Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.2001, Blaðsíða 25

Ægir - 01.01.2001, Blaðsíða 25
25 U M R Æ Ð A N þúsund þöglir þorskar úr þeirri hrygningu í Íslandsála að hrygna þar tugmilljarði eggja 17 ára gamlir. Vitað er að stór hluti eggjanna klekst út en lítið er vitað um afdrif þeirra eftir það. Ef til vill verða seiðin langflest hungurmorða en líklegra má þó telja að það séu þau seiði sem éti flest hinna út á gaddinn. Fyrst- ir koma fyrstir fá. Ég túlka allavega sveiflur þorskstofnsins sem svo að kynslóðabilið í honum muni vera 10-11 ár, og þótt fáir gullþorskar séu nú eftir gætu þeir skipt meira máli en þær 35 milljónir kynþroska 3 og 4 ára þorska sem Hafró fullyrðir (rang- lega) að séu nú á Íslandsmiðum. Eftir að Hafró og sjávarútvegs- ráðherra hafa í sameiningu gert tillögur og leyft veiðar langt fram úr samþykktri aflareglu í 4 ár í röð fer að síga á ógæfuhlið- ina með golþorskana. Nýliðun þorsksins fer því nú vafalaust versnandi. Lægi einhver alvara að baki aflareglunni ætti að sleppa þorskveiðum í eitt ár til að leiðrétta umframveiði síðustu ára en slíkt verður auðvitað ekki gert. Fremur er reglunni breytt í þá veru að fyrst veitt var of mikið í ár verður að veiða of mikið næsta ár til sveiflujöfnunar! Það er heldur engu stjórnað í þorsk- veiðunum nema heildarmagninu sem landað er. Heilmiklu er hent, jafnvel í beinni sjónvarpsútsendingu, og enginn hugar að skaðsemi veiðarfæranna. Páskastoppið verndar heldur ekki gol- þorskana mikið; í fiskbúðunum er þegar farið að selja úr þeim hrognin og lifrina löngu fyrir jól. Eina takmkörkunin á veiðum þeirra er því sú að ekki sé komið með meira en 230 þús. tonn af golþorskum í land og hvaða hætta er á því? Enda hefur sóknin í golþorskastofninn aldrei verið eins mikil og nú. Þessi stórsókn gæti tafið uppbyggingu þorskstofnsins um fjölmörg ár og kost- að núverandi eigendur hans, sægreifana, jafnvel hundruð millj- arða króna. Tilvísanir: 1) Kynþroski ýsunnar er tekinn beint úr ralltölum en í raun er óljóst hvaða þyngdartölur eru notaðar eftir 1999 því þær eru talsvert lægri en þær ÞRS tölur sem sagðar eru notaðar. Hugsan- lega er hér bara leiðrétt fyrir veiðanleika sýnatökuvörpunnar, en hún velur eins og botnvörpur togaranna stærstu fiskana úr stofninum og það er ekki hægt að taka meðalþyngdirnar beint úr rallinu fremur en nokkur meining er í að taka meðalþyngdirnar í aflanum til að reikna út stofnþyngdina. 2) KHS er talsvert óviss stærð en í ástandsskýrslum fyrir 1999 var KHA = 0.562. 1999 breyttust allar kynþroskatölur án þess að eldri hrygningarstofnar væru neitt endurmetnir (Hrygningar- stofn (1993) hefði átt að fara úr 218 þús. tonnum í 277 þús. tonn), og í nýjust skýrslum stendur talan KHA = 0.466. 3) Hér er ekki leiðrétt fyrir veiðanleika rallvörpunnar svo þessi tala (ÞSS og KSS) er líklega enn ofmetin.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.