Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1943, Page 121

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1943, Page 121
TIMAKIT MALS OG MENNINCAR 231 þótt ltonum yrði lífs auðið fram til kornu þeirrar aldar, þá myndi hann ekki kunna að sameinast stormi hennar né straumi, hann myndi standa hér eftir eins og fauskur frá liðinni tíð og undrast og hristast, þegar hún færi framhjá.“ Þetta er megininntak bókarinnar, höfuðútsýn hennar frá Miklabæ. Margt annað kemur þar fram: átökin milli Mána og Hákonar, ennfremur samhand Mána við baráttu verkamanna, tengsl hans við móður sína. Máni er hinn draumlyndi bóndasonur, er fylgir verkalýðnum af djúpri sarnúð en ekki eðli hardagamannsins, fer í styrjöldina á Austurvígstöðvunum af rökréttri hlýðni við luigsjón sína og tilfinningar. Hákon fetar liins vegar rökréttan stíg eigin- girninnar og fjárgræðginnar út í verkalýðshatur og svik við þjóð sína, þegar hagsmunirnir kalla. Og hann líka er bóndans sonur. Margt fleira kemur við sögu, er varpar ljósi á afstöðu Islendinga til hernámsins og viðburða heims- ins almennt. Eins og yfirlit þetta sýnir, er bókin sprottin upp úr tilfinningum og hugs- unum undanfarinna ára. Hún geymir það viðhorf, sem skapaðist við hernámið fyrsta og annað árið: tilfinningar, sem nú eru þegar breyttar og jafnvel gleymdar. Þar að auki er hún viðhorf við örlögum þeim, er yfir allt mannkyn hafa gengið. Hér er skáldsaga, þar sem tekið er af djúpri alvöru og heitri til- finningu á viðfangsefnum nútímans. Ilér er reynt að túlka þær efasemdir og geigvænlegu spurningar, sem hafa læst sig um taugar hvers manns, sem vak- andi huga hefur lifað þessa tíma. Bókin er fögur og heit í viðleitni sinni til þess að finna svar við mannlegum rökurn á hinni örlagaríkustu stund. Jafn- framt er hún sjálf þrungin af harmi og ógn þessara örlaga og þar með dýpsta inntaki vorra tíma, þeim sannleika ógnarinnar, sem hrundið hefur fjölmörgum af beztu mönnurn vorrar aldar fram af hamrabrún lífsins. Sársauka og reynslu þessarar bókar á hver að geta skilið, sem gengið hefur þó ekki væri nerna skammt á leið með mönnum eins og Ernst Toller, Karl Capek, Stefan Zweig og fjölda annarra hinna gáfuðustu, tilfinningaheitustu og dýrlegustu fulltrúa undangenginna tíma, jafnvel mönnum, sent voru sannfærðir kommúnistar og vissu því, að kvalir þessara ára eru fæðingarhríðir nýrra og betri tíma. Hér er verk þrungið tilfinningum ofurhlaðins hjarta. Ef til vill vilja einhverjir grípa hér fram í og segja: hví skyldum við, Is- lendingar, þurfa að taka okkur svo nærri það, sem gerzt hefur á þessum ár- um? Við lifum í friði. Við liöfum ekki orðið að flýja ættjörð okkar undan svipu og pyndingum vitifirrtra kúgara. Satt er það. En hversu öfundsverð er afstaða okkar í augum þess rnanns, sem skynjar hlutina af djúpri vitund um einingu alls mannlífs? Getur þá ekki verið mestur sársaukinn fyrir hjartað að fá ekkert aðgert, verða að horfa á þjáningar og dauða og kvalir bróður síns, án þess að geta rétt út hönd til hjálpar, sjá hatendur lífsins kvelja hann til dauða fyrir augum okkar, án þess að geta brugðið nokkru vopni til hefnd- ar. Hvað getum við annað á þeirri stundu en formælt hlutleysinu. Hvað er hlutleysið þá annað en sárasta örvænting og ógn, fjötur, sem lamar mann og stelur öllu rnagni til athafnar og hræringar. Þessi sársauki og ógn lilutleysis-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.