Ægir - 01.01.2001, Blaðsíða 44
44
S K I P A S T Ó L L I N N
Guðbergur
Rúnarsson,
verkfræðingur
hjá Fiskifélagi
Íslands, skrifar
Faxi RE 9
mikið endurbættur
B R E Y T T F I S K I S K I P
Mynd: Guðbergur Rúnarsson
Helstu breytingar á Faxa voru að
vélarúmið var endurnýjað með;
nýrri 4140 kW Wärtsilä aðalvél
ásamt skrúfu, gír og ásrafal, nýrri
hliðarskrúfu að aftan, stýrisvél og
stýri, endurbættri rafmagnstöflu
og nýjum vélgæsluklefa. Þá var
skipið lengt um 10,2 metra og
allt afturskipið endurbyggt ásamt
íbúðum á aðalþilfari. Lestar skips-
ins voru teknar í gegn, einangrað-
ar og málaðar, toggálginn endur-
nýjaður, nótakassi stækkaður og
nótakrani og spil flutt til, gangur
á efra þilfari lokaður og margt
smærra endurnýjað. Skipið er nú
búið kælibúnaði sem samanstend-
ur af þremur 30 tonna ísvélum
fyrir ískrapaframleiðslu. Skipið er
útbúið til nóta- og flotvörpuveiða.
Faxi RE er í eigu Faxamjöls hf.
Framkvæmdastjóri útgerðarinnar
er Torfi Þorsteinn Þorsteinsson,
skipstjóri Ólafur Einarsson, yfir-
stýrimaður Sigurður Ólafsson og
yfirvélstjóri Baldvin Agnarsson.
Greinargóða lýsingu af Faxa RE
eins og hann var við komuna til
landsins er að finna í 3. tbl. Ægis
frá árinu 1987.
Breytingar hér heima
Eftir að skipið kom heim var strax
hafist handa við niðursetningu á
tveimur rafknúnum Ibercisa tog-
spilum frá Naust-Marine. Vind-
urnar toga 57 tonn hvor á tóma
tromlu en halda 78 tonnum.
Í desember s.l. kom Faxi RE til heimahafnar eftir viðamiklar endurbæt-
ur í Póllandi. Endurbæturnar voru framkvæmdar hjá Nauta Shipyard í
Póllandi, en Teiknistofa KGÞ á Akureyri hannaði breytingarnar.