Ægir - 01.01.2001, Side 12
12
F R É T T I R
Stjórnendur frystihúss Samherja
hf. á Dalvík eru stórhuga. Á dög-
unum var sett á ný fjögurra tíma
næturvakt í vinnslu fyrirtækisins
á Dalvík og við það fjölgar starfs-
mönnum um rösklega fjörtíu.
Næturvaktin hefst klukkan þrjú
að nóttu og lýkur klukkan sjö. Þá
tekur við dagvakt til klukkan hálf
fjögur.
Sigurður Óskarsson, verkstjóri í
frystihúsinu, segir að samið hafi
verið um þessa nýju næturvakt
fram í maí, en þá verður staðan
metin og skoðað hvernig til hafi
tekist. Verði reynslan góð segist
Sigurður ekki sjá annað en að
haldið verði áfram á sömu braut.
Þessi viðbótarvakt þýðir að hrá-
efnisflæði í gegnum húsið eykst
um tvö til þrjú þúsund tonn. Það
hráefni segir Sigurður að Samherji
hf. muni tryggja, en sem kunnugt
er á Samherji hf. mikinn meiri-
hluta í fyrirtækinu eftir að hafa
skipst á hlutabréfum við KEA á
síðasta ári.
Sigurður segir að mun betur
hafi gengið að manna næturvakt-
ina en hann hafi búist við. Á milli
50 og 60 umsóknir hafi borist, en
störfin eru eins og áður segir rúm-
lega 40. Flestar umsóknir bárust
frá fólki sem er búsett í Dalvíkur-
byggð, en einnig sóttu Ólafsfirð-
ingar um vinnu og sömuleiðis
komu umsóknir frá höfuðborgar-
svæðinu. Sigurður segir greinilegt
að fólk vilji í auknum mæli eiga
frí seinnipart dags og á kvöldin,
það sé viljugra að vinna síðari
hluta nætur.
Með þessari næturvakt segir
Sigurður verkstjóri að fyrirtækið
sé að færa sig meira inn á markað
fyrir svokallaðan flugfisk. Hug-
myndin sé að fiskur sem verði
unninn á nóttunni fari strax að
morgni ferskur í flutningabíl sem
flytji hann beint suður á Keflavík-
urflugvöll. Þaðan verði flogið með
hann til Bretlands síðdegis sama
dag. „Það er því raunhæft,“ segir
Sigurður Óskarsson, „að aðeins
einn sólarhringur líði frá því að
fiskurinn er unninn á Dalvík þar
til hann er kominn í kæliborð
verslana í Bretlandi.“
Fleiri krónur fást með þessu
móti fyrir hvert kíló af fiski, en á
móti kemur að þessi flutnings- og
dreifingarmáti er nokkru dýrari
en hin hefðbundna vinnsla og út-
flutningsleið á frystum fiski.
Frystihús Samherja á Dalvík:
Flugfiskur unninn á nóttunni