Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.2001, Blaðsíða 21

Ægir - 01.01.2001, Blaðsíða 21
21 F R É T T A S K Ý R I N G framleidd hefur verið fyrir Ítalíu- markað en árangurinn hefur verið ansi misjafn, frá ári til árs. Guð- mundur Guðmundsson hjá SíF segir framleiðendur almennt hafa sinnt þessum markaði lítið, enda hefur verðið rokkað milli ára „og það sama má segja um framboðið. Þetta hefur eiginlega verið víta- hringur, því ef verðið hefur verið gott hafa margir verkað skreið sem aftur hefur valdið offramboði sem hefur fellt verðið. Einkanlega hefur verið framleitt fyrir markaði í Nígeríu og Króatíu. Von okkar er hins vegar bundin við útflutn- ing á hertum hausum til Nígeríu. Sá markaður hefur verið afar sterkur síðustu misserin. Þar hafa komið upp sterkir innflytjendur með aðgang að peningum. Þessi markaður lofar góðu, svo framar- lega sem stjórnmálaástandið helst stöðugt.“ Umhverfismál Til þessa höfum við Íslendingar getað státað af hreinum og ómenguðum náttúrafurðum. Nú eru hins vegar blikur á lofti hvað varðar díoxínmengun og umræð- an neikvæð, en díoxíð safnast í lif- ur fiska, sérstaklega á norðurslóð- um. Viðmælendur Ægis töldu að Íslendingar gætu lent í erfiðleik- um með framleiðslu á fiskimjöli og lýsi og að þessi umræða gæti orðið almennt neikvæð fyrir okk- ur á erlendum mörkuðum, því neytendur eru almennt ekki mjög vel upplýstir um mál af þessu tagi og þeir eigi það til að alhæfa. Hætta sé því á að allur fiskur af norðlægum slóðum verði talinn díoxínmengaður og það sama gildi um allt fiskimjöl, þótt til að mynda loðnumjöl ætti að inni- halda lítið díoxín vegna hins stutta líftíma loðnunnar. Á móti kemur að öll umræða um erfðabætt matvæli og sýkt kjöt er fiskinum til framdráttar. En tíminn einn getur skorið úr um hvað verður. Hitt er alla vega ljóst á orðum viðmælenda Ægis að horfurnar fyrir nýhafið ár eru góðar og vel það. Heildar vöru- útflutningur Íslendinga árið 1999 var 145 milljarðar króna og þar af var hlutur sjávarafurða 97,7 milljarðar eða 67,4 %. Fyrstu ellefu mánuði ársins 2000 var vöruútflutningur- inn 137,6 milljarðar sem er 3,2 % aukning frá sama tíma árið 1999. Hlutdeild sjávarafurða í útflutningi fyrstu ellefu mánuði ársins 2000 er 64,3 %. 29,1 32,3 26,5 5,9 6,2 27,2 32,4 27,6 5,8 7 26,6 33,7 26 6,9 6,8 0 5 10 15 20 25 30 35 40 ( % ) 1998 1999 2000 Annað Ísland, nýting aflans 1998 - 2000 Þorskur, Ýsa, Ufsi, Karfi, Grálúða (áætl. 2000) ÓunniðSaltaðSjófrystLandfyrst 67,4 15,5 2,2 7,9 7 64,3 18,8 2,5 9,7 4,7 0 10 20 30 40 50 60 70 80 ( % ) 1999 2000 AnnaðAðrar iðnaðarvörurKísiljárnÁlSjávarafurðir Ísland - Vöruútflutningur 1999 - jan.-nóv. 2000 (hlutfall m.v. fob verðmæti) Samtals 1999 145,0 milljarðar kr. Samtals jan. - nóv. 2000 137,6 milljarðar kr.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.