Ægir - 01.01.2001, Síða 9
9
F R É T T I R
Um miðjan desember var undir-
ritaður samningur um kaup
kynningar- og almannatengsla-
fyrirtækisins Athygli ehf. á út-
gáfurétti tímaritsins Ægis og Sjó-
mannaalmanaks Fiskifélags Ís-
lands en báðir þessir prentgripir
hafa verið gefnir út af Fiskifélagi
Íslands um áratuga skeið. Athygli
hefur annast útgáfumál Fiskifé-
lags Íslands frá árinu 1996 og á
þeim tíma hafa orðið viðamiklar
breytingar á báðum miðlunum.
Stjórn Fiskifélagsins ákvað að
selja útgáfuréttinn og gekk til
samninga við Athygli eftir könn-
unarviðræður.
,,Athygli er það mikið kapps-
mál að gefa Ægi áfram út sem
óháð fagrit um sjávarútvegsmál.
Þetta er ögrandi og spennandi
verkefni sem við tökumst nú á við
og ég er þess fullviss að okkur
muni takast að efla og styrkja
þetta ágæta blað. Samstarf okkar
við Fiskifélagsútgáfuna ehf. hefur
verið með miklum ágætum allt
frá því við hófum umsjón með út-
gáfunni árið 1996 og við viljum
auðvitað halda áfram góðum
tengslum við Fiskifélag Íslands og
aðildarfélög þess. Góð samvinna
við öll hagsmunasamtök í íslensk-
um sjávarútvegi er okkar keppi-
kefli því öðruvísi verður Ægir
ekki sá faglegi umræðuvettvangur
sem honum er ætlað að vera,“
sagði Valþór Hlöðversson, fram-
kvæmdastjóri Athygli ehf. í sam-
tali.
Ægir á Akureyri
Bæði Ægir og Sjómannaalmanak-
ið eiga að baki langa og merka
sögu á íslenskum útgáfumarkaði
en miðlarnir eru samtvinnaðir
sögu Fiskifélags Íslands. Við þessi
tímamót verða þó ekki rofin
tengsl við Fiskifélagið eða aðildar-
félög þess heldur þvert á móti.
Nýir útgefendur ætla að kapp-
kosta að eiga áfram gott samstarf
við Fiskifélag Ísland og aðildarfé-
lög þess. Þeir hyggjast fylgja nú-
verandi ritstjórnarstefnu í megin-
dráttum og styrkja Ægi og Sjó-
mannalmanakið enn frekar sem
alhliða upplýsinga- og fagmiðla
um og fyrir sjávarútveginn. Fiski-
félag Íslands og aðildarfélög þess
munu eiga aðgang að föstu svæði
í blaðinu og þannig verður leitast
við tryggja sjónarmið úr sem
flestum áttum í greininni um þau
mál sem uppi eru á hverjum tíma.
Jóhann Ólafur Halldórsson
verður áfram ritstjóri Ægis með
aðsetur í nýstofnaðri starfsstöð
Athygli á Akureyri. Prentvinnsla
Ægis er að hluta nyrðra og stefnt
er að því að flytja allt skrifstofu-
hald útgáfunnar að miklu leyti frá
Reykjavík til Akureyrar.
Tímaritið Ægir er rótgróið á
sínu sviði og hefur komið út í 93
ár. Yfirbragði blaðsins var breytt í
byrjun árs 2000 og brot þess
stækkað. Áhersla er lögð á fjöl-
breytt og fræðandi efni sem teng-
ist útgerð, fiskvinnslu og þjón-
ustugreinum sjávarútvegsins.
„Markmið okkar er að efla Ægi
sem fjölbreytt tímarit fyrir sjávar-
útveginn og um sjávarútvegsmál,
sem innihaldi fagefni, fréttaefni af
innlendum og erlendum toga,
vettvangsgreinar og afþreyingar-
efni sem tengist greininni. Við
munum þannig halda áfram á
þeirri uppbyggingarbraut sem við
höfum verið á undanfarin ár, og
sér í lagi frá því í ársbyrjun 2000
þegar útliti blaðsins og broti var
gjörbylt. Þeirri breytingu hefur
verið vel tekið og kaupendur
blaðsins finna vel að blaðið er í sí-
felldri þróun,“ segir Jóhann Ólaf-
ur Halldórsson, ritstjóri Ægis.
Skipaskráin á vefinn
Sjómannalmanak Fiskifélagsins
hefur fyrir löngu unnið sér traust-
an sess sem alhliða upplýsingarit
fyrir sjómenn og aðra þá sem
starfa í sjávarútvegi. Sjómanna-
almanakið 2001 er nýkomið út og
er í tveimur bókum. Meginbreyt-
ingin nú er sú að almanakið er nú
gefið út í stærra broti en áður,
sem þýðir að letrið er stærra og
læsilegra og myndir í skipaskrá
og víðar eru stærri en í fyrri útgáf-
um. Þá eru upplýsingar í skipa-
skrá aðgengilegri en áður.
Valþór Hlöðversson segir að
haldið verði áfram á sömu braut
varðandi sjómannaalmanakið.
,,Auðvitað erum við með ýmsar
hugmyndir varðandi nýtt efni
sem væntanlega munu koma fram
í næstu útgáfu og ekki tímabært
að skýra frá nú. Hins vegar get ég
sagt að skipaskrá almanaksins
mun verða sett út á vefinn innan
tíðar en við höfum orðið vör við
mikinn áhuga á slíkri þjónustu.“
Nýir símar ritstjórnar
Starfsstöð Athygli á Akureyri, þar sem ritstjórn Ægis er
til húsa, hefur fengið ný símanúmer, þ.e. 461 5151
(aðalsími) og 461 5159 (fax). Netfang hjá ritstjóra er
johann@athygli.is.
Undirskrift samninga um kaup Athygli á útgáfurétti Ægis og
Sjómannaalmanaksins . Frá vinstri: Valþór Hlöðversson,
framkvæmdastjóri Athygli, Pétur Bjarnason, framkvæmdastjóri
Fiskifélags Ísland og Atli Rúnar Halldórsson, einn eigenda
Athygli.
Athygli kaupir Ægi og Sjómannaalmanakið af FÍ:
Ögrandi og spennandi verkefni
- segir Valþór Hlöðversson, framkvæmdastjóri Athygli