Ægir - 01.01.2003, Side 14
14
Öryggismálafundir með sjó-
mönnum
Hilmar segir að því stefnt í vetur
að hálfu Slysavarnafélagsins
Landsbjargar, að fara um landið
og efna til öryggismálafunda með
sjómönnum. „Við erum því með
ýmislegt á prjónunum til þess að
fá sjómenn til þess að hugsa um
öryggismál. Staðreyndin er sú að
annað slagið kemur lægð í þessi
mál og því þarf stöðugt að minna
menn á. Sjóslys eru einfaldlega of
mörg og við þurfum reglulega að
minna menn á þessa hluti og
vekja þá til umhugsunar. Því
miður er það svo að við merkjum
aukinn áhuga sjófarenda á örygg-
ismálunum í kjölfar alvarlegra
sjóslysa. Það viljum við hins veg-
ar síður upplifa. Við viljum að
menn sýni öryggismálunum alltaf
jafn mikinn áhuga og ekki þurfi
alvarleg slys til þess að vekja þá
til umhugsunar um hvað betur
megi fara,“ segir Hilmar
Stórt skref tekið með lang-
tímaáætlun í öryggismálum
sjómanna
Sem betur fer segir Hilmar að al-
mennt sýni útgerðir öryggismál-
unum mikinn áhuga. „Sérstak-
lega finnst mér stærri útgerðir
sýna vilja til þess að hafa þessa
hluti í lagi. Ef útgerðir sýna ör-
yggismálunum ekki nægilega
mikinn áhuga er vart von til þess
að sjómenn hjá viðkomandi út-
gerðum geri það frekar. Þetta
verður því að haldast í hendur til
þess að viðunandi árangur náist.
Ég hef oft sagt að ef ég ætti tog-
ara sem kostaði einn og hálfan
milljarð króna, þá vildi ég hafa
fullvissu fyrir því að áhöfn hans
kynni að bregðast rétt við ef eitt-
hvað óvænt gerðist úti á sjó.“
Hilmar Snorrason, skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna:
Minn stóri draumur er
að ekkert slys verði til sjós
„Eftir áramótin fórum við af fullum krafti í svokölluð framhaldsnám-
skeið. Lögum samkvæmt er sjómönnum skylt að sækja sér endur-
menntun, ekki sjaldnar en á fimm ára fresti. Þetta er nýmæli sem vert
er að ítreka við sjómenn. Um er að ræða upprifjunarnámskeið þar sem
áhersla er lögð á verklegar æfingar - eldvarnir, skyndihjálp og sjóbjörg-
un. Rauði þráðurinn í kennslunni er sú skylda sem hvílir á sjómönnum
að efna til æfinga um borð í skipunum. Á öryggismálaráðstefnu sjó-
manna sl. haust var þemað að auka öryggi sjófarenda með æfingum um
borð í skipunum og á það leggjum við líka áherslu í endurmenntun-
inni,“ segir Hilmar Snorrason hjá Slysavarnaskóla sjómanna.
Sjómenn þurfa að hafa ým-
islegt á hreinu varðandi ör-
yggismálin, m.a. hvað varð-
ar notkun á neyðarblysum.