Ægir - 01.01.2001, Blaðsíða 41
41
N Ý T Æ K N I
Nýverið kom á markað ný ratsjá frá JRC. Ratsjáin ber
heitið JMA-7700. Þetta er litaratsjá með 21" skjá og
er hann framleiddur með tveim mismunandi sendum,
10 og 25 kw. S-band útgáfa er væntanleg fljótlega.
Fullkomnar ARPA aðgerðir og plotter er
staðalbúnaður í ratsjánni, en auk þess er C-map
kortaplotter fáanlegur sem aukabúnaður. Með C-map
kortaplotternum fást öll sjókort, íslensk sem erlend,
þar með talin hafnakort og ýmis sérkort eins og
sjómenn þekkja.
Allur búnaður ratsjárinnar, svo sem truflanadeyfar,
eru af fullkomnustu gerð en framleiðandinn JRC er
þekktur fyrir vandaða framleiðslu enda framleiðir JRC
og fyrirtæki í eigu JRC ratsjárhluta sem aðrir
ratsjárframleiðendur sækjast eftir að nota í sína
framleiðslu.
Öll stjórnun JMA-7700 er auðveld og ratsjáin
framleidd með kröfur fiskimannsins í huga.
Undanfarin þrjú ár hafa nokkur hundruð ratsjár frá
JRC verið settir upp um borð í íslenskum fiskiskipum.
Það hefur hins vegar vantað sárlega ratsjá þeirrar
gerðar sem JMA-7700 í framleiðslulínu JRC svo færi
gæfist á að sinna öllum stærðum og gerðum íslenska
fiskiskipaflotans en nú hefur verið úr því bætt og hafa
viðbrögðin ekki látið á sér standa.
Nú þegar hefur JMA-7700 ratsjáin verið sett upp
um borð í tveim skipum og er reynslan af henni frábær,
segir í tilkynningu frá Ísmar hf., umboðsaðila JRC á
Íslandi en Ísmar hf. sem nýlega keypti Rafhús ehf. og
hafa félögin verið sameinuð. Ísmar hf. er til húsa að
Síðumúla 37 og hefur í sýningarsal sínum ratsjá af
þessari gerð ásamt fleiri valkostum frá JRC.
Ísmar setur nýja
JRC ratsjá á markað
JMA-7700 ratsjáin.