Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1961, Síða 38

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1961, Síða 38
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR trúa bóhemanna“. Þetta eru fáránlegar myndir, ekki aðeins vegna þess, að hetjurnar minna ekki á fyrirmyndirnar, heldur vegna þess, að kvikmynda- mennirnir hafa ekki lykla að þeim hugsunum og tilfinningum, sem héldu vöku fyrir gestum Rotondu. Þetta kaffihús líktist hundrað kaffihúsum öðrum. Við diskinn drukku ekl- ar, leigubílstjórar, kontóristar kaffi eða aperitífa. Fyrir innan var dimmt her- bergi, tilreykt fyrir fullt og fast, þar stóðu tíu eða tólf borð. A kvöldin fylltist þetta herbergi af fólki og hávaða: það var deilt um myndlist, kvæði voru lesin upp, bollalagt var um það hvar hægt væri að slá fimm franka, rifizt, sætzt; einhver gerðist mjög ölvaður og var snarað út fyrir. Klukkan tvö eftir mið- nætti var Rotondu lokað í einn tíma, stundum leyfði vertinn fastagestum að sitja þessa stund af sér í auðum dimmum salnum — þetta var brot á lögreglu- samþykktinni. En klukkan þrjú var opnað aftur og hægt var að halda áfram dapurlegum samræðum. Eiganda staðarins Libion datt aldrei í hug, að nafn hans kæmist á sögu- spjöld myndlistarinnar. Þetta var góðlyndur, feitur kráhaldari, sem hafði keypt lítið kaffihús; af tilviljun varð Rotonda höfuðbækistöð allra þjóða sér- vitringa eða auðnuleysingja, eins og Max Volosjín komst að orði, skálda og listamanna, sem sumir hverjir urðu frægir síðar meir. Libion var venjulegur smáborgari og leit því þessa undarlegu viðskiptavini sína hornauga í fyrstu, líklega hefur hann haldið að við værum stjórnleysingjar. Svo vandist hann okkur, þótti jafnvel vænt um okkur áður en lauk. Einhver sagði honum, að ýmsir menn hefðu auðgazt á myndlist: keypt myndir hræódýrt af allsendis óþekktum listamönnum og selt þær eftir tuttugu ár fyrir mikið fé. Þessháttar tekjur freistuðu Libions ekki sérstaklega. Einhverju sinni sagði hann mér, að hann væri lítið fyrir fj árhættuspil, en það er reyndar happdrætti að kaupa myndir, — þykir víst gott ef einn listmálari af þúsund verður að manni. Hann kaus heldur að græða á drykkjarföngum. Auðvitað tók hann stundum teikn- ingu eftir Modigliani fyrir tíu franka; nóg var til af undirskálum, en strák- anginn átti ekki grænan eyri . .. Stundum stakk Libion fimm mörkum að ein- hverju skáldi eða listamanni og sagði byrstur: „Fáðu þér kvenmann, það er eitthvað brjálæði í augunum á þér .. .“ A neðri vör hans hékk jafnan dauður sígarettustubbur. Hann gekk oftast jakkalaus, en í vesti. Einu sinni þegar ég sat á Rotondu bað listakonan Mjamlína mig að halda á kornbarni sínu stundarkorn, hún þyrfti að skreppa út að kaupa sígarettur. Hálftími leið, klukkutími leið og ekki bólaði á Mjamlínu. Barnið fór að skæla. Libion kom, hlustaði á skýringar mínar og trúði auðsjáanlega ekki orði: 372
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.