Ægir

Årgang

Ægir - 01.03.2001, Side 37

Ægir - 01.03.2001, Side 37
37 N Ý J U N G A R „Við fórum út í það árið 1995 þegar lítið var að gera að huga að smíði á búnaði sem gæti þurrkað vettlinga og stígvél og úr varð Loftur. Í upphafi kom þetta verk- efni til vegna óska frá mönnum á togurunum hér á Skagaströnd og búnaðurinn var hannaður í sam- starfi við þá. Síðan hefur búnaður- inn þróast og batnað og núna er hann víða kominn í skip og fisk- vinnslur. Loftur er líka orðinn út- flutningsvara því þurrkarinn hef- ur verið seldur í rækjuvinnslur í Kanada og yfir 20 tæki hafa farið til kaupenda í Noregi,” segir Gísli Snorrason hjá Vélaverkstæði Karls Berndsen á Skagaströnd sem þróað hefur merkilegan og notadrjúgan búnað á undanförn- um árum sem hlotið hefur nafnið Loftur. Loftur er þurrkari sem á er hægt að raða gúmmívettlingum, stíg- vélum, plastskóm eða öðru því sem henta þykir. Innbyggt í tæk- ið er hitakerfi og blásarabúnaður og hægt er að stilla hita á út- blæstrinum. „Þess er vandlega gætt að hitinn á útblæstri geti aldrei orðið svo mikill að hann skemmi vettlinga eða stígvél. Hann er samt það mikill að hægt er að þurrka blauta gúmmívett- linga á 20-30 mínútum,” segir Gísli. Búnaðurinn uppfyllir svokall- aða Evrópustaðla og hefur svokall- aða CE merkingu sem vottar gæði búnaðirns. Det Norske Veritas hefur vottað búnaðinn og segir Gísli mjög mikilsvert að koma tækinu í gegnum svo öfluga síu sem þar er á ferðinni. „Upphaflega litum við á þetta sem tilraunaverkefni en það er ánægjulegt hversu mikið hefur orðið úr þessari tilraun og gaman að geta selt eitthvað af þessu er- lendis. Við erum lítið fyrirtæki og ekki með stórt sölubatterí á bak við okkur en vonandi verður þetta áfram drjúgt hjálparverkefni fyrir okkur,“ segir Gísli. Tilraunaverkefni verkstæðis á Skagaströnd varð að útflutningsvöru: Loftur þurrkar vettlinga og stígvél Þurrkarinn Loftur.

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.