Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.03.2001, Qupperneq 22

Ægir - 01.03.2001, Qupperneq 22
22 R A N N S Ó K N I R með sér meiri forða af sterkju (glykogen) í vöðvum og þar af leiðandi meiri efnivið til fram- leiðslu á mjólkursýru eftir dauða (loftfirrð öndun). Við lágt sýru- stig er hætta á vatnstapi vöðvans og aukin hætta er á losi (Jónas Bjarnason og Sigurjón Arason, 1998). Það er fróðlegt að sjá hvernig pH (sýrustig) endur- speglar ástandið á fiskinum. Þó að marktækur munur á pH gildum sé aðeins á milli K1(100%) og K3(50%) virðist pH breytast línulega með fóðurmagni (mynd 2). Áferðarmæling á hörku á hrá- um fiski (mynd 2) sýnir að harkan er minnst þar sem fiskurinn hefur vaxið best en svo hækka gildin með minnkandi fóðrun. Mark- tækur munur á hörku var á milli K1(100%) og K2(75%) og K1(100%) og K3(50%). Af þess- um niðurstöðum má segja að harka og pH tengist að einhverju leyti. Áhrif fóðurmagns á áferð á hráum og soðnum þorski Áferðarmælingar á hörku á hráum og soðnum þorski sýndu að harka á soðnum þorski minnkaði með minnkandi fóðrunarstigi gagn- stætt hörku á hráu þorskholdi (tafla 2 og mynd 3). Marktækur munur á hörku kom alls staðar fram á milli hópa nema þegar bornir voru saman K2 (75%) og K3 (50%) á soðnum fiski. Í skyn- matinu var eingöngu um áferðar- mat að ræða samanber spurningar til dómara (tafla 3). Það er áhuga- vert að sjá að áferðarmæling með tæki á soðnum fiski samræmist áferðarmati með skynmati. Fiskur í góðu næringarástandi eins og í K1(100%) mælist lægstur í hörku hrár en hæstur í hörku soð- inn. Í skynmati er fiskurinn í K1(100%) marktækt stinnari og K3(50%) marktækt mýkstur. Svo virðist sem áferðarmælingar með tæki gefi nokkuð góða mynd af breytingum sem verða í fiski við mismunandi fæðuframboð. Það er athyglisvert að fiskur í slæmu næringarástandi mælist hæstur í hörku hrár en linastur þegar hann er soðinn. Svelti eða lítið fæðuframboði hefur þau áhrif á þorsk að þegar prótein minnkar í vöðvum fisksins og vatnsinni- hald eykst verður vöðvinn mjúkur og veikbyggður. Til að vega upp á móti þessu þá verður bandvefur- inn sem liggur á milli vöðva- stykkjanna í holdinu mjög sterk- ur (Lavety and Love, 1972). Þetta ástand er mótvægi frá náttúrunn- ar hendi til að forða fiskinum frá því að brotna niður. Þetta ástand kom í ljós í tilrauninni þegar fisk- urinn er búinn að vera lengi á 50% fóðrun. Þá mældist fiskur- inn hár í hörku (sterkur bandvef- ur) hrár, en soðinn er hann með lágt gildi í hörku og dæmdur maukkenndur í skynmati. Það að fiskurinn er linur og maukkennd- ur soðinn kemur sjálfsagt af því að við suðuna brotnar bandvefurinn niður og fiskvöðvinn missir allan stuðning. Athugasemdir sem komu frá skynmatsdómurunum varðandi fiskinn úr K3 (50% fóðrun) voru að fiskurinn væri það maukkenndur að í sumum tilvik- um hefði verið nóg að að ýta tung- unni aðeins í bitann og þá brotn- aði hann niður þ.e. hann hafði ekkert bit. Gildin fyrir samloðun (tafla 2) gætu einnig skýrt það að fiskurinn á minnsta fóðrinu varð maukkenndur soðinn, en samloð- un er mælikvarði á innri tengi sýnisins eða hlutfallslega aflögun áður en sýnið brotnar við bit. Samloðun sýndi marktækan mun Mynd 1. Meðaltal úr prótín og vatnsmælingu á 5 fiskum úr hverjum fóðurhópi. K1= 100% fóðrun, K2=75% fóðrun og K3 = 50% fóðrun Mynd 2. Meðaltal úr áferðarmælingum á hörku (hráum sýnum) og pH mælingum á 5 fiskum úr hverjum fóðurhópi. Sýnataka var strax eftir dauðastirðnun. K1= 100% fóðrun, K2=75% fóðrun og K3 = 50% fóðrun

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.