Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1961, Side 44

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1961, Side 44
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR meir úr leik, aðrir fölnuðu, hurfu í skuggann við nýjar kringumstæður, enn aðrir — Modigliani, Apollinaire — dóu ungir, loks voru þeir sem báru eld- móð þeirra ára með sér alla ævi, ævisaga þeirra gekk í takt við aldarsöguna. Það erfiðasta sem rithöfundur gerir, er að finna bókarheiti, venjulega eru bókum gefin nöfn annaðhvort of almenns eðlis eða þau eru ofhlaðin tilgangs- semi. En ég er sýnu ánægðari með heiti bókarinnar „Kvæði um kvöldin áður“ en sjálft innihaldið. Árin, sem ég nú lýsi, voru í raun og veru kvöldin fyrir stórviðburðinn. Margir tala um þau sem eftirmála. Á björtum nóttum kann að vera erfitt að greina uppruna þess ljóss, sem vekur geðhrif, óróa, leyfir mönnum ekki að sofa og hjálpar elskendum — hvort er það kvöldroði eða morgunroði? í náttúrunni vara ljósaskiptin ekki lengi, — hálftíma, klukku- stund. En sagan flýtir sér ekki. Ég óx upp í skini tvennskonar ljóss og lifði í því alla ævi — fram á elliár .. . 20. Sjaldan talaði ég svo við Modigliani, að ég bæði hann ekki að lesa mér nokkrar þríhendur úr Divina Commedia. Dante var hans eftirlætisskáld. í „Kvæðum um kvöldin áður“ er ljóð, dagsett apríl 1915: „Þú sazt á lágum stiga, Modigliani, og hrópaðir eins og stormfuglinn ... Gult ljós hengilamp- ans, blámi heitra hára. Og allt í einu heyri ég: með þungum niði fossuðu myrk orð Dante þrumuskálds . . .“ Dante er ekki aðeins þrumuskáld. Ég man nokkr- ar línur úr „Hreinsunareldinum" — skáldið og förunautur hans hafa gengið á fjall upp, setzt niður og horfa með rósemd yfir farinn veg. Mig langar að sitja stundarkorn með lifandi Modigliani (Modi eins og vinir hans kölluðu hann). Hann var gerður að hetju ómerkilegrar kvikmyndar, um hann voru skrifaðar nokkrar skemmtisögur. Gat kvikmyndastjórinn setið í ró og spekt á steinþrepi og hugsað um bugður á vegi annars manns? Svo skapaðist þjóðsagan um hungraðan vandræðamann, sífullan listamann, síðasta fulltrúa bóhemíunnar, sem á örfáum stundum milli tveggja fylliría málaði sérkennilegar andlitsmyndir, dó í örbirgð en hlaut frægð dauður. Hér er allt satt og allt lygi. Það er satt, að Modigliani svalt og drakk, gleypti hasjísj, en þetta verður ekki skýrt með ást á spillingu eða „gervihimnaríki“. Hann langaði hreint ekki til að svelta, hann át alltaf með góðri lyst, og hann leitaði ekki að píslarvætti. Má vera að hann hafi öðrum fremur verið skapað- ur fyrir hamingjuna. Hann var ástvinur hinnar ljúfu ítölsku tungu, mjúks landslags Toscanahéraðs, listar hinna gömlu meistara þess. Hann byrjaði 378

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.