Ægir - 01.04.2002, Blaðsíða 34
34
Þ O R S K E L D I
Eins og Ægir hefur áður greint
frá er greinilega vaxandi áhugi á
uppbyggingu þorskeldis hér á
landi og nokkur sjávarútvegsfyr-
irtæki hafa verið að taka athyglis-
verð skref í þeim efnum. Íslend-
ingar hafa horft töluvert til Nor-
egs í þessum efnum en þar er gert
ráð fyrir að framleiða um 50
milljónir þorskseiða árið 2005 og
framleiðsla á eldisþorski verði allt
að 150 þúsund tonnum árið
2007.
Samdráttur í veiði
á villtum þorski
Ljóst er að veiðar á þorski í Atl-
antshafi hafa dregist saman um
rúma eina milljón tonna á undan-
förnum tuttugu árum, úr rúmum
tveimur milljónum tonna árið
1980 í eina milljón tonna árið
2000. Því horfa menn til þess að
aukning í framleiðslu á fiski komi
frá fiskeldi og þess vegna horfir
þróuð fiskeldisþjóð eins og Norð-
menn til þess að stórauka eldi á
þorski. „Með ört vaxandi áhuga á
þorskeldi í nágrannalöndunum,
sérstaklega í Noregi ber Íslend-
ingum skylda til að skoða til hlít-
ar hvort eldi á þorski geti orðið
arðbær atvinnugrein hér á landi,“
segir Ólafur Halldórsson í skýrslu
sinni til sjávarútvegsráðherra.
Í skýrslu Ólafs eru dregnar
saman ýmsar upplýsingar um
þorskeldi í heiminum og mögu-
leika þess hér á landi. Ólafur set-
ur fram ákveðnar tillögur um
hvernig rétt sé að standa að mál-
um hér og þar eru margar athygl-
isverðar tillögur. Skoðum þær
nánar.
Hugmyndir Ólafs
• Lagt er til að Hafrannsókna-
stofnunin og Stofnfiskur hf.
hefji sem fyrst og í sameiningu
undirbúning að gerð kynbótaá-
ætlunar fyrir eldisþorsk. Að-
stöðu fyrir þetta verkefni verði
komið á fót í endurbættri að-
stöðu Hafrannsóknastofnunar-
innar á Stað við Grindavík.
• Lagt er til að þorskseiði verði
framleidd með „intensivum“
aðferðum og sérstaklega verði
litið til framleiðsluaðferða gull-
brama (sea-bream). Horft verði
til reynslu Hafró, Fiskeldis
Eyjafjarðar hf. og erlenda fyrir-
tækisins Okeanos Ltd við upp-
byggingu seiðaeldis hér á landi.
Kostnaður við seiðaeldisstöð,
sem myndi framleiða allt að tíu
milljónum 5 g seiða, er áætlað-
ur 500 milljónir króna.
• Til að stytta eldisferilinn er lagt
til að 5 g seiði verði flutt í sér-
stakar seiðaeldisstöðvar og þau
alin í 200-300 g áður en þau
eru sett í sjókvíar.
• Gert er ráð fyrir að sérstakt fyr-
irtæki, sem yrði í eigu einkafyr-
irtækja með aðkomu opinberra
aðila, annist seiðaframleiðsluna.
Íslendingar skoði til hlítar
möguleika í þorskeldi
- er mat Ólafs Halldórssonar sem tók saman skýrslu um þorskeldi fyrir sjávarútvegsráðherra
Þann 19. apríl síðastliðinn kynnti sjávarútvegsráðherra í ríkisstjórn
skýrslu um þorskeldi á Íslandi þar sem settar eru fram hugmyndir að
uppbyggingu þessarar atvinnugreinar á næstu árum. Skýrsluna vann
Ólafur Halldórsson, fiskifræðingur og fyrrverandi framkvæmdastjóri
Fiskeldis Eyjafjarðar.
Ólafur Halldórsson, skýrsluhöfundur.
Þorskseiði í seiðastöð Út-
gerðarfélags Akureyringa
hf. á Hauganesi við Eyja-
fjörð. Seiðin verða sett út í
kvíar í sumar.