Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.2001, Blaðsíða 14

Ægir - 01.01.2001, Blaðsíða 14
14 F R É T T I R Hvað þarf að vera í lagi þegar haldið er í langt úthald? NETTÓ kostsala svarar því. Matvara • Sérvara • Hreinlætisvörur Búsáhöld • Rekstrarvörur • ofl. Kostsala • Akureyri • Símar 896 0485, 460 3407 • Netfang nettokostur@kea.isSímar 460 0000 & 896 0485 • Fax. 460 0001 • netfang: joip@valgardur.is „Það er töluvert misjafnt hljóð í mönnum, en mér sýnist þetta vera nokkuð svipað og í fyrra,“ segir Jóhann Pétur Andersen, framkvæmdastjóri uppsjávarsviðs Ísfélags Vestmannaeyja, þegar hann var spurður um gang loðnuveiða og –vinnslu í janúar. Ekki þarf að hafa um það mörg orð að eftir stórbrunann í Ísfélaginu í desember hafa Vestmannaeyingar með samstilltu átaki gert kraftaverk í því að undirbúa frystingu á loðnu í Eyjum. Og fyrir miðjan janúar var byrjað að frysta loðnu í Vestmannaeyjum, sem einhver hefði ekki trúað að væri mögulegt þegar horft var upp á eyðilegginguna eftir brunann. Jóhann Pétur sagði að frystingin hefði gengið ágætlega, á land væri að berast skínandi góð loðna og það létti brúnina á fólki. Um markað fyrir loðnuafurðir, mjöl og lýsi, sagði Jóhann Pétur að hann mætti vera betri. Mjölverð hafi þó verið að þokast upp á við, en verð á lýsi væri enn ekki nægilega gott. Ekki er þó ástæða til þess að örvænta, því almennt er því spáð að stóraukið fiskeldi í heiminum á næstu árum og þar með aukin framleiðsla á fiskafóðri, leiði til aukinnar spurnar eftir loðnuafurðum, bæði mjöli og lýsi. „Ég held því að menn horfi nokkuð bjartsýnir fram á veginn,“ sagði Jóhann Pétur Andersen. Loðnuvertíðin: Svipað og í fyrra Nótaskipið Ingunn á leið heim Í febrúarmánuði er nótaskipið Ingunn AK væntanlegt til Íslands en það er nú á leið heim frá Chile þar sem gerðar voru á því verulegar breytingar. Helstar eru þær að skipið var lengt og gerðar tilheyrandi breytingar jafnframt því. Með tilkomu stærri Ingunnar í flota Haraldar Böðvarssonar hf. á Akranesi skapast breyttar aðstæður í hráefnisöfl- un fyrir fyrirtækið og hefur því verið tekin ákvörðun um sölu á nótaskipinu Óla í Sandgerði til Noregs. Ískerfi tók við af Brunnum Nýtt fyrirtæki í Hafnarfirði, Ískerfi hf., er nú komið á fulla ferð í framleiðslu á ísþykknivélum en um er að ræða vél- búnað sem áður var framleiddur hjá Brunnum hf. í Hafnarfirði. Það fyrirtæki varð gjaldþrota. Vélarnar hjá Ískerfi hf. bera heitið Liquid Ice, eins og búnaðurinn hjá Brunnum áður. Vélarnar eru víða þekkt- ar hér á landi og hafa fengið töluverða kynningu erlendis. Nýja fyrirtækið er í eigu Landsbankans og starfa hjá því um 30 manns.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.