Fréttatíminn


Fréttatíminn - 06.02.2015, Síða 32

Fréttatíminn - 06.02.2015, Síða 32
Í búðin okkar er í húsi sem stendur við afluktan garð fyr-ir ofan Bouledard de Clichy og neðan við rue Véron, götu sem liggur frá rue Lepic samhliða rue des Abbesses. Við getum geng- ið úr garðinum á þrjá vegu. Við notum útganginn út á boulevardinn sjaldan. Hann er á þeim kafla þar sem verslanir með hjálpartæki kyn- lífsins eru hvað flestar og þéttastar í borginni og það er ekki eins og þau tæki sé dagvara á okkar heim- ili. Hliðið út að boulevardinum er hlið okkar að París. Í gegnum það förum við þegar við ætlum okkur niður í metró á Blanche eða Pigalle. Handan þeirra stoppustöðva er heimsborgin. Hin garðhliðin hleypa okkur út í litla hverfið okkar, suðurhlíð Mont- martre. Það fyrra leiðir okkur út á rue Robert Planquette og þaðan út á rue Lepic og það síðara í gegnum tvö hús út á rue Véron og þaðan göngum við vanalega upp á rue des Abbesses. Og það er frá þessum tveimur götum sem mig langar að segja ykkur; rue Lepic og rue des Abbesses. Eða öllu heldur frá matnum sem þar er seldur. Sogkraftur borgarinnar Það má sjálfsagt endalaust karpa um hvort París sé fallegasta borg í heimi, sú merkasta, kraftmesta eða hvaðeina – en um það þarf ekki að deila að París er best lukkaða matardreifingarvél í heimi. Og að búa inn í slíkri vél gefur íbúunum mikil lífsgæði. París situr í naflanum á bestu landbúnaðarhéröðum Evrópu. Þau héröð eru ekki bara góð vegna þess að moldin er þar frjósöm heldur hefur nálægðin við stórborgina varðveitt þar hefðbundna búskapar- hætti og fjölbreytta matvinnslu. Öldum saman hafa kröfuharðir neytendur í París brýnt bændur til að framleiða eins góða osta og þeim er unnt, eins góða alifugla og slátur- dýr, korn, grænmeti og ávexti og þeim er mögulegt og hefðin hefur kennt þeim. En París dregur ekki aðeins til sín mat úr nærsveitum. Í Frakk- landi liggja allar leiðir til Parísar. Eftir þjóðvegum og járnbrautum eru flutt matvæli alls staðar að. Og ekki bara landbúnaðarvörur. Barr- inn, sem var veiddur í gærmorgun undan ströndum Bretagne, var kominn í fiskbúðina hérna upp á horni í eftirmiðdaginn. Og við borð- uðum hann í gærkvöldi með engifer og sítrónu. Borgin sogar ekki aðeins til sín aðföng sjávar og sveita eftir vegum og járnbrautum heldur teygir sig eftir þeim um allan heim. Við flug- vellina Orly og Charles de Gaulle eru risamarkaðir þar sem matur úr öllum deildum jarðar er seldur búðareigendum og veitingamönn- um. Þar sem sveitin nær inn í borgina En það er ekki bara þetta aðdráttar- afl sem hefur gert París að sigur- verki matvæladreifingar; heldur er borgin skipulögð í kringum þarfir munns og maga. Þrátt fyrir að Haussman barón hafi rústað gömlu París til að koma nýrri borg fyrir um miðja þarsíðustu öld, þá lét hann óhreyfðar flestar fornar leiðir bænda með varning sinn frá sveitunum og að mörkuðunum við borgarmiðju. Hann hafði vit á því. Matardreifingarkerfið er því í raun eldra en núverandi borg. Þrátt fyrir stórkarlalega endurskipulagningu Parísar var lífæðum hennar haldið óskertum, alla vega fram að okkar dögum. Þessir vegir úr sveitunum voru ekki aðeins leið til að koma vöru frá einum punkti að öðrum. Á þessum leiðum byggðust upp verslun og veitingasala eftir því sem borgin óx – og borgin óx í kringum þessar leiðir. Dæmi um svona slóð er rue des Petits Carreaux og rue Mon- torgueil sem varða síðasta spölinn frá sveitunum fyrir norðan og að markaðstorginu sem eitt sinn var; les Halles. Meðfram þessum götum raða sér enn veitingasalar og mat- búðir, sem selja allt það besta sem borgin dregur að sér. Þessar götur eru í raun matarmarkaðir. Menn byrjuðu að selja mat á les Halles um það leyti sem Sæmundur fróði lauk námi við Svarta skóla og hvarf heim til Íslands. Þetta var menningarfyrirbrigði eldra en Íslendingasögurnar. Eftir sem áður lokuðu borgaryfirvöld í París markaðnum 1971 vegna taprekstrar þá nokkur undanfarin ár. Þetta var á hátindi módernismans og niður- lægingartíma gamalla miðbæja; tímabil sem hafnaði hefðum og sögu en vildi hefja borgarlífið upp á nýtt í úthverfablokkum. Í stað les Halles-markaðarins var grafinn niður verslunar- og samgöngumið- stöð í vellina við kirkju heilags Eus- tace. Nú er verið að byggja ofan á þessa leiðu kringlu stórbyggingu með svífandi þaki sem á að rúma enn fleiri verslanir. Sagan kallar á að þar verði matarmarkaður á jarðhæðinni. Syndir stórmarkaða Þar sem matardreifing í París bygg- ir á rótgrónum venjum, sem borgin hefur síðan byggst í kringum, hafa stórmarkaðir ekki náð þar sömu fótfestu og víðast annars staðar. Það er því enn hægt að versla með gömlu lagi í París. Og í því felast mikil lífsgæði. Eyðileggingarmáttur stórmark- aðarins liggur ekki bara í dauðri auðn bílastæðanna allt um kring; heldur ekki síður, og í raun miklu fremur, í því hvernig stórmarkaður- inn mótar matvælaframleiðslu og -dreifingu að eigin þörfum og síðan matarvenjur okkar neytendanna. Og þar með skynjun og smekk og líka heilsu og lundarfar. Fyrsta synd stórmarkaðarins var að hann rauf aldagömul tengsl milli neytenda og kaupmanns. Þú sérð engan kaupmann í stórmarkaði. Einu samskiptin sem þú átt eru í gegnum einhliða upplýsingar á umbúðunum. Og eins og allir vita er reginmunur á áreiðanleika þess sem einhver segir við okkur og því sem einhver prentaði á umbúðir. Þið getið reynt þetta á ykkur sjálf- um. Ykkur er nánast ómögulegt að segja ósatt þegar þið horfist í augu við náungann, þið eigið eilítið auð- veldara með að ýkja ef þið sendið manneskjunni tölvupóst, aðeins auðveldara með að fegra hlutina ef þið skrifið eitthvað á Facebook ætl- að ótilgreindum en það er flestum Gamla leiðin er best París hefur tekist að mestu leyti að halda í fornar leiðir við framleiðslu, dreifingu og sölu á matvöru í gegnum litlar sérverslanir og sterk samskipti þeirra við neyt- endur annars vegar og bændur og smáframleið- endur hins vegar. Gunnar Smári Egilsson skrifar um mat og menningu frá Montmartre gunnarsmari@frettatiminn.is Framhald á næstu opnu 32 matartíminn Helgin 6.-8. febrúar 2015

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.