Ægir - 01.01.2003, Side 15
15
S LY S AVA R N I R S J Ó M A N N A
Hilmar segir að tvímælalaust
hafi stórt skref verið tekið með
langtímaáætlun um öryggismál
sjómanna, sem samgönguráðherra
hafði forgöngu um að hrinda í
framkvæmd. „Þetta verkefni er í
fullum gangi, m.a. er verið að
leggja lokahönd á ellefu ný
myndbönd um öryggismál sjófar-
enda sem verður dreift til þeirra
um allt land, endurgjaldslaust.
Því til viðbótar verður fjöldi eldri
myndbanda um öryggismál end-
urútgefinn. Að mínu mati er
þetta mjög gott skref og til fyrir-
myndar. Sömuleiðis hafa verið
gerðir fimm bæklingar um ýmis
öryggisatriði sem dreift hefur ver-
ið til sjómanna auk þess sem fleiri
bæklingar eru í vinnslu. Ég get
líka nefnt að unnið hefur verið að
þýðingu lækningahandbókar, til
þess að hafa um borð í skipum og
bátum. Margt fleira er á döfinni í
langtímaáætluninni sem ekki
verður upptalið hér en ég hvet
sjómenn til að fylgjast vel með
þróun og afurðum áætlunarinn-
ar.“
Verðugt verkefni að fækka
sjóslysum
„Ég tel það afar mikilvægt skref
að langtímaáætlun í öryggismál-
um sjómanna verður hluti af sam-
gönguætlun til ársins 2014. Í
mínum huga er því ljóst að þessu
verkefni verður haldið áfram
næstu ár, sem er vel. Það er vissu-
lega stórt og verðugt verkefni að
stemma stigu við sjóslysum og
því miður er það svo að á milli ár-
anna 2001 og 2002 fjölgaði til-
kynningum um sjóslys. Þetta gef-
ur vísbendingu um að við þurfum
að halda vöku okkar og vera
stöðugt að miðla upplýsingum
um öryggismál sjófarenda.“
Mikilvægt að viðhalda þekk-
ingu og þjálfun skipverja
Um nokkurt skeið hefur verið
unnið að gerð sérstaks öryggis-
stjórnunarkerfis fyrir fiskiskip.
Kerfið er nú þegar komið í nokk-
ur skip og lofar góðu, að sögn
Hilmars.
Öryggisstjórnunarkerfið tekur
til reksturs skipsins og áhafnar -
kerfinu er ætlað að tryggja sem
best öryggi skipa á siglingu og að
veiðum og öryggi skipverja við
störf og viðveru um borð. Þá er
kerfinu ætlað að koma í veg fyrir
eða fækka áhættuþáttum með fyr-
irbyggjandi aðgerðum, viðhalda
Hilmar Snorrason, skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna. Myndir: Sverrir Jónsson.
Stund milli stríða á eldvarnaæfingu.