Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.2001, Blaðsíða 42

Ægir - 01.01.2001, Blaðsíða 42
42 Þ J Ó N U S T A Tryggvi Traustason, starfs- maður Stýrisvélaþjónustu Garðars síðustu 15 árin, hefur keypt fyrirtækið og breytt nafni þess í Stýri- vélaþjónustan ehf. Tryggvi segir að áfram verði hald- ið á sömu braut í þjónustu fyrirtækisins, sem fyrst og fremst snýr að sölu- og við- gerðaþjónustu stýrisbún- aðar í skip og báta og framleiðslu á plasthurðum fyrir skip og báta. „Ætlunin er vitanlega að útvíkka starf- semina þegar fram í sækir en við munum leggja mest upp úr að halda þeirri þjón- ustu sem snýr að stýrisbúnaðinum, bæði sölunni og viðgerðarþjónustunni,“ segir Tryggvi í samtali við Ægi og bætir við að jafnframt þessu falli til ýmis verkefni í stálsmíði, s.s. smíði og viðhald öxla og tjakka og þess háttar. „Þessu til viðbótar hefur fyrirtækið átt gott samstarf um árabil við Trefjar hf. í Hafnarfirði um framleiðslu á plasthurð- um fyrir skip og báta. Þeir hafa séð um plastframleiðsluþáttinn en Stýrivélaþjón- ustan annast stálsmíðina og þessi þáttur í starfseminni hefur verið að styrkjast og mun vonandi gera það enn frekar. Við eigum á þessu sviði í samkeppni við inn- flutning en framleiðsla okkar er fyllilega samkeppnisfær hvað gæði og verð áhrær- ir og ætti þess vegna að vera áhugaverður valkostur fyrir kaupendur hér á landi,“ segir Tryggvi. Þjónustan okkar besta auglýsing Stýrivélaþjónustan er umboðasaðili fyrir stýrisbúnað frá danska fyrirtækinu Scan- steering, Rolls Royce-Tannfjord og Emil Bogsvik í Noregi. Því til viðbótar hefur fyrirtækið umboð fyrir hollensk Becker- týri, betur þekkt sem flapsastýri. „Það er mikilvægt í svona þjónustu að hafa yfir að ráða varahlutum og helsta grunnbúnaði ef eitthvað fer úrskeiðis og tilfellið er að menn vilja sem allra minnst stoppa bátana ef eitthvað bilar. Við reyn- um því að bregðast hratt við þegar á okk- ur þarf að halda og ég er ekki í vafa um að þjónusta okkar um borð í bátunum og skipunum er okkar besta auglýsing. Vissulega erum við ekki stórt fyrirtæki, með aðeins þrjá menn, en engu að síður eru töluverðir kostir fólgnir í smæðinni og við eigum auðveldara með að sinna ýmsum sérþörfum viðskiptavinanna,“ segir Tryggvi og bætir við að stóru fyrir- tækin í stáliðnaðinum, s.s. skipasmíða- stöðvarnar, sæki töluverða þjónustu til þeirra þrátt fyrir að búa yfir eigin þjón- ustudeildum í iðnaðinum. „Við njótum þess að vera eina fyrirtæk- ið á landinu sem sérhæfir sig í viðgerða-, varahluta- og söluþjónustu á stýrisbún- aði, fyrir skip og báta. Hér höfum við yfir að búa sérþekkingu á þessum hluta skipanna sem hægt er að sækja með litl- um fyrirvara þegar á þarf að halda,“ seg- ir Tryggvi Traustason, eigandi og fram- kvæmdastjóri Stýrivélaþjónustunnar. Stýrivélaþjónustan ehf. tekin við af Stýrisvélaþjónustu Garðars: Þjónustan byggð á sama grunni og áður - segir Tryggvi Traustason, framkvæmdastjóri og nýr eigandi Tryggvi Traustason. Myndir: Sverrir Jónasson

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.