Fréttatíminn


Fréttatíminn - 06.02.2015, Qupperneq 48

Fréttatíminn - 06.02.2015, Qupperneq 48
48 ferðalög Helgin 6.-8. febrúar 2015 Alltaf á vaktinni fyrir farþega Sumarferða TENERIFE, MALLORCA, ALMERIA, COSTA DORADA, BENIDORM OG ALBIR Fiskislóð 31, 101 Reykjavík | Sími 514 1400 | sumarferdir.is Fáðu meira úr fríinu með Sumarferðum Íslensk fararstjórn, beint flug, flugskattar, handfarangur og 20 kg taska innifalið í öllum verðum. Fjalar Ólafsson, fararstjóri Sumarferða á Tenerife, vakir yfir velferð farþega allan sólarhringinn. Fjalar hefur lent í ýmsum ævintýrum á eyjunni fögru og hér fer hann yfir ýmislegt tengt fararstjórastarfinu sem á hug hans allan. T enerife er sannkölluð para-dís fyrir vandláta og hefur skipað sér öruggan sess meðal vinsælustu áfangastaða Sumarferða. Eyjan tilheyrir Kanar- íeyjaklasanum en nýtur afgerandi sérstöðu fyrir einstakt náttúrufar og veðursæld. Sumarferðir bjóða upp á skipulagðar ferðir til Tenerife allan ársins hring og er flogið tvisv- ar í viku. Á Tenerife er að finna úr- val góðra hótela, einstakt veðurfar auk fallegrar náttúru sem býður upp á fjölbreytta afþreyingu eins og fjallgöngur, fjallahjól, fallhlífar- stökk og köfun. Tenerife er gjarn- an kölluð eyja hinna tveggja and- lita vegna hversu ólíkir suður- og norðurhluti eyjunnar eru. Norður- hlutinn er mun grænni og þar er að finna mjög skemmtilega borgar- stemningu, en höfuðborgin, Santa Cruz, er þar. Fararstjórar taka vel á móti gestum Sumarferða Fararstjórar taka vel á móti öllum hópum sem koma til Tenerife á veg- um Sumarferða. Starf fararstjórans getur verið margslungið og ekki síð- ur mikilvægt, en hlutverk þeirra felst ekki eingöngu í því að taka á móti fólki á flugvellinum heldur eru þeir gestum innan handar allt fríið. Fjalar hefur verið búsettur á Tenerife í fimm ár. „Ég keypti mér íbúð hérna á Te- nerife sem ég nota í hinum ýmsu frí- um en daginn sem ég ákvað að flytja frá London, þar sem ég bjó áður, varð Tenerife fyrir valinu frekar en Ísland. Sólin, hitinn og hið þægilega líf varð ofan á í þessari ákvörðun.“ Til taks allan sólarhringinn Fjalar leiddist út í fararstjórn fyrir Sumarferðir ein jólin þegar hann stökk inn í afleysingar. „Mér fannst starfið mjög skemmtilegt og áhuga- vert og stuttu síðar urðu manna- breytingar á fararstjórum hérna og ég greip tækifærið og sannfærði yfirmennina heima um að ég væri góður kostur þar sem ég byggi hérna og þekkti eyjuna mjög vel og gæti gengið beint inn í starfið. Og svo var bara ekkert aftur snúið.“ Fjalar segir starf fararstjórans vera óhefðbundið að því leyti að starfið er ekki þessi týpíska 9 til 5 vinna. „Við fararstjórarnir erum til taks allan sólarhringinn og getum stað- ið frammi fyrir nýjum uppákomum hvenær sem er, hvort sem er að nóttu eða degi.“ Það hefur óneit- anlega færst í vöxt að Íslendingar skipuleggi sínar eigin utanlands- ferðir. Aðspurður um hvort vægi fararstjórastarfsins fari minnkandi vegna þessa segir Fjalar: „Nei, alls ekki. Íslendingar átta sig á því að með fararstjóra upplifa þeir meira öryggi og betra frí. Þegar við förum í frí viljum líka frí frá því að þurfa að hugsa um praktíska hluti. Við vilj- um heldur slaka á og hvíla okkur frá amstri hversdagsins.“ Fylgdi manni í gegnum opna hjartaaðgerð Sumarfrí á sólarströnd er kærkom- in tilbreyting frá íslenska sumrinu en þar, líkt og annars staðar, getur ávallt eitthvað komið upp á, og þá er gott að geta leitað til fararstjóra. „Við fararstjórarnir þekkjum orð- ið nánast allt hérna og getum við auðveldlega leyst vandamál áður en þau verða of stór,“ segir Fjalar. „Veikindi eru kannski það helsta sem þarf að snúast í og vegna starfs míns þekki ég spítalann hérna orðið mjög vel, en ég hef meðal annars fylgt fleiri en einum manni í gegn- um opna hjartaaðgerð. Þá skiptir einnig miklu máli að huga að að- standendum, því það eru þeir sem þurfa að fara aftur upp á hótel og bíða í algjörri óvissu,“ segir Fjal- ar, en hann hefur fengið þakkar- bréf frá aðstandendum sem sögðu hann taka vel á málum sem þessum. „Auk þess erum við alltaf með við- talstíma á hótelunum og þá getum við aðstoðað farþega okkar með minni mál ásamt því að veita upplýs- ingar sem geta gert dvöl gestanna skemmtilegri hérna á eyjunni.“ Áskorun: Hvað á Fjalar að gera næst? Fararstjórar Sumarferða á Tenerife eru duglegir að halda uppi fjörinu og nær stemningin alla leið til Ís- lands með hjálp veraldarvefsins. Á heimasíðu Sumarferða er að finna skemmtilegan lið sem ber heitið „Fjalar á Tenerife,“ en þar getur fólk komið með áskoranir á Fjalar sem hann getur ekki skorast und- an. Fjalar tekur svo herlegheitin upp og nú þegar má sjá Fjalar spreyta sig í köfun og á svökölluð- um svifdreka. Aðspurður um að- dragandann að þessum áskorunum segir Fjalar: „Ég lærði köfun hérna á Tenerife og er búinn að vera með köfunarferðir í boði fyrir mína far- þega sem hafa verið mjög vinsælar enda kjöraðstæður hérna til köfun- ar. Ég og yfirfararstjórinn vorum svo að ræða hvernig hægt væri að kynna afþreyinguna sem er í boði hérna. Okkur datt í hug að setja af stað þessar áskoranir og þá lá bein- ast við að ég myndi demba mér í þetta enda býður öll aðstaða hérna upp á skemmtileg uppátæki. Ég átti nú samt ekki von á því að ég myndi hlaupa fram af 1100 metra háum kletti í svifdreka. En núna er ég bara spenntari fyrir hverri áskor- un sem kemur og ekki skemmir fyrir að þetta sé hluti af vinnunni minni,“ segir Fjalar. Myndband af þeim áskorunum sem Fjalar hefur tekið má sjá á www.sumarferdir.is/ fjalar og nánari upplýsingar um frí á Tenerife má finna á www.sumar- ferdir.is/tenerife Unnið í samstarfi við Sumarferðir Á www.sumarferdir.is/fjalar má sjá Fjalar Ólafsson, fararstjóra Sumarferða á Te- nerife, taka alls konar skemmtilegar áskoranir.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.