Ægir - 01.01.2003, Side 16
16
S LY S AVA R N I R S J Ó M A N N A
hæfni og kunnáttu skipverja,
góðu ástandi skipsins, búnaðarins
og tækja. Þá þarf að tryggja að
allir skipverjar bregðist rétt við
hættu og neyðarástandi og fari
eftir gildandi lögum og reglum.
Mikilvægur þáttur í öryggis-
stjórnunarkerfinu er svokölluð ör-
yggishandbók þar sem áhersla er
lögð á skipulagða fræðslu og
þjálfun áhafnar, eftirlit með ör-
yggisþáttum og úttektir. Jafn-
framt er gert ráð fyrir að skipverj-
ar hafi aðgang að handbók þar
sem fram komi upplýsingar um
öryggismálin, vinnureglur og
slysahættu. Í bókinni verði einnig
fræðsla, þjálfun og ýmiskonar æf-
ingar og annað það efni sem gæti
gagnast áhöfninni.
Hvatt til þess að taka upp ör-
yggisstjórnunarkerfi
Fyrir lok þessa árs stefnir Þor-
björn-Fiskanes í Grindavík að því
að taka upp slíkt öryggisstjórn-
unarkerfi í öllum skipum félags-
ins. Búast má við að kerfið verði
tekið upp í mun fleiri fiskiskip-
um og ekki kæmi á óvart að inn-
an einhverra ára yrði gerð krafa
um slíkt kerfi.
„Það er von mín að þetta ör-
yggisstjórnunarkerfi verði tekið
upp í miklu fleiri skipum en hjá
Þorbirni-Fiskanesi, því ég tel að
það sé til þess fallið að fá menn til
þess að hugsa öðruvísi um örygg-
ismálin. Í langtímaáætlun í ör-
yggismálum sjómanna eru menn
hvattir til þess að taka upp ör-
yggisstjórnunarkerfi, en ég hefði
viljað sjá að skylt væri að hafa slík
kerfi í fiskiskipum líkt og er nú í
kaupskipum,“ segir Hilmar
Snorrason.
Björgunaræfingar hluti af
vinnu sjómanna
Eins og áður segir er mikil
áhersla lögð á að menn sinni
þeirri skyldu til sjós að halda
björgunaræfingar. „Æfingarnar
eru einfaldlega hluti af vinnu sjó-
manna. Mönnum ber að fara út á
dekk og taka trollið, en að sama
skapi eiga menn að sinna öryggis-
málunum. Þau eru hluti af vinnu
sjómanna úti á sjó. Skipstjórar
bera ábyrgð á skipunum og þar
með bera þeir líka ábyrgð á því að
öryggismál séu í góðu lagi. Á
skipi sem er 45 metrar eða lengra
ber að halda björgunaræfingu
einu sinni í mánuði. Á þeirri æf-
ingu á m.a. að æfa viðbrögð við
eldsvoða og að yfirgefa skipið. Á
skipi sem er lengra en 24 metrar
en styttra en 45 metrar er skylt að
halda slíka æfingu í það minnsta
á þriggja mánaða fresti.“
Eftirlit með æfingum
Hilmar segir að því miður virðist
sem að víða séu ekki haldnar lög-
boðnar æfingar um borð í skipun-
um. „Ég hefði viljað sjá að fram-
kvæmdar væru skyndiskoðanir á
skipum þar sem eftirlitsmenn fari
um borð í skipin og láti áhafnir
framkvæma björgunaræfingar. Í
mínum huga gætu menn staðið
frammi fyrir því að ef slíkar æf-
ingar gengju ekki upp yrði við-
komandi skip stoppað tímabund-
ið eða þar til bót hefði verið unn-
in á vandkvæðum. Um borð í
kaupskipunum fá menn, í erlend-
um höfnum, eftirlitsmenn um
borð til þess að fylgjast með stöðu
Afar mikilvægt er að æfingarýmið sé í takt við það sem upp getur
komið í eldsvoða til sjós.
Einn af mikilvægu liðunum í Slysavarnaskólanum er að kenna sjómönnum rétt hand-
tök ef eldur kemur upp í fiskiskipum.