Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.2001, Blaðsíða 46

Ægir - 01.01.2001, Blaðsíða 46
46 S K I P A S T Ó L L I N N Íbúðir Í skipinu eru íbúðir og klefar fyr- ir 19 manna áhöfn í eins og tveggja manna klefum, auk sjúkraklefa. Á aðalþilfari er eldhús með búri og sambyggður borðsalur með setustofau bakborðmegin í skip- inu. Miðskips eru fremst véla- reisn, þá símaklefi, þvottahús, sal- erni og íbúðaklefar. Aftast er stýr- isvélarými með dælustöðvum fyr- ir vökvakerfi aftursskips. Stjórn- borðsmegin á aðalþilfari eru fremst verkstæði og stigagangur fyrir vélarúm, þá íbúðarklefar og aftast kæli- og frystiklefar fyrir kost. Á fyrstu hæð í þilfarshúsi eru tveir eins manns klefar, einn tveggja manna klefi, sjúkraklefi og líkamsræktarstöð. Þar aftanvið eru hlífðarfataklefi, salerni, sturta og vélareisn. Í þilfarshúsi á efri hæð er íbúð skipstjóra með setustofu stjórn- borðsmegin, ásamt salerni og sturtu. Bakborðsmegin eru tveir eins manns klefar og klefi fyrir loftræstibúnað. Vistarverur eru hitaðar með miðstöðvarofnum. Lestarrými Skipið var lengt um 10,2 metra og er nú um 67 metra langt. Við lenginguna jókst burðargeta skipsins úr 1200 tonnum í 1600 tonn, miðað við ókælt hráefni. Lest skipsins er skipt í þrjár lestir sem skiptast niður með langskips- þilum í bakborðs-, mið- og stjórnborðstank. Lestarnar eru fremsta lest nr.1, miðlest nr. 2 og afturlest nr. 3. Lestatankarnir framlengjast upp í gegnum aðal- þilfarið upp á efra þilfar. Í lestum- tönkum eru sjö vatnsþéttar rennilúgur á langþilum fyrir löndun. Allar lestar voru endur- smíðaðar, einangraðar og klædd- ar. Þá voru allar lestarlúgur á efra þilfari endurnýjaðar. Í skipið var sett nýtt öflugt sjókjölfestudælu- kerfi og nýtt austurskerfi. Fyrir lestar er nýtt ískrapakerfi sem samanstendur af þremur North- star M60/6 ísvélum frá Kælitækni hf. og Kværner/Howden 160kW skrúfukæliþjöppu. Framleiðslu- geta ísvélanna er samtals 90 tonn af ískrapa á sólarhring. Ískrapinn verður geymdur í fremsta miðju- tanki lesta, sem rúmar 75 rúmmetra. Ískrapakerfið notar kælimiðilinn er R-507. Vélbúnaður Gamla aðalvélin var Wichmann, 1800 kW við 600 sn/mín. Henni var skipt út fyrir nýja, ásamt gír og skrúfu frá Wärtsilä NSD. Nýja aðalvélin er af gerðinni 9L32, fjórgengisvél með for- þjöppu og eftirkælingu. Hún er 4140 kW (5.630hö) við 750 sn/mín. Skrúfugírinn er af gerðinni SCV 85-P53 með gírhlutfallinu 5,36:1. Skrúfan er af gerðinni CP 90 með stillanlegum skurði, fjórum blöð- um og snýst 140 sn/mín við 750 snúninga á vél. Þvermál skrúf- unnar er 3,7 metrar og er hún í föstum hring. Ferill Faxa Skipið er nr. 501 frá Szczecin Ship Repair Yard í Stettin í Póllandi árið 1987. Það var smíð- að fyrir Gísla Jóhannesson útgerðarmann í Reykjavík árið 1987 og hét þá Jón Finnsson RE 506. Frá júlí 1995 er skipið í eigu Steinavíkur ehf í Þorlákshöfn og hét Hersir ÁR 4. Skipið var keypt til Vestmannaeyja í apríl 1997 af Vinnslustöðinni og hét í eigu þess Kap VE 4. Faxamjöl hf. eignast skipið í ágúst 1998 og gaf því núverandi nafn Faxi RE 9. Árið 1992 var skipið lengt aftur um þrjá metra og toggálga breytt.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.