Ægir - 01.01.2001, Side 37
37
F I S K I R A N N S Ó K N I R
Göngur skarkola
sem merktir voru
út af Ólafsvík
Fyrsta sumarið og haustið eftir
merkingar fengust merktir kolar
eingöngu í Breiðafirði, langmest á
grunnslóð við norðanvert Snæ-
fellsnes á svæðinu frá Öndverða-
nesi til Grundarfjarðar (5. mynd,
fyrsta ár). Einnig fengust nokkrir
kolar í norðanverðum Breiðafirði.
Samkvæmt sjómönnum gengur
kolinn af grunnslóðinni er vetra
tekur og í samræmi við það feng-
ust merki einkum í utanverðum
Breiðafirði í nóvember til febrúar.
Í byrjun desember veiddust þó
tveir merktir kolar í Faxaflóa.
Eins og komið hefur fram
hrygnir skarkolinn sunnan og
vestan Íslands einkum í mars og
apríl. Endurheimtur á hrygning-
artíma annað ár eftir merkingar
sýna að skarkolinn við norðanvert
Snæfellsnes hrygnir aðallega á
þremur svæðum; á Flákakanti í
Breiðafirði, vestur af Reykjanesi
og vestur af Vestmannaeyjum (5.
mynd, annað ár). Þeir kolar sem
enn voru ókynþroska leituðu
hins vegar aftur á grunnslóðina
þar sem þeir voru merktir ári
áður. Um sumarið, ári eftir merk-
ingu, virðist kolinn nokkuð
dreifður um allt vestanvert landið,
einkum frá Reykjanesi norður fyr-
ir Ísafjarðardjúp, en auk þess
5. mynd. Skarkolamerkingar út af Ólafsvík. Endurheimtur merkja á
mismunandi árstíma í rúm tvö ár eftir að merkt var. Blá stjarna sýnir
merkingastaði og rauðir punktar endurheimtur eins eða fleiri skarkola.
4. mynd. Skarkolamerkingar út af Ólafsvík. Heildarendurheimtur
frá merkingum til júlí 2000, skipt eftir veiðarfærum.