Ægir - 01.03.2001, Blaðsíða 25
25
E R L E N T
Refsivöndur Otto Gregussens, sjávarút-
vegsráðherra Noregs, leggur niður 35
störf í Romsdal. Sigmund Finnøy, út-
gerðarmaður, hættir við að láta smíða
nýjan bát og selur þess í stað báða neta-
báta sína eftir að bátur hans, Synsrand,
var í refsingarskyni settur í 17 vikna
veiðibann. Frá þessu er sagt í norska blað-
inu Fiskaren.
„Þetta er pólitísk ákvörðun sem fyllir
mælinn hérna. Ég er orðinn algjörleg
sammála Svíum sem segja að Noregur sé
síðasta sovétríkið,“ segir Sigmund
Finnøy.
Refsað fyrir mikinn afla
Þegar skipstjóri hefur gert mistök sem
hann hefur viðurkennt og stjórnmála-
mennirnir refsa honum harðar en dóm-
stólar hefðu gert þá segir það mér að
réttaröryggi fiskimanna sé horfið. Ég vil
hvorki taka þátt í þessu sjálfur né ráða
öðrum að gera það,“ segir Finnøy.
Synsrand fékk metafla í Barentshafi og
landaði átján tonnum af hausuðum þorski
umfram kvóta án þess að skráð væri í
veiðidagbók. Synsrand átti að fá úthlutað
þorskvóta sem næmi umframveiðinni.
Kvótinn kom reyndar en það gerðu yfir-
völdin líka, lögðu hald á tonnin átján og
bönnuðu Synsrand veiðar í 17 vikur frá
mánudeginum 11. febrúar að telja.
35 störf í heimabyggð
„Ég er að verða sextugur og get bráðum
farið á eftirlaun svo það er þannig séð
ekki slæmt fyrir mig að þurfa að gefast
upp. Öðru máli gegnir um þá 35 sem
missa vinnuna hérna. Ég sé engan tilgang
í að halda útgerðinni áfram eftir þetta,“
segir Finnøy bitur eftir að hafa stundað
sjóinn frá 16 ára aldri.
Netabátarnir Synsrand og Vonar verða
nú settir á söluskrá. Útgerðin Finnøy
Fiskeriselskap hefur fengið leyfi til að láta
smíða nýjan 45 metra langan bát sem átti
að koma í stað netabátanna tveggja.
Reyndar átti n_i báturinn ekki að fá að
n_ta ufsakvótann af Vonar. Yfirvöld gáfu
þá skýringu að ekki væri hægt að sundra
ufsakvótanum, en útgerðin taldi sig vera
að sameina kvótann en alls ekki sundra
honum.
Áfrýjun til einskis
Sigmund Finnøy hristir höfuðið þegar
talað er um aðgerðir yfirvalda.
„Við höfum ekki efni á því að láta
smíða bát sem tekur frá okkur nokkrar
milljónir árlega vegna þess að við missum
ufsakvótann. Ráðuneyti og Fiskistofa
kasta boltanum milli sín meðan við sitj-
um ráðþrota og horfum á. Ég er búinn að
fá mig fullsaddan af slíkri stjórnun,“ seg-
ir Finnøy.
Lögmaður Sigmunds Finnøy, Svein
Tømmerdal, mun fyrir hönd útgerðar-
innar áfrýja 17 vikna veiðibanninu á
Synsrand en Finnøy telur að það muni
koma fyrir eitt.
Fiskveiðistefna norskra
stjórnvalda lamar útgerð