Ægir - 01.09.2003, Side 39
39
T Æ K N I
Á þessu ári kynnti Furuno nýj-
an veðurtunglamóttakara sem
vinnur með upplýsingar frá
veðurtunglum bandarísku veð-
urstofnunarinnar NOAA
(National Oceanic and At-
mospheric Administration).
Tækið sýnir veðurfræðilegar
gervitunglamyndir eins og
menn kannast við úr sjónvarpi
og infra-rauðar myndir af yfir-
borði jarðarinnar. Nýjar
myndir og upplýsingar koma
fjórum sinnum á sólarhring.
Gefur mikla möguleika
SU-28 tækið samanstendur af
móttökueiningu, loftneti og hug-
búnaði sem gerir kleift að sýna
myndirnar á PC tölvum með
Windows 98, 2000, ME og XP
hugbúnað. Tækið nemur send-
ingar beint frá NOAA tunglun-
um, umbreytir upplýsingunum
yfir í myndir af skýjafari, hvirfil-
vindum, hæðum og lægðum og
myndir af yfirborðshita sjávar og
birtir auk þess ýmsar aðrar tölu-
legar upplýsingar. Myndirnar af
yfirborðshita sjávar eru í lit, aðrar
svart-hvítar. Hver litur táknar
tiltekið hitastig. Notandinn
ákveður hvaða litur táknar hvert
hitastig. Svæðið sem myndirnar
taka yfir er 3000 x 3000 km, en
hægt er að velja með aðdrætti
ýmsar aðrar stærðir, mestur að-
dráttur er 187 x 187 km. Sem
dæmi um mesta aðdrátt má taka
að Faxaflóa- og Breiðafjarðarsvæð-
ið næst saman inn á eina skjá-
mynd.
Gagnlegt við ýmsan veiðiskap
Upplýsingar af þessu tagi eru
gagnlegar við ýmsan veiðiskap.
Alþekkt er að sumar
fisktegundir safnast saman við
ákveðið hitastig í hafinu. Sem
dæmi má nefna túnfisk sem safn-
ast saman í 14 til 19 gráðu heit-
um sjó og síld í 4 til 7 gráðu
heitum sjó. Auk þess er þekkt að
ýmsar fisktegundir safnast saman
þar sem hitaskil eru í hafinu.
Staðsetning eigin skips sést á
skjánum. Notandi tækisins getur
kallað fram á skjáinn strandlínu-
kort landa, sem leggjast þá yfir
myndina sem fyrir er. Hann get-
ur sett inn 100 merki, tekið upp
feril með 30 mínútna millibili,
kallað fram lengdar- og breiddar-
bauga á skjáinn og vistað mót-
teknar myndir svo nokkrir af
notkunarmöguleikum tækisins
séu nefndir. Til viðbótar við
þessa upptalningu má geta þess
að notandinn getur kallað fram
nokkrar myndir á skjáinn í einu
og borið þannig saman veður-
tunglamyndir og hitamyndir af
sama svæði.
Það tekur innan við 9 mínútur
að taka á móti upplýsingum
tunglanna í hvert skipti. Eins og
áður sagði þá tekur tækið á móti
upplýsingum frá veðurtunglun-
um beint og enginn áskriftar-
kostnaður er vegna notkunar og
móttöku upplýsinganna frá
NOAA.
Furuno SU-28 NOAA
veðurtunglamóttakari