Ægir - 01.09.2003, Page 29
29
V I Ð TA L
Það er ekki á hverjum degi
sem konur láta til sín taka í
umræðu um sjávarútvegsmál.
Það var því eftir því tekið þegar
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir,
útgerðarmaður á Tálknafirði,
sendi Vestmannaeyingum tón-
inn í grein sem hún skrifaði í
Eyjablaðið Fréttir um miðjan
október. Eyrún Ingibjörg, sem
er fædd og uppalin í Vest-
mannaeyjum, dóttir Sigþórs
Sigurðssonar, skipstjóra í Eyj-
um, gerir ásamt eiginmanni
sínum, Tryggva Ársælssyni, út
trilluna Sæla BA-333 á Tálkna-
firði. Ægir lék forvitni á að vita
eilítið meira um útgerðar-
manninn, húsmóðurina og
pólitíkusinn á Tálknafirði.
Tilefni greinar Eyrúnar í Frétt-
um voru skrif Vestmannaeyinga í
sama blað um alvarlegar afleið-
ingar línuívilnunar fyrir sjávarút-
veg í Eyjum. „Satt best að segja
ofbauð mér þau skrif sem nafn-
togaðir menn í Eyjum létu frá sér
fara um þetta mál á síðum Frétta.
Mér finnst miður að þessir menn,
margir miklar aflaklær sem ég
leit upp til þegar ég var að alast
upp í Eyjum, hafi leiðst út í per-
sónulegt skítkast í þessari um-
ræðu. Og mér finnst útvegsbænd-
ur um allt land hafa farið hamför-
um í sambandi við línuívilnun-
ina. Fyrir liggja landsfundarsam-
þykktir beggja stjórnarflokka um
línuívilnun og sömuleiðis er mál-
ið í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar-
innar. En lengra er það í raun
ekki komið og því skil ég ekki öll
þessi stóru orð. Mér finnst að
menn ættu að draga djúpt andann
því að í mínum huga er mikil-
vægt að málið verði til lykta leitt
þannig að allir geti við unað,“
segir Eyrún. „Fólki hér á Vest-
fjörðum finnst umræða um þetta
mál einkennast af óþarfa
fjaðrafoki,“ bætir Eyrún við, en
hún hefur tekið þátt í stjórnmál-
um fyrir Sjálfstæðisflokkinn, var
raunar í tólfta sæti D-listans í
Norðvesturkjördæmi fyrir síðustu
alþingiskosningar.
Síðustu sjö ár í smábátaút-
gerð
„Við hjónin höfum verið í smá-
bátaútgerð hérna á Tálnafirði síð-
an 1996. Núna gerum við út Sæla
BA, en við vorum mest með fjóra
báta. En vegna fyrst og fremst
kvótasetningar á steinbít og ýsu
þurftum við að draga saman segl-
in og færa aflaheimildirnar á einn
bát,“ segir Eyrún og bætti við að
Sæli BA væri dagróðrabátur á
krókaaflamarki.
Útgerð þeirra hjóna heitir
Sterkur ehf., en auk þeirra eiga
hlut í henni fjórir eigendur Þórs-
bergs. „Við höfum í gegnum tíð-
ina haldið tryggð við vinnslu hér
heima og landað fiskinum hjá
Þórsbergi. Frá 1. september sl. fer
allur þorskur frá okkur til Þórs-
bergs en aðrar tegundir á mark-
að.“
Erfitt að gera áætlanir
Á yfirstandandi fiskveiðiári er
krókaaflamark Sæla BA um 157
tonn í þorski, 30 tonn í ýsu og
160 tonn í steinbít. „Þessi út-
hlutun ætti að duga okkur alveg
þokkalega. Við höfum einnig ver-
ið í „tonn á móti tonni“ viðskipt-
um, en það hefur verið tekið af.“
Auk þeirra Eyrúnar og Tryggva
starfa tveir menn við að beita.
Eyrún heldur utan um rekstur-
inn, enda viðskiptafræðingur að
mennt. „Já, það er nóg að gera hjá
mér. Auk þess að starfa að útgerð-
inni er ég með stórt heimili - við
eigum fjögur börn - og svo er ég
gjaldkeri í sóknarnefndinni hér á
staðnum. Við erum að byggja
kirkju og því er í mörg horn að
líta um þessar mundir,“ segir
Eyrún.
Hún svarar því játandi að gam-
an sé að starfa að sjávarútvegin-
um. Hins vegar sé gallinn sá að
þessum rekstri fylgi mikið óör-
yggi, eins og dæmin sanni. „Það
er varla að maður geti gert áætlun
fyrir heilt ár,“ segir Eyrún.
Í útgerð, pólitík
og sóknarnefnd
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir: „Fyrst og
fremst vegna kvótasetningar á steinbít
og ýsu þurftum við að draga saman
seglin og færa aflaheimildirnar á einn
bát.“
Mynd: Hanna Kristín.
Sæli kominn með
góðan afla að
bryggju.
Mynd: Eyrún.