Ægir - 01.04.2002, Side 25
Fyrir liggja niðurstöður rann-
sóknar nokkurra sérfræðinga á
Heyrnar- og talmeinastöð Íslands
um heyrn vélstjóra, en forvitni-
legt þótti að rannsaka hvort
marktækur munur væri á heyrn
eldri og yngri vélstjóra. Að rann-
sókninni var unnið í samstarfi við
Vélstjórafélag Íslands.
Í samantekt Friðriks Rúnars
Guðmundssonar, heyrnar- og tal-
meinafræðings, kemur fram að til
rannsóknarinnar hafi verið valdir
af handahófi 212 félagsmenn, á
aldrinum 20 - 80 ára, búsettir á
svæðinu frá Sandgerði til Akra-
ness. Af þeim 212 félagsmönnum
sem völdust í úrtakið voru 23
fluttir af svæðinu, voru erlendis
eða á sjó og gátu því ekki mætt á
þeim tíma sem rannsóknin stóð
yfir. Í nýtilegu úrtaki voru því
189 einstaklingar, af þeim skil-
uðu sér 85,7%. Af þessum hópi
voru 6 einstaklingar sem voru
með eftirstöðvar annarra eyrna-
sjúkdóma en hávaðaskemmd og
voru því ekki með í útreikningn-
um.
„...hljóta að valda
vonbrigðum“
Nánast undantekningarlaust
sýndu þátttakendur þakklæti og
ánægju með þetta framtak og
mikla jákvæðni. Aðeins tveir
lýstu óánægju sinni með rann-
sóknina og vildu ekki taka þátt í
henni. Rannsóknin fólst í því að
kanna hvort heyrn yngri vélstjóra
á þessu tilgreinda tíðnisviði væri
ekki örugglega betri en hinna
eldri. Vonast var til að með rann-
sókninni fengist fram sönnun þess
að yngri vélstjórar notuðu alfarið
heyrnarhlífar sem skilaði þeim
marktækt betri heyrn. Það kom
hins vegar ekki á daginn, sem
kom sérfræðingunum verulega á
óvart í ljósi þess að yngri vélstjór-
ar (20-40 ára) hafi haft möguleika
á því að nota sér heyrnarhlífar all-
an sinn starfsaldur. „Almennt
hefur verið talið að vélstjórar noti
heyrnarhlífar samviskusamlega í
störfum sínum svo þessar niður-
stöður rannsóknarinnar koma
mjög á óvart og hljóta að vera
vonbrigði,“ segir Friðrik Rúnar
Guðmundsson, heyrnar- og tal-
meinafræðingur á Heyrnar- og
talmeinastöð Íslands, í samantekt
sinni um rannsóknina.
25
F R É T T I R
Heyrn vélstjóra rannsökuð