Ægir - 01.01.2003, Síða 19
19
E N D U R M E N N T U N O G S TA R F S F R Æ Ð S L A
Sérstakur
endurmenntunarsjóður
Vélstjórafélagið er með sérstakan
endurmenntunarsjóð og í hann
greiða bæði félagsmenn og LÍU.
Með þessu móti er unnt að standa
myndarlega að námskeiðahaldi,
en þessi námskeið eru sérstaklega
miðuð við þarfir vélstjóra.
Bóklegur hluti námskeiðanna
fer fram í kennslustofu Endur-
menntunar vélstjóra í Vélskóla Ís-
lands, en verklegar æfingar eru
ýmist á vettvangi eða í vélasal
Vélskólans. Leiðbeinendur á nám-
skeiðunum eru ýmsir aðilar úr at-
vinnulífinu og kennarar í Vél-
skólanum. Félagsmenn í Vél-
stjórafélaginu geta sótt um náms-
styrk, sem nemur helmingi af
námskeiðsgjöldum, að hámarki
kr. tíu þúsund á ári. Við það er
miðað að allir félagsmenn í Vél-
stjórafélaginu sem hafa greitt til
félagsins undanfarna tólf mánuði
geti fengið námsstyrk. Lífeyris-
þegar sem greiddu til Vélstjóra-
félasins síðustu 12 mánuði áður
en þeir fóru á lífeyri geta fengið
námsstyrk næstu tvö ár eftir að
þeir hætta vinnu.
Mætti vera meiri aðsókn
Halldór Arnar Guðmundsson,
umsjónarmaður Endurmenntunar
vélstjóra, segist gjarnan vilja sjá
mun meiri aðsókn að endur-
menntun og starfsfræðslu vél-
stjóra. Hann segir að um 70
manns séu að sækja þessi nám-
skeið á ári, aðsókn mætti vera
miklu meiri.
Halldór Arnar segir að mikil-
vægt sé að útgerðir séu áhuga-
samar um að vélstjórar sæki sér
nauðsynlega þjálfun og endur-
menntun. „Stóru útgerðir standa
sig almennt mjög vel í þessu, en
það er allur gangur á þessu með
minni útgerðirnar,“ segir Halldór
Arnar. Hann segir að ákveðin
námskeið séu vinsælli en önnur.
„Já, það er óhætt að segja að
svokölluð iðntölvunámskeið eru
vel sótt og það sama má segja um
námskeið um rafteiknilestur og
kælitækni. Þessi námskeið taka
til stjórnbúnaðar um borð í skip-
unum sem tekur töluverðum
breytingum og því þurfa menn að
sækja sér nýjustu upplýsingar um
hvað er að gerast á þessu sviði,“
segir Halldór Arnar.
Námskeið um iðntölvur
Sem dæmi um námskeið um iðn-
tölvur má nefna að þar er fjallað
um forritun, vélstjórum er kennt
um uppbyggingu iðntölvukerfa
og hvernig þau mynda eitt skjá-
myndakerfi. Þá er farið í netupp-
byggingu og samskiptastaðla og
skoðaður tæknihluti TEMAfish
verkefnisins svokallaða, sem er
samstarfsverkefni um fjareftirlit.
Rafteiknilestur
Á námskeiðum um rafteiknilestur
er vélstjórum gefinn kostur á því
að rifja upp lestur rafmagnsteikn-
inga. Farið er í uppbyggingu raf-
magnsteikninga, tilvísunarkerfi
og ýmsar gerðir tengimynda. Þá
er fjallað um táknkerfi og staðla.
Framfarir í kælitækni
Miklar framfarir hafa orðið í kæli-
tækni á undanförnum árum og
vélstjórar þurfa að fylgjast vel
með þessari tækniframþróun. Á
sérstökum námskeiðum eru vél-
stjórum kynntar þessar nýjungar
á sviði uppbyggingar, reksturs og
viðhalds kæli- og frystikerfa, jafn-
framt því sem kynnt eru öryggis-
mál er varðar rekstur kerfanna.
Vélstjórafélag Íslands stendur vel að endurmenntunarmálum:
Myndi vilja sjá miklu
fleiri sækja námskeiðin
- segir Halldór Arnar Guðmundsson, umsjónarmaður Endurmenntunar vélstjóra
„Vélstjórafélagið hefur undanfarin ár lagt
mikla áherslu á endurmenntun vélstjóra og til
marks um það er hér starfsmaður í hálfu starfi
sem sér um þessi mál. Eins og gefur að skilja
eru alltaf að eiga sér stað breytingar varðandi
tæknibúnað um borð í fiskiskipum og vélstjór-
ar verða að fylgjast vel með þessum breyting-
um. Þess vegna höfum við m.a. lagt áherslu á
að bjóða vélstjórum upp á markvissa endur-
menntun með ýmsum námskeiðum,“ segir
Helgi Laxdal, formaður Vélstjórafélags Íslands.
„Það er óhætt að segja að svokölluð iðntölvunámskeið eru vel
sótt og það sama má segja um námskeið um rafteiknilestur og
kælitækni,“ segir Halldór Arnar Guðmundsson, sem hefur umsjón
með endurmenntun vélstjóra.