Ægir

Árgangur

Ægir - 01.03.2001, Blaðsíða 30

Ægir - 01.03.2001, Blaðsíða 30
30 K Ú F I S K V E I Ð A R Guðrún G. Þórarins- dóttir, doktor í sjávar- vistfræði á Hafrann- sóknastofnun, þekkir bærilega vel til atferl- is kúskelja, enda hef- ur hún rannsakað kúskelina, eða kúf- skelina eins og hún segist oftast kalla hana, síðustu ár. Ýmsu hefur verið safnað í visku- skjóðuna um kúskelina, þetta „af- skaplega merkilega fyrirbæri“, eins og Guðrún lýsir henni, en margt er óljóst og því eru frekari rannsóknir nauðsynlegar. Rannsóknir Hafró á kúskel Rannsóknir á kúskel eiga sér ekki ýkja langa sögu hér á landi. Árið 1964 kannaði Unnur Skúladóttir á Hafró efnainnihald kúskelja á mismunandi árstímum. Rúmum áratug síðar voru svæði könnuð á Faxaflóa og úti fyrir Austfjörðum. Árið 1987 var þráðurinn tekinn upp að nýju, er útbreiðsla og stofnstærð kúskelja í Breiðafirði, Faxaflóa og við Suðausturland var könnuð. Árið 1994 hófust aftur rann- sóknir á kúskel á vegum Hafrann- sóknastofnunar við Norðvestur-, Norður- og Austurland og var markmið þeirra að kortleggja út- breiðslu skeljarinnar og stofn- stærð. Einnig voru könnuð tengsl stærðar og aldurs við kynþroska. Þyngstu og stærstu skeljarnar fundust fyrir Norðvesturlandi og mældust þær 75 mm og 126 g og var kúskeljastofninn við Norð- vestur-, Norður- og Austurland áætlaður á fjórða hundrað þúsund tonn. Út frá rannsóknum á Breiðafirði og suðausturmiðum árið 1987 var stofnstærðin á þeim svæðum áætluð um fimm hundr- uð þúsund tonn. Ætlar í rannsóknaróðra með Fossánni Það er ljóst að margt áhugavert í atferli kúskeljar þarf að rannsaka betur og því hyggst Guðrún G. Þórarinsdóttir bregða sér í sjógall- Veiðar á kúskel: Við verðum að nýta þennan stofn af skynsemi - segir dr. Guðrún G. Þórarinsdóttir á Hafrannsóknastofnun Guðrún G. Þórarinsdóttir segir að aldur kúskeljarinnar sé kapítuli út af fyrir sig. Hún geti orðið yfir tvö hundruð ára gömul og sé þannig í hópi langlífustu dýrategunda jarðarinnar. M yn d: S ve rr ir J ón ss on

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.