Fréttatíminn - 06.02.2015, Page 40
40 heimili Helgin 6.-8. febrúar 2015
V erkefnin eru misstór og af ýmsum toga og segir Elva að eina reglan sem hún
setji sér sé að hafa gaman af því
sem hún tekur sér fyrir hendur.
Aðspurð um áhuga sinn á föndri og
innanhúshönnun segir Elva: „Ég
hef alltaf haft áhuga á föndri og
dúlleríi og vil ávallt hafa fínt heima
hjá mér. Þegar ég var yngri var
ég alltaf að endurraða í herbergið
mitt. Ég veit samt ekki alveg hvað-
an þessi áhugi kemur, en líklega
frá ömmu og mömmu, en þær hafa
alltaf haft metnað fyrir að halda úti
fallegu heimili.“
Elva stofnaði bloggið fyrir
tveimur árum og segir að það hafi
svo hvatt hana áfram í að finna sér
fleiri verkefni. „Hér áður fyrr átti
ég það til að byrja á einhverju en
átti svo hálfkláraða hluti úti um allt
en bloggið hefur hjálpað mér að
klára verkin.“ Meðal verkefna sem
Elva hefur ráðist í er að gera upp
forláta símabekk og gefa komm-
óðu nýjan svip með því að mála
skúffurnar í ýmsum litatónum.
Auk þess hefur hún föndrað ýmis
konar skartgripi. Elva segir þó að
hlutir og rými tengt börnum sé í
uppáhaldi. „Það skemmtilegasta
sem ég hef gert er líklega að gera
upp herbergi fyrir einn tveggja ára.
Rýmið er lítið, einungis 5 fermetr-
ar, en það bauð upp á marga mögu-
leika.“ Rýmið sem um ræðir er í
Blogg sem ýtir undir
framkvæmdagleðina
Verkefni vikunnar er stór-
skemmtilegt blogg sem hjúkr-
unarfræðingurinn Elva Björk
Ragnarsdóttir heldur úti. Hún
er einstaklega framkvæmda-
glöð og á blogginu leyfir hún
fólki að fylgjast með sér og
deilir brasi sínu, eins og hún
orðar það sjálf, skref fyrir
skref.
Elva Björk Ragnarsdóttir heldur úti blogginu Verkefni vikunnar þar sem hún brasar ýmislegt sem tengist heimili og hönnun.
Ljósmynd/Hari
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is
Opið: Mán. - föst. kl. 09-18
Laugardaga kl. 11-15
innréttingar
danskar
í öll herbergi heimilisins
Fjölbreytt úrval aF hurðum,
Framhliðum, klæðningum og einingum,
geFa þér endalausa möguleika á
að setja saman þitt eigið rými.
sterkar og glæsilegar
raun lítið skot í íbúð, en ekki eigin-
legt herbergi. „Möguleikar til upp-
röðunar voru kannski ekki miklir,
en þetta var skemmtileg áskorun.
Ég reyndi að nýta veggrýmið sem
mest og svo málaði ég rúmið með
krítarmálningu,“ segir Elva.
Umferð um síðuna hefur aukist
jafnt og þétt og hefur Elva fengið
alls konar fyrirspurnir tengdar
blogginu. Nú stendur til að taka
bloggið í gegn og mun það opna
undir nýju léni þann 25. febrúar
næstkomandi. „Ég er æsispennt og
hlakka til að sjá hvert þetta ævin-
týri leiðir mig. Ég er með marga
drauma fyrir árið 2015,“ segir Elva.
Erla María Markúsdóttir
erlamaria@frettatiminn.is
„Ég vildi ekki hafa eitthvað þungt fyrir
ofan rúmið og því urðu þessar léttu
körfur fyrir valinu sem hillur,“ segir
Elva Björk. Ljósmynd/úr einkasafni
Skemmtileg og einföld leið til þess
að gera heimilið litríkara er að
raða bókum á heimilinu í litaröð.
Liturinn á kjölnum á bókunum er
flokkaður til dæmis eftir regnbog-
anum í eftirfarandi litaröð; svart,
rautt, appelsínugult, gult, grænt,
blátt, fjólublátt og bleikt, brúnt og
hvítt.
Hægt er að velja sérstaklega
litríkar bækur úr safninu og stilla
þeim nokkrum upp á eina hillu.
Þetta hentar sérstaklega vel fyrir
barnaherbergi. Ef gott bókasafn er
á heimilinu getur útkoman orðið
mjög spennandi ef heil hillusam-
stæða skartar öllum regnbogans
litum. Hefðbundin röðun á bók-
um út frá heiti höfunda á ekki við
í þessu tilviki og getur því reynst
erfiðara að finna rétta bók ef safn-
ið er stórt.
Hinsvegar býður röðunin jafnvel
upp á nýja möguleika þegar kemur
að því að velja sér bók til að lesa.
Útkoman kemur skemmtilega
á óvart. Ef það skyldi vanta lit eða
tvo í flóruna er jafnvel kominn tími
til að gera sér ferð í næstu bóka-
búð.
Litríkar bókahillur
gleðja heimilið