Fréttatíminn


Fréttatíminn - 06.02.2015, Qupperneq 54

Fréttatíminn - 06.02.2015, Qupperneq 54
54 matur & vín Helgin 6.-8. febrúar 2015 Verkfærin í eldhússkúffurnar Það vita allir að leiðin að hjarta karlmannsins er í gegnum magann en það sem færri vita er að til þess að fá þessa sömu karlmenn til að elda matinn sjálfir er: Taddaraddataaa! Með verk- færum. Ekki skiptilykli eða sög, nei, eldhúsverkfærum. Það er nefnilega fátt sem karlpeningurinn veit betra en að fá ný tól og skiptir þá engu hvort það er glussatjakkur eða Múlínex. En það er óþarfi að kaupa allt í einu og því gott að vita hvaða tól er karl- manninum nauðsynlegt á fyrstu stigum málsins. Kíkjum á það! Mikilvægasta tólið í eldhúsinu er pottur. Það er ekki hægt að elda nokkurn skapaðan hlut ef ekkert er til að elda í. Nú gætu margir sagt að ekki sé nú spenn- andi að kaupa pott en það fólk hefur einfaldlega rangt fyrir sér. Það eru nefnilega til mjög karlmannlegir pottar þarna úti. Þar kemur emalerað pottjárn til sög- unnar. Þannig potta er hægt að nota í allt. Sjóða, steikja og setja inn í ofn. Út á grill og jafnvel yfir útilegueld, ef sá gállinn er á mönnum. Það er því óþarfi að splæsa í rafmagnshæg- eldunarpott. Ef þú átt ofn og pott sem má fara inn í hann þá áttu hægeldunarpott. Þessi emaleraði pottur er rétt rúmlega þriggja lítra, kostar 29.900 og fæst í Hrím Eldhús. Frábært fyrsta skref í pott- járnslífsstílnum. Á eftir pottinum kemur góður kokkahnífur. Ekki hlaupa út í búð og kaupa trékubb með tíu hnífum. Byrja á einum klassískum gæða kokkahníf. Átta tommur eru þægileg stærð en karlmannlegt mjög þykir að rúlla í 10 tommu kvekindi. Skynsamir velja milli- veginn, fara í níu. Það er hægt að skera allt með honum. Græn- meti, fisk, putta og annað kjöt. Með hnífunum þarf þó að kaupa stál. Ekki brýni heldur stál. Með því má halda bitinu í hnífnum svo árum skiptir. Fyrir þá sem ekki treysta sér í þetta klassíska „skylmingastál“ er búið að finna upp imbaprúf útgáfur sem virka mjög vel. Mekanískar tangir eru himnasending og alger nauðsyn í eldhúsið. Sá eða sú sem fann þær upp á gott klapp skilið. Dagar þessara hefðbundnu gamaldags tanga eru því skiljanlega taldir. Litlar pinnatangir eru þó einhver tískubóla um þessar mundir. En þær eru hvorki karlmann- legar né sniðugar til al- mennra nota. Helst til að raða fallega á disk einu og einu laufblaði í senn. Það að raða salati á disk er hvort eð er ekki mjög karlmannlegt þannig að í verkfæraskúffuna fara mekanískar, stórgerðar og karlmannlegar tangir. Þetta er nálægt því hin fullkomna töng. Með plasti sem rispar ekki viðloðunarfrítt en þó úr nógu hörðu plasti til að vera ekki óþolandi mjúk. Fæst í Duka á krónur 3.490. Þó svo að hægt sé að gera nokkurn veg-inn hvað sem er í pottjárnspottinum góða er nauðsynlegt að eiga góða pönnu. Þeir sem steikja mikið af eggjum þurfa að eiga þykka og góða viðloðunarfría pönnu. Átta tommu panna er handhæg og þægileg í eggin og önnur minni verk. En til að steikja karlmannlegt prótein eins og hamborgara og steik er best að eiga númer stærri – tíu eða jafn vel tólf tommur. Sérlega karlmann- legt og gott þykir að eiga kolsvarta og stóra pottjárnspönnu – já, meira pottjárn. En þessi er ekki emaleruð – nei þetta er svona ömmupanna! Kolsvört eins og nóttin og verður bara betri með árunum. Endist hundruð ára með réttri meðferð. Það þýðir reyndar að afkomendurnir munu slást um gripinn eftir jarðarförina og því betra að setja hana í erfðaskrána strax eftir kaupin. Tíu tommu pottjárns panna frá Lodge. Erfðagripur sem aldrei skemmist. Fæst í Bosch búðinni og kostar 8.390 íslenskar krónur. Skurðarbretti er nauð-synlegt. Ekki bara til að eyðileggja ekki borðplötur eldhússins heldur skemmir það hnífinn að saxa á gleri, marmara og öðru hörðu yfirborði. Best er að nota náttúrulegt efni eins og við en plastbretti eru reyndar ágæt líka. Sérstaklega fyrir kjöt og fisk svo ekki sé talað um kjúkling. Hann viljum við ekki sjá á viðarbrettum. Bestu brettin eru endalímd. Þessi sem líta út eins og furðutaflborð. En þau eru líka dýr og þung. Langbestu brettin til að nota eru þunn og létt og úr samanpressuðu kurli einhvurju. Grjóthörð og mega meira að segja fara í uppþvottavélina. Epicurean brettin fást í öllum stærðum og gerðum en þessi stærð og lögun er frábær. Nógu létt til þess að nenna að nota og það sem mikilvægara er, þrífa. Passa krossmengunina karlpungar! Kostar 4.590 og fæst í Kokku. Haraldur Jónasson hari@frettatiminn.is Bestu hnífarnir ná alla leið í gegnum haldið. Þannig verður jafnvægið gott og lítil hætta á að blaðið detti úr á ögurstundu. Þessi ljómandi kokkahnífur frá Zwilling fæst í Ormsson fyrir 14.900 .
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.