Tímarit Máls og menningar - 01.11.1943, Qupperneq 19
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
129
legrar bölvunar öllum morðvörgum veraldarinnar, móðurinni tekst
að bjarga tólfta syninum, þegar búið er að myrða hina ellefu, og
í fyllingu tímans stendur hann öllum óvörum frammi fyrir hásæti
föður síns og bombarderaði hann eigin syndaregistri. Þá var upp-
runnin aldurtilastund þessa gamla konungs, „afturábak hann datt
og dó“. Svo fór um þann eilífðardrauminn.
Svona getur hinn sigraði allt í einu komið fram á sjónarsviðið
sem hinn skýlausi sigurvegari, hinn myrti sveinn stendur frammi
fyrir hásæti þjóðar sinnar, fuglinn Fönix hefur sig til flugs upp
úr eldhafi eyðingarinnar, af því að eðli lífsins er sjálfu sér trútt.
Sigurður Nordal er menningarlega dauðrotaður, knúsmalaður,
færður til helheima með dánarvottorð upp á vasann, dagsett 21.
júní 1942, undirritað konungssigneti hinnar menningarlegu morð-
fýsnar J. J. En áður en árið er liðið stendur þessi sami Sigurður
Nordal frammi fyrir menningarhásæti þjóðarinnar með íslenzka
menningu sem veldissprota, hann er dáður, hann er meðtekinn af
dýpri og almennari fögnuði en dæmi eru til um nokkurn rithöfund
um háa herrans tíð. Og andstæðingarnir standa eins og nátttröll,
hreyfa ekki legg né lið, gera ekki minnstu tilraun til nýrrar atlögu,
þeim dettur ekki í hug að malda í móinn. Ósigur þeirra er alger,
uppgjöf þeirra skilyrðislaus.
Þessi forsaga þessarar bókar virðist í raun og veru standa í mjög
litlu sambandi við innihald hennar, þegar hún er komin á sjónar-
sviðið. Ekki verður heldur sagt neitt um það, í hve miklu sám-
ræmi innihald hennar er við hugmyndir árásarmannanna, meðan
það enn var óséð, eða hvort þær hugmyndir hafa nokkrar verið.
Ekki mun það heldur fjarri sanni, að herferð þessi hafi í raun og
veru verið í nánara sambandi við aðra hluti en spurninguna um
það, á hvern hátt rita skuli sögu Islendinga. En út í þau hugsan-
legu tengsl verður ekki farið á þessum vettvangi. Vitanlegt er, að
árásarlið auðhyggjunnar á íslandi hefur ekki gert sér þess skýra
grein, að sú nýja tegund sagnaritunar, sem hefst hér á landi með
þessari nýju sögu Sigurðar Nordals, geti valdið svo stórkostlega
breyttum viðhorfum alþýðunnar á íslandi til lífsköllunar sinnar í
Ijósi sögunnar, að völdum þeirra gæti verið aðkallandi hætta búin
af þeim sökum. En hið sama lögmál gildir um hrörnandi valda-
9