Ægir - 01.04.2002, Síða 20
20
F R É T T I R
Sæplast hf. á Dalvík ásamt
nokkrum öðrum íslenskum fyrir-
tækjum hóf fyrir þremur árum
samstarf um þróun á einskonar
örflögum eða tölvuupplýs-
ingakubbum til þess að fella inn í
kerin frá Sæplasti.
„Við erum byrjaðir að framleiða
ker með þessum flögum í og
framundan er frekari vinna við að
þróa hugbúnaðinn,“ sagði Þórir
Matthíasson, sölustjóri hjá
Sæplasti. „Við getum í raun sett
flögurnar hvar sem er í kerin, það
fer lítið fyrir þeim, bætti hann
við. „Það er vert að taka fram að
þetta er ekki ný tækni, hún hefur
verið þekkt lengi. Hins vegar
hafa flögurnar ekki áður verið
notaðar með þessum hætti og
þetta er í fyrsta skipti sem þessari
tækni er beitt í fiskiðnaði hér á
landi eftir því sem við best vit-
um. Það er mikill áhugi fyrir
þessari tækni hjá kaupendum
okkar hér á landi og í Evrópu og
þeir hafa lýst vilja til þess að
kaupa ker með annað hvort flög-
unum í, eða með sætum þar sem
hægt er að setja flögurnar í á síð-
ari stigum,“ sagði Þórir Matthías-
son.
Tilraunaverkefni í
Hegranesi SK-2
Þetta þróunarverkefni komst á
nýtt stig á síðasta ári þegar Fisk-
iðjan Skagfirðingur á Sauðárkróki
ákvað að reyna þessa tækni um
borð í Hegranesi SK-2, ísfisktog-
ara fyrirtækisins. Í Hegranesinu
eru 460 lítra Sæplast ker með áð-
urnefndum örflögum. Gísli Svan
Einarsson, útgerðarstjóri Fiskiðj-
unnar-Skagfirðings, segir að í
kjölfar þess að stærðarflokkari frá
Marel hafi verið settur um borð í
Hegranesið í maí 2001, hafi verið
unnt að reyna þennan nýja flögu-
búnað um borð. Gísli Svan segir
að hver flaga hafi ákveðið númer
og hún veiti upplýsingar um
þann fisk sem er í viðkomandi
keri; t.d. fisktegund, veiðislóð,
veiðitíma og stærðarflokk á fisk-
inum.
Sérstakur aflestrarbúnaður frá
Maritech les þessar upplýsingar af
örflögunum og þær eru síðan
sendar í tölvupósti á hverjum
morgni til útgerðar- og vinnslu-
stjóra í landi.
„Að mínu mati hefur flokkun á
fiskinum og utanumhald um
stærðardreifingu hans gengið
mjög vel með þessari tækni.
Ákveðin vandamál hafa hins veg-
ar komið upp varðandi útfærslu á
þeirri tækni sem notuð er til að
lesa upplýsingarnar af flögunum í
kerjunum niðri í lest skipsins. Ég
vænti þess að á því finnist lausn.
En þegar á heildina er litið er hér
um að ræða athyglisverða tækni-
lausn sem ég bind vonir við að
muni leysa úr vandamáli sem
menn hafa verið að reyna árum
saman að finna lausn á,“ segir
Gísli Svan Einarsson.
Þróunarverkefni íslenskra fyrirtækja varðandi rekjanleika sjávarafurða:
„Flöguker“ um borð
í Hegranesi SK-2
Þórir Matthíasson, sölu-
stjóri hjá Sæplasti hf.,
við „flöguker“. Flagan er
í gula plasthylkinu á
hliðinni.
Rekjanleiki sjávarafurða frá veiðum úti á sjó
og á borð neytandans er farinn að skipta æ
meira máli og þeir sem til þekkja segja að kröf-
urnar um rekjanleika eigi eftir að aukast veru-
lega á næstu árum. Hér á landi hafa menn ver-
ið að þróa ýmsar leiðir til þess að standast vax-
andi kröfur um rekjanleika og m.a. hafa nokk-
ur fyrirtæki sameinast um athyglisvert til-
raunaverkefni á þessu sviði. Verkefninu er ekki
lokið, en það lofar mjög góðu.