Ægir - 01.01.2001, Blaðsíða 27
27
Raftjakkar
vatnsþéttir og ryðfríir
í fiskvinnslu á landi og sjó
IsoTækni
Dalshrauni 9, 220 Hafnarfirði, sími: 555 6200, fax: 555 6201
netfang: isotech@vortex.is, veffang: www.isotech.is
vegna hráefnisskorts og vinnslunni lokað í framhald-
inu.
Þá hefur afkoma í uppsjávarvinnslu, sem er ein af
meginstoðunum í rekstri fyrirtæksins, verið fremur
bág á síðustu misserum. Hún hefur þó heldur styrkst
að undanförnu. „Þar kemur meðal annars til að nú
borgar sig að selja lýsið fremur en að brenna því sem
orkugjafa, eins og til skamms tíma var, olíuverð hef-
ur lækkað nokkuð og verð á mjöli hefur náð betra
jafnvægi,“ segir Elfar.
Spennandi grein
Er sjávarútvegurinn nógu spennandi grein til að laða
að unga menn í stjórnunarstörf? „Það er rétt að sjáv-
arútvegurinn hefur ekki verið í tísku og verðbréfafyr-
irtækin ekki skrifað hann hátt undanfarið. En sveifl-
ur í sjávarútvegi er löngu þekkt fyrirbæri og vonandi
sjáum við brátt til betri tíðar,“ segir Elfar og bætir
við að sjávarútvegur sé mjög lifandi og margslungin
atvinnugrein. En er laxeldi á næstu dagskrá. „Ná-
grannar okkar á Neskaupstað og fleiri fyrirtæki hafa
hug á að hasla sér völl í fiskeldi og verður spennandi
að fylgjast með þeirri framvindu. Við höfum þó eng-
ar fyrirætlanir gert í þessa átt og förum ekki út í
nema að vel ígrunduðu máli.“
Sameining og hagræðing eru kjörorð dagsins. Er
Hraðfrystihús Eskifjarðar tilbúið að taka þátt í sam-
einingu við önnur fyrirtæki? „Við erum til viðræðu
um samstarf ef slíkt getur skilað okkur einhverjum
ávinningi. Sameining er aðeins réttlætanleg ef hún
skilar meiru en í er lagt, en ég vil þó taka skýrt fram
að enginn hefur nálgast okkur með slíkar hugmynd-
ir og á meðan eru þær ekki á dagskrá“ segir Elfar.
Álver til hagsbóta
Elfar er kominn aftur á heimaslóðir sínar fyrir austan.
Rær á móti straumnum, en óvíða af landsbyggðinni
hefur verið meiri fólksflótti en einmitt úr Fjarðar-
byggð. „Mér sýnist fólk vera almennt bjartsýnt hér
fyrir austan,“ segir Elfar, sem kveðst meðmæltur því
að reist verði álver fyrir austan. „Frá mínum bæjar-
dyrum séð hefði það góð áhrif á byggðina hér, þó ég
viðurkenni vel að skammtímaáhrif yrðu vafalítið auk-
in samkeppni um vinnuafl. En á hinn bóginn efast ég
ekki um að langtímaáhrif álvers yrðu gríðarleg styrk-
ing og hagsbót fyrir þennan landshluta.“
„Sameining er að-
eins réttlætanleg
ef hún skilar meiru
en í er lagt,“ segir
Elfar.