Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.01.2001, Qupperneq 35

Ægir - 01.01.2001, Qupperneq 35
35 F I S K I R A N N S Ó K N I R við á austanverðu hrygningar- svæðinu 613 skarkola með slöngumerkjum og þar af 62 einnig með rafeindamerkjum (1. mynd) sem skrá reglulega hitastig og dýpi á þeim stað er kolinn heldur sig. Merkt var stuttu fyrir árlegt tveggja vikna veiðibann á svæðinu. Í þessari grein fjöllum við einungis um endurheimtur slöngumerkja og tókum þann kost að sameina merkingarnar 1997 og 1998, þar sem niðurstöð- ur þeirra voru áþekkar. Markmið merkinganna voru m.a. að afla upplýsinga um hvert kolinn haldi eftir hrygningu og hvort hann komi aftur á sömu hrygningarslóð næstu ár. Endurheimtur Fyrsta ár eftir merkingar veiddust 366 merktir skarkolar, eða 28%. Í júlí árið 2000 höfðu 599 kolar fengist aftur, heildarendurheimt- ur því 46%. Flestir kolar veiddust í dragnót (51%) og net (31%, mest kolanet á Flákakanti) og af- gangurinn í botnvörpu (18%). Á 2. mynd sést heildarútbreiðsla endurheimtra merkja skipt eftir veiðarfærum. Göngur skarkola sem merktir voru á Flákakanti Eftir að veiðar hófust í lok apríl, veiddust kolar eingöngu í Breiða- firði, mest nærri merkingarblett- um á Flákakanti (3. mynd, fyrsta ár). Er kom fram í maí fóru þeir að fást norðar í Breiðafirði og einnig norður í Nesdýpi á Vestfjarðamið- um. Um miðjan maí lýkur skar- kolinn í Breiðafirði hrygningu, hann er þá mjög horaður og held- ur strax til fæðuöflunar sem stendur fram á haust. Heimtur merkja frá júní til október benda til að fæðuöflunarsvæði skarkol- ans sem hrygnir í Breiðafirði séu norðanverður Breiðafjörður og Vestfjarðamið, allt norður á Straumnesbanka. Kolinn virðist hins vegar ekki halda suður fyrir Breiðafjörð í fæðuleit. Reynsla sjómanna sýnir að þegar vetra tek- ur dýpkar skarkolinn á sér og það kemur að nokkru fram í endur- heimtum í nóvember til febrúar. Á hrygningartíma í mars og apríl, ári eftir merkingar, fengust langflestir merktir kolar á Fláka- kanti og segja má að þá sé hringn- um lokað (3. mynd, annað ár). Undantekningar eru þrír kolar á Vestfjarðamiðum og tveir vestur af Reykjanesi. Skarkoli sem fékkst á Vestfjarðamiðum snemma í mars hafði ekki hafið hrygningu, annar veiddist í lok apríl og hafði lokið hrygningu. Engar upplýs- ingar fylgdu þriðja kolanum og því er ekki hægt að fullyrða um hvort vera kolanna á Vestfjarða- miðum tengist hrygningu þar. Skarkolarnir sem fengust við Reykjanes eru á þekktu hrygning- arsvæði skarkola og búast má við að þeir hafi leitað þangað til hrygningar. Að hrygningu lok- inni hélt kolinn aftur norður fyrir hrygningarsvæðin í ætisleit og segja má að dreifing endurheimta um sumarið sé endurtekning frá árinu áður. Þriðja árið í röð hrygndi skar- kolinn á Flákakanti, með nokkr- um undantekningum þó (3. mynd, þriðja ár). Einn koli veidd- ist á áðurnefndu hrygningarsvæði við Reykjanes og tveir á hrygn- ingarsvæði skarkola við Þrí- dranga, vestan Vestmannaeyja. Merkingar út af Ólafsvík Þann 4. apríl 1997 merktum við 497 skarkola, langflesta ókyn- þroska, með slöngumerkjum á grunnslóð út af Ólafsvík (á Vík- inni). Næsta ár, þann 3. septem- ber, merktum við á sama svæði 299 skarkola með slöngumerkj- um og þar af 24 einnig með raf- eindamerkjum. Í þessari merk- ingu var tæplega helmingur kola ókynþroska, en rúmur helmingur 2. mynd Skarkolamerkingar á Flákakanti. Heildarendurheimtur frá merkingum til júlí 2000, skipt eftir veiðarfærum Torfi Sigurðsson, Hörður Andrésson, Hjalti Karlsson og Jón Sólmundsson merkja skarkola um borð í Auðbjörgu SH.

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.