Ægir - 01.03.2001, Qupperneq 46
Fossá ÞH er 290 brúttótonn að
stærð og er rými í lestum fyrir
100 tonn af skel. Íbúðir eru í
skipinu fyrir átta manns en gert er
ráð fyrir fimm skipverjum á skel-
veiðunum. Áhafnarklefar eru þrír,
þ.e. eins, þriggja og fjögurra
manna. Við veiðar skipsins er not-
aður háþrýstiplógur og sérhönnuð
plógdæla. Þessi búnaður afkastar
um 160 rúmmetrum á klukku-
stund.
Fossá er 38 metrar að lengd og
9,40 metrar að breidd. Lengd
milli lóðlína er 35,5 metrar og
dýpt að aðalþilfari 3,5 metrar.
Skipið er tæplega 300 tonn að
stærð.
Aðalvél skipsins er af gerðinni
Caterpillar 3512B. Hún er
738kw við 900 sn/mín, búin for-
þjöppu og eftirkæli. Framan við
aðalvél er gír með 3X 200 kw út-
tökum við 1350 sn/mín, auk kúp-
lingar. Niðurfærslugír er aftan við
aðalvél með kúplingu fyrir
skrúfuöxul, afturábak og áfram
gír. Niðurfærslan er 5.136:1.
Föst skrúfa er á skipinu 2000
mm í þvermál. Bógskrúfa er
vökvadrifin 150 Hp með 0.8 m
skrúfu í þvermál. Stýrisvél er af
Rolls Roys gerð 3tm. Tvær ljósa-
vélar eru um borð, báðar af gerð-
inni 6BT 5,9-G2 90 kVA hvor
við 1500 snúninga.
Plógdæla skipsins er af gerðinni
Fairbanks Morse 12“ DN
300/350mm 1600m3/h með 10
bar þrýsting við 1800 sn/mín. Við
veiðarnar eru notaðar tvær vindur
við skelplóginn og eru þær 24
tonna. Að auki eru þrjár
Pullmaster hjálparvindur, tvö
tonn að stærð hvor. Frá brú skips-
ins er flestum vindum og dælum
skipsins stjórnað.
Dekkkrani er frá Palfinger, sem
Atlas hefur umboð fyrir, og er
hann 4,6 tonn/m miðað við átta
metra bómulengd. Sjódæla fyrir
lestar og sjó á dekk er Fairbanks
Morse 5“ DN 125/150mm
200m3/h með 6 bar þrýsting við
1800 sn/mín.
Dekkkrani skipsins er 4,6
tonna vökvakrani af gerðinni Pal-
finger PK 5000 frá Atlas hf.Tvær
loftpressur eru um borð og eru af
gerðinni Atlas Copco og skila
40m3/h hvor við 8bar.
Olíugeymir skipsins er 90
rúmmetrar að stærð og
ferskvatnsgeymir tekur 15
rúmmetra.
Loftræsting fyrir íbúðir er frá
Unitor 1800m3/h með 2X5kW
rafmagns elementum.
Miðstöðvar hitakerfi er einnig í
skipinu sem hitað er upp með
vatni frá aðalvél og einnig með
rafmagnselementum.
Í brú Fossár er að finna hefð-
bundinn búnað til siglinga, fiski-
leitar og fjarskipta. Um er að ræða
tvær ratsjár af gerðinni Furuno
FR 7062, tvo dýptarmæla frá
Furuno og Furuno veðurkortarit-
ara. Öll koma þessi tæki frá Brim-
rún hf. Seguláttaviti skipsins er af
gerðinni Gillie, GPS tæki er frá
Northstar og Furuno og MaxSea
stjórntölva frá Radíómiðun.
Fyrir heimkomu skipsins var
það málað með International
skipamálningu frá Hörpu hf.
46
S K I P A S T Ó L L I N N
Óskum útgerð og áhöfn
til hamingju með nýja skipið
Stórhöfða 44, Reykjavík. Sími 567 4400. Fax 567 4410
Umboðsaðilar INTERNATIONAL PAINT á Íslandi. www.harpa.is ww
w
.a
th
yg
li.
is
Tímariti› í
sjávarútveginum
Áskriftarsími 461 5151