Ægir - 01.01.2003, Qupperneq 37
Sebrafiskurinn er merkileg
skepna þótt ekki sé hann stór, að-
eins 2-3 sm langur. Ef skorinn er
burt einn fimmti hluti hjartans
vex það fljótt aftur og verður
stærra og öflugra en áður. Vís-
indamenn binda vonir við að
þetta sé nokkuð sem kunni að
hjálpa mönnum með hjartasjúk-
dóma.
Sebrafiskurinn er mikið notað-
ur við rannsóknar vegna þess ef
uggar eru skornir af honum vaxa
þeir aftur, skaddað auga endur-
nýjast og fyrir skömmu uppgötv-
aðist að „sjálfsviðgerðin“ tekur
líka til hjartans. Vísindamenn
leita nú að geninu eða genunum
sem ráða þessum eiginleika fisks-
ins. „Takist okkur að finna þessi
gen hjá fiskinum er næsta víst að
hliðstæð gen muni finnast í
mönnum,“ segir dr. Mark T.
Keating í viðtali við Fiskaren.
Hann fer fyrir hópi vísindamanna
í Bandaríkjunum sem gert hafa
þessa uppgötvun.
Náðu sér á tíu dögum
Keating og félagar skáru burt
20% af hjartanu í nokkrum sebr-
afiskum. Þegar þeir höfðu jafnað
sig eftir deyfinguna var þeim
sleppt í búrið. Átta af tíu fiskum
lifðu aðgerðina af.
„Fyrst eftir aðgerðina voru fisk-
arnir ekki mjög sprækir. Þeir
höfðu hægt um sig og héldu sig
mest við botninn. En eftir tíu
daga varð orðin mikil breyting á.
Þeir syntu um búrið eins og ekk-
ert hefði í skorist og virtust
hreint ekki slappari en félagar
þeirra sem ekkert hafði verið
krukkað í,“ segir Keataing.
Rannsóknir sýndu að hjartað
hafði endurnýjast eftir aðeins tvo
mánuði. Nýjar hjartafrumur
höfðu komið í stað þeirra sem
fjarlægðar voru og hjartað var
meira að segja orðið stærra og öfl-
ugra en fyrir brottnámið.
Lofar góðu
Dr. Joshua M. Hare leiðir hefð-
bundari rannsóknir, - að reyna að
endurnýja skemmdan hjartavef
með stofnfrumum. Hann telur að
rannsóknir Keating hópsins lofi
góðu.
„Ef þetta sjálfsviðgerðargen
finnst í sebrafiskum þá gefur það
mikilvægar upplýsingar um hvers
vegna mannshjartanu er ekki eins
stjórnað og kannski komumst við
að því hvernig við getum endur-
nýjað hjartvef í mönnum,“ segir
Hare.
37
E R L E N T
Fyrirtækið Maritex AS í Noregi
framleiddi árið 2002 fimmtán
tonn af erfðaefninu DNA úr
þorsksvilum. Það er notað sem
bindiefni í andlitskrem, í þurr-
mjólkurduft handa hvítvoðung-
um og sem hjálparefni við
krabbameinsrannsóknir.
„Svilin eru einungis 1,5% af
innyflum þorsksins. Þau eru gott
dæmi um hráefni úr sjávarfangi
sem í líftækniðnaði er breytt í
eftirsótta og verðmæta vöru,“ hef-
ur Fiskaren eftir Viktor Johnsen,
framkvæmdastjóra Maritex AS.
„Við erum oft spurðir um
möguleika á lífefna- og líftækni-
legri framleiðslu úr fiskislógi og
fiskhausum. Auk svila, hrogna og
lifrar er þar líka um að ræða ým-
islegt annað, svo sem maga, augu
og jafnvel snjáldrið,“ segir John-
sen. „Vandinn er bara sá að rann-
sóknir og prófanir taka fimm ár
eða meira áður en hægt er að selja
nokkuð. En það er enginn vafi á
því að möguleikarnir eru miklir
innan fiskveiðigeirans. Það er
ekki síst vegna frétta um ýmiss
konar hættulega smitun úr land-
búnaðarafurðum að áhugi hefur
aukist á sjávarfangi og afurðum
unnum úr því. Dæmi um það er
hlaup úr fiskroði. Annað dæmi er
fljótandi fiskhold (peptón) sem
bakteríuæti við framleiðslu á
insúlíni,“ segir Johnsen að lok-
Flutnings-
gjöld á sjó
tvöfaldast
Flutningsgjöld á sjó hafa víða
tvöfaldast á nokkrum mánuð-
um segir Berlinske Tidende.
Síðan Prestige slysið varð hafa
olíufélögin orðið vandlátari
skip til olíuflutninga og velja
þá frekar ný skip en hin eldri.
Furðulegur fiskur
Fimmtán tonn af DNA úr þorsksvilum