Ægir - 01.05.2005, Blaðsíða 18
18
G Æ S L A N
Áhugi á fjölbreyttri starfsemi
Landhelgisgæslunnar réði því að
Georg Kr. Lárusson sótti um for-
stjórastarfið, sem dómsmálaráð-
herra skipaði hann í. Georg var
áður forstjóri Útlendingastofnun-
ar, en hefur auk þess verið vara-
lögreglustjóri og settur lögreglu-
stjóri í Reykjavík og sýslumaður í
Vestmannaeyjum svo eitthvað sé
nefnt. Hann segist sjaldan hafa
unað sér til lengdar í störfum
lognmollunnar, starfið hjá Gæsl-
unni sé hins vegar lifandi og
skemmtilegt og þar finni hann
sig vel.
Þjónustuþátturinn veigamikill
Landhelgisgæslan fer með lög-
gæsluhlutverk á miðunum um-
hverfis landið, en hefur jafnframt
margvíslegum þjónustuskyldum
að gegna, lögum samkvæmt.
„Það eru meðal annars þessar
skyldur sem mér finnast gera
starfsemi þessa fyrirtækis spenn-
andi. Við sinnum leit og björgun-
araðgerðum þegar slíkt kemur
upp, auk fjölmargra annarra verk-
efna,“ segir Georg.
„Þjónusta okkar við lands-
byggðina er talsvert öðruvísi nú
en áður, vegna betri samgangna.
Áður kom oft og tíðum í hlut
Gæslunnar að flytja ýmsan varn-
ing milli staða og eins farþega,
lækna í vitjanir og jafnvel presta
og kirkjukóra á leið til kirkju-
legra athafna. Þetta starf hefur
öðlast þjóðsagnablæ í seinni tíð,
en svona var nú veruleikinn engu
að síður,“ segir Georg, sem bætir
við að ánægjulegt hafi verið að
kynnast hve góðu starfólki stofn-
unin hafi á að skipa. Menn séu
trúir vinnuveitanda sínum, marg-
ir eigi áratuga starfsferil hjá
Gæslunni að baki og séu áfram
um hennar hag og orðspor.
Margir möguleikar á samstarfi
Í vetur kynntu ráðherrar dóms-
og sjávarútvegsmála þá ákvörðun
að efla samstarf og samvinnu
Landhelgisgæslu, Fiskistofu og
Hafrannsóknastofnunarinnar. Að
undanförnu hefur verið unnið
mikið undirbúningsstarf vegna
þessa, þó nákvæm útfærsla eða
samningar milli aðila liggi ekki
fyrir. Hugsunin sem býr að baki
er að nýta varðskipin betur og að
fara um margt nýjar leiðir í starf-
seminni. Þannig eiga stjórnendur
Gæslunnar nú í viðræðum við
Slysavarnafélagið Landsbjörgu,
sem hefur á að skipa björgunar-
skipum í höfnum hringinn í
kringum landið, um að nýta þau
til ákveðinna gæsluverkefna svo
sem eftirlits með umferð skipa.
„Útfærslur á samstarfi við
Fiskistofu og Hafró hafa ekki ver-
ið mótaðar í smáatriðum en ég sé
fyrir mér ýmsa snertifleti í sam-
starfi. Fiskistofumenn hafa í
gegnum tíðina oft verið með okk-
ur á varðskipunum og sinnt veiði-
eftirliti, en ég sé fyrir mér að við
þau störf mætti meira nota sjó-
mælingabátinn Baldur og eins
léttabáta, þegar við erum á
grunnslóð. En ég tek fram að við
höfum ekki tekið neinar ákvarð-
anir um hvernig svona samstarfi
yrði hagað, en möguleikarnir í
stöðunni eru margir.“
Skipaleiga hugsanlega
hagkvæmari
Eftir margra ára biðstöðu er loks
komin hreyfing á það mikilvæga
mál að Landhelgisgæslan fái nýtt
varðskip í flota sinn. Tillaga
dómsmálaráðherra þess efnis hef-
ur verið samþykkt í ríkisstjórn og
nefnd fulltrúa ráðuneyta dóms-
og fjármála vinnur að framgangi
málsins, jafnframt því sem full-
trúar Gæslunnar og Ríkiskaupa
hafa verið kallaðir til starfsins.
Málið er á góðu skriði og kveðst
Georg vænta þess að fyrir sumar-
frí verði hægt að auglýsa útboð á
Viðtal og myndir:
Sigurður
Bogi Sævarsson.
Hlutverk okkar aldrei
jafn þýðingarmikið
- segir Georg Kr. Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar
„Síðustu ár hafa opnast nýjar siglingaleiðir í Norðurhöfum og umferð
stórskipa hér við land aukist stórlega. Af þeim sökum hafa viðfangsefni
þessarar stofnunar breyst. Við þurfum að vera í stakk búin til að koma
stórum skipum til aðstoðar og geta einnig brugðist við til dæmis meng-
unarslysum. Hafa þarf vakandi auga með hugsanlegri rányrkju, sjófar-
endur noti ekki hafið umhverfis landið til að losa sig við mengandi
efni,“ segir Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar.
Varðskip Landhelgis-
gæsunnar eru þrjú og
Týr og Ægir, sem hér
sést við kajann, eru
systurskip. Vonir
manna standa til að
nýtt skip geti verið
komið í flotann innan
fárra missera.
aegirmai2005-nota 27.5.2005 17:08 Page 18