Ægir - 01.01.2003, Side 5
Allt í stáli á Ísafirði
3X-Stál á Ísafirði er alþjóðlegt fyrirtæki sem sérhæfir sig í
framleiðslu á vélbúnaði fyrir hérlend og erlend sjávarút-
vegsfyrirtæki. Lögð er áhersla á framleiðslu vélbúnaðar úr
ryðfríu stáli. Fyrirtækið er ekki nema tæplega tíu ára
gamalt, en þrátt fyrir það hafa þeir 3X-Stál menn náð afar góðum árangri, jafnt innanlands
sem erlendis. Bróðurpartur framleiðslunnar er raunar fyrir erlendan markað, nýverið gerði
fyrirtækið m.a. stóran samning um hönnun og smíði búnaðar fyrir rækjuvinnslur á Ný-
fundnalandi. Ægir sótti 3X-Stál heim og kynnti sér starfsemina.
Öryggi sjófarenda er eilífðar verkefni
„Því miður er það svo að við merkjum aukinn áhuga sjófarenda á
öryggismálunum í kjölfar alvarlegra sjóslysa. Það viljum við hins
vegar síður upplifa. Við viljum að menn sýni öryggismálunum
alltaf jafn mikinn áhuga og ekki þurfi alvarleg slys til þess að
vekja þá til umhugsunar um hvað betur megi fara,“ segir Hilmar
Snorrason, skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna, í athyglisverðu
viðtali um starfsemi skólans og öryggismál sjómanna.
Endurmenntun sjómanna og vélstjóra
Sjómenn og vélstjórar eiga rétt á endurmenntun og um hana hefur verið myndaður ákveðinn
rammi sem Ægir kynnti sér bæði hjá Vélstjórafélagi Íslands og Sjómannasambandi Íslands.
Tvær nýjar fisktegundir á Íslandsmiðum
Á síðasta ári veiddust tvær áður óþekktar fisktegundir á Íslands-
miðum - oddhali, Lionurus carapinus sem veiddist í september
á 1691-1712 m dýpi djúpt suður af Stokksnesi og pálsfiskur, Zen-
opsis conchifera sem veiddist í apríl á Sandvík norðan Reykja-
ness. Gunnar Jónsson og Jónbjörn Pálsson á Hafró skrifa athygl-
isverða grein um furðufiska.
Baldvin EA - lengsta skip flotans
Baldvin EA-10, fjölveiðiskip Samherja hf., er komið á
loðnuveiðar. Skipið var lengt úti í Lettlandi á síðasta ári og
hefur breyst ansi mikið frá því að það kom til Ísafjarðar á
sínum tíma undir nafninu Guðbjörg ÍS. Jón Sigurðsson
kynnti sér breytingar á skipinu.
Ólafur í Tromsö
Ólafur Halldórsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Fiskeldis Eyja-
fjarðar, stýrir nú fiskeldisfyrirtækinu Troms Marine Yngel í Tromsö
í Noregi, sem ætlar að veðja á þorskeldi í framtíðinni. Þessa dag-
ana er verið að byggja upp fullkomna þorskseiðaeldisstöð í Trom-
sö sem kostar um 65 milljónir norskra króna, eða um 750 milljón-
ir íslenskra króna. Stöðin er samtals um 4000 fermetrar að flatar-
máli.
Í B L A Ð I N U
Útgefandi: Athygli ehf.
ISSN 0001-9038
Ritstjórn: Athygli ehf.
Hafnarstræti 82, Akureyri
Sími 461-5151
Bréfasími 461-5159
Ritstjóri: Jóhann Ólafur Halldórsson (ábm.)
Auglýsingar: Athygli ehf.
Suðurlandsbraut 14, Reykjavík,
Sími 515-5200,
Bréfasími 515-5201
Auglýsingastjóri:
Inga Ágústsdóttir
Sími 515-5206
GSM 898-8022
Hönnun & umbrot:
Athygli ehf.
Suðurlandsbraut 14, Reykjavík,
Sími 515-5200,
Bréfasími 515-5201
π
Prentun: Gutenberg ehf.
Áskrift: Ársáskrift Ægis árið 2003
kostar 6600 kr.
Áskriftarsímar 515-5200 & 515-5207
Forsíðumyndina tók Halldór Sveinbjörnsson á Ísa-
firði af hluta starfsmanna 3X-Stáls á Ísafirði. Í for-
grunni eru eigendur fyrirtækisins - Jóhann Jónsson
(t.v.) og Albert M. Högnason.
ÆGIR kemur út 11 sinnum á ári. Eftirprentun og
ívitnun er heimil, sé heimildar getið.
28
20
24
38
14
46