Ægir - 01.03.2001, Qupperneq 13
13
F R É T T I R
„Því er ekki að leyna að skipasmíðaiðnað-
urinn hér innanlands er nokkuð erfiður.
Menn hafa verið með undirboð og í raun
farið alltof lágt í verðum,“ segir Sævar
Harðarson, framkvæmdastjóri skipa-
smíðastöðvarinnar Skipavíkur hf. í
Stykkishólmi.
Skipavík er fyrst og fremst í viðhalds-
verkefnum - hefðbundnum slipptökum.
Á þessum tíma árs er frekar lítið að gera í
slipptökum, en þegar sól hækkar á lofti
lifnar yfir og sumarið er sá tími þegar vit-
laust er að gera. „Það má segja að frá vor-
mánuðum og fram í september er nóg að
gera hér,“ sagði Sævar. Hann sagði að
þeir Skipavíkurmenn hafi verið varfærnir
í að bjóða í viðhaldsverkefni, enda séu
menn að fara alltof neðarlega í verðum og
fyrir vikið sé ágóði fyrirtækjanna lítill
þegar reikningsdæmið sé gert upp. Í
þessum efnum sagði Sævar að þyrfti í
raun hugarfarsbreytingu manna í skipa-
smíðaiðnaðinum.
Til þess að breikka rekstur Skipavíkur
hf. hefur fyrirtækið á undanförnum árum
einnig teygt sig yfir á önnur svið. Þannig
er Skipavík orðin stór byggingaverktaki
og má ætla að sá þáttur sé ívíð viðameiri
í rekstri fyrirtækisins en viðhald skipa.
Þessar vikurnar er Skipavík með stórt
verkefni við stækkun álversins á Grund-
artanga, sem felst í því að setja niður ál-
leiðara fyrir nýja potta í álverinu. Að
þessu verki, sem hófst í janúar síðastliðn-
um og lýkur vart fyrr en í byrjun júní,
koma um tuttugu starfsmenn Skipavík-
ur.
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins
Rf rekur öfluga
fræðslustarfsemi.
Námskeið, skýrslur,
pistlar, handbækur og
margt, margt fleira.
Faggiltar mælingar
fyrir matvælaiðnaðinn.
Mælingar á sviði
örveru-, efna- og
snefilefna.
Grunnrannsóknir
Samvinna við
fyrirtæki og stofnanir.
Úttekt á þrifum
Athugun á geymsluþoli
Skynmat
Umhverfisvöktun
Úttekt á vinnslurásum
Ráðgjöf
Skúlagata 4, Pósthólf 1405, 121 Reykjavík, Sími: 562 0240, Fax: 562 0740
Netfang: info@rf.is, Heimasíða: http://www.rf.is
http://www.rf.is
Rannsóknir
Mælingar
Fræðsla
Kí
ktu
á
n
ýja
he
im
as
íð
u
Rf
.
Skaginn hf. á Akranesi hefur keypt tvö
fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu, annars
vegar Íshrein í Kópavogi og hins vegar
meirihlutann í IceTech í Garðabæ. Með
þessum kaupum segir Þorgeir Jósefsson,
framkvæmdastjóri Skagans hf., að verið
sé að breikka grunn fyrirtækisins og fara
inn á nýjar brautir, sem þó tengjast þeirri
starfsemi sem fyrir er hjá Skaganum.
Skaginn hf. kaupir Íshrein ehf. af Olís
sem átti fyrirtækið að fullu. Í raun fela
þessi viðskipti í sér skipti á hlutabréfum
því Olís eignast þar með 17,5% í Skagan-
um. IceTech var áður að stærstum hluta í
eigu Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins og
Eignarhaldsfélagsins Alþýðubankinn hf.
(EFA). Þorgeir Jósefsson segir að ætlunin
sé að flytja starfsemi Íshreins í Garðabæ
og fyrirtækin hafi þar starfsstöð undir
einu þaki.
Íshreinn hefur meðal annars verið að
framleiða háþrýst þvottakerfi með sjálf-
virkri sápublöndun undir vörumerkinu
„IceClean“ til notkunar í matvælaiðnaði.
IceTech hefur meðal annars verið í hönn-
un og framleiðslu á krapaískerfum, ísvél-
um og saltsprautuvélum ásamt hrað-
pökkunarkerfum fyrir uppsjávarfiska.
Þorgeir Jósefsson segir að framleiðsla
fyrirtækjanna tveggja annars vegar og
Skagans hins vegar skarist lítið og kaup á
þessum fyrirtækjum þýði í raun umtals-
verða breikkun á vörulínu Skagans hf. Þorgeir Jósefsson, framkvæmdastjóri
Skagans hf.
Skaginn hf. á Akranesi:
Kaupir Íshrein
og IceTech á Íslandi
Skipasmíðaiðnaðurinn:
Of mikil undirboð
- segir framkvæmdastjóri Skipavíkur hf.