Ægir - 01.05.2005, Blaðsíða 20
20
G Æ S L A N
Vinsamlegst hafið samband við Friðbjörn
í síma 430 3743 eða 840 3743, fax 430 3741
e-mail fridbjorn@fmis.is
KVÓTAMIÐLUN
• Eigum í aflamarki steinbít, löngu, keilu, karfa, skarkola, ufsa, skötusel,
sandkola, skrápflúru og langlúru.
• Vantar ýsu í krókaaflamarki og aflamarki.
• Eigum í krókaaflamarki þorsk, ufsa, steinbít, löngu, keilu og karfa.
• Vantar þorsk og þykkvalúru í aflamarki.
Höfum kaupendur af hlutdeild í öllum tegundum í Aflamarki
og Krókaaflamarki.
Fiskmarkaður Íslands hf. vill þakka viðskiptavinum sínum fyrir þær góðu
móttökur sem kvótamiðlunin, sem við hleyptum af stokkunum nú um
áramótin, hefur fengið. Þessar góðu viðtökur blása okkur byr í brjóst og
munum við kappkosta að þjónusta viðskiptavini okkar á eins góðan hátt
og mögulegt er.
breytast við flutningana í Skógar-
hlíð.“
Á tímum þorskastríðanna
þekkti fólk ef til vill betur til
starfs Landhelgisgæslunnar en nú
er. Í þann tíð voru skipherrarnir
Guðmundur Kjærnested, Hösk-
uldur Skarphéðinsson, Þröstur
Sigtryggsson og Helgi Hallvarðs-
son þjóðhetjur og hverjum manni
kunnir. Í dag er veruleikinn
breyttur. „Það ástand sem ríkti í
þjóðfélaginu á tímum þorska-
stríðann er í sjálfu sér ekkert sér-
staklega eftirsóknarvert,“ segir
Georg Kr. Lárusson og bætir við
að lokum: „Hinsvegar held ég
Gæslan hafi á vissan hátt liðið
fyrir að hverfa úr sviðsljósinu sem
hefur komið fram í minni fjár-
framlögum til starfseminnar.
Menn líta ef til vill svo á að með
útfærslu landhelginnar hafi mál
stofnunarinnar verið afgreidd til
langs tíma. En svona einfalt er
þetta ekki. Umferð skipa við
landið er alltaf að aukast, verkefn-
in á sviði björgunar sem upp
koma verða æ stærri og sömuleið-
is eru menn alltaf betur á varð-
bergi gagnvart mengunarhættu
og hugsanlegri hryðjuverkaógn. Í
mínum huga er hlutverk Land-
helgisgæslunnar aldrei jafn þýð-
ingarmikið og einmitt nú.“Glaðbeittir gæslumenn. Frá vinstri talið: Birgir H. Björnsson og
Jón Páll Ásgeirson, stýrimenn á Ægi, og Halldór Gunnlaugsson,
skipherra.
aegirmai2005-nota 27.5.2005 17:08 Page 20