hugmyndum sem ég þarf að framkvæma, margar það sturlaðar að maður þarf smá tíma til þess að plana þær,“ segir Jón Þór og glottir. „Mig hafði lengi langað að sigla hringinn í kringum Ísland og ég var bara það heppinn að vinir mín- ir, sem eru tónlistarmenn, voru tilbúnir að fara með mér og Steini Pjé og félagar í Húna II til i að sigla með okkur,“ segir Jón sem hélt utan um verkefnið Áhöfnin á Húna. „Ég er með aðra hugmynd, sem ég er búinn að viðra við þau. Það er að fara hringinn í kringum landið á loftbelg,“ segir Jón. „Þau hlógu að mér þegar ég kom með hugmyndina að Húna, en þau þora það ekki aftur því þau vita að ég er til í allt.“ Mengi-Kjarnholt opnaði fyrir bókanir fyrir tveimur vikum og það eru strax bókanir að tínast inn. „Þetta er auðvitað alltaf erf- iðast fyrsta árið,“ segir Jón. „Svo við rennum svolítið blint í sjóinn hvernig þetta verður í sumar. En miðað við fyrstu viðbrögð hef ég ekki miklar áhyggjur. Eina sem ég á eftir er að æfa mig í þýsk- unni,“ segir Jón Þór Þorleifsson þúsundþjalasmiður. Hannes Friðbjarnarson hannes@frettatiminn.is Jón Þór Þorleifsson 40 ára. Helstu verkefni Rokkstjóri Aldrei fór ég suður. „Hægri hönd” Mugison. Verkefnastjóri Jólagesta Björgvins. Kyningarstjóri Verbúðar 11 Restaurant. Framleiðandi nokkur hundruð auglýsinga. Hótelstjóri á Mengi-Kjarnholti. 30 viðtal Helgin 6.-8. febrúar 2015
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.