Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.2001, Blaðsíða 8

Ægir - 01.01.2001, Blaðsíða 8
8 F R É T T I R „Almennt líst mér illa á verkföll og verk- bönn, hvorutveggja er neyðarúrræði,“ sagði Björgólfur Jóhannsson, fram- kvæmdastjóri Síldarvinnslunnar í Nes- kaupstað, en lít- ið virðist þokast í samkomulags- átt í kjaradeilu sjómanna og út- vegsmanna og að óbreyttu stefnir í sjó- mannaverkfall 15. mars. Björgólfur segir að kjara- deilan sé í erf- iðri stöðu, en hann tekur fram að hann komi ekki beint að aðalsamn- ingaborðinu og því hafi hann ekki púls- inn á viðræðunum frá degi til dags. „En mér sýnist að ýmislegt varðandi samn- ingana geti orðið erfitt að leysa. Til dæm- is myndi ég ekki geta samþykkt þá kröfu sjómanna að allur fiskur fari á markað.“ Björgólfur segir margt benda til að til verkfalls sjómanna komi, „og ef það ger- ist þá óttast ég að það geti orðið langt.“ Og verkfall er grafalvarlegt mál fyrir Síldarvinnsluna, sem byggir afkomu sína öðru fremur á veiðum á uppsjávarfiski. „Verkfall kæmi auðvitað mjög illa við okkur. Ég gef mér að loðnuvertíðin sleppi fyrir horn, en hins vegar tækju kolmunnaveiðar þá fljótlega við og síðan norsk-íslenska síldin. Það má segja sem svo að bolfiskurinn geymist í sjónum, en það á hvorki við um kolmunnann né síld- ina,“ segir Björgólfur Jóhannsson. Kjaradeila sjómanna og útvegsmanna: Óttast langt verkfall - segir framkvæmdastjóri SVN í Neskaupstað Björgólfur Jóhannsson. Inga ráðin til Athygli Inga Ágústsdóttir, sem annast hefur auglýsingasölu í Ægi og Sjómanna- almanak Fiskifélags Íslands síðustu ár, var í ársbyrjun ráðin til Athygli. Hún hefur umsjón með allri auglýsingasölu í miðlana tvo en mun einnig hafa yfirumsjón með allri sölu auglýsinga í önnur þau rit sem Athygli gefur út eða hefur umsjón með. Þá mun hún einnig selja auglýsingar á vefsvæði almanaks- ins sem verður kynnt innan tíðar. Hægt er að ná sambandi við Ingu í síma 588 5200 og 898 8022. Netfang hennar er inga@athygli.is. „Mér sýnist að ýmislegt varðandi samningana geti orðið erfitt að leysa. Til dæmis myndi ég ekki geta samþykkt þá kröfu sjómanna að allur fiskur fari á markað,“ segir Björgólfur Jóhannsson.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.