Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1961, Qupperneq 45

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1961, Qupperneq 45
KAFFIHÚSIÐ ROTONDE ekki á hasjísj ... Auðvitað hefði hann getað málað andlitsmyndir, sem bæði gagnrýnendum og pantendum hefðu líkað: hann hefði þá fengið peninga, góða vinnustofu, viðurkenningu. En Modigliani gat hvorki logið né lagað sig að kringumstæðum, allir sem kynntust honum vita, að hann var mjög hrein- skilinn og stoltur. Ég sá hann á erfiðum dögum og dögum uppljómunar; sá hann rólegan, ein- staklega kurteisan, sléttrakaðan með fölt og nokkuð hrjúft andlit; ég sá hann einnig óðan, vaxinn svartri burst, — þessi Modigliani rak upp nístandi óp eins og fugl, má vera eins og albatros; í kvæðinu minnist ég ekki að ástæðulausu á stormfuglinn. (Modigliani þótti vænt um kvæði Baudelaires um albatrosinn, sem sjó- mennirnir gera gys að, — „Hve hlægilega ljótt er nú að sjá hann sem loftið klauf með slíkum tignarbrag ...“) Ég hef getið þess, að hann var fríður maður, konur horfðu á hann; mér fannst alltaf að fegurð hans væri ítölsk. Hann var samt sefard, en svo nefnast afkomendur þeirra Gyðinga, sem settust að í Provence, á Ítalíu eða Balkan- skaga eftir að þeir voru reknir frá Spáni. Einhverju sinni litum við Modigliani inn á kaffihús á Boulevard Pasteur: hann hafði unnið, var rólegur. Við næsta borð sátu heiðursmenn við spil. Ég skrifaði upp Ijóð, sem Modigliani hafði sýnt mér, og heyrði ekki til annarra. Allt í einu stökk Modigliani á fætur: „Haltu kjafti! Ég er Gyðingur, og ég get talað við þig! Skilurðu? ...“ Spilamennirnir þögðu. Modigliani borgaði kaff- ið og sagði hátt: „Leiðinlegt að við skyldum rekast hér inn, hér safnast svín saman.“ Þegar við komum út spurði ég hvað hefði verið sagt við næsta borð. „Þetta venjulega,“ sagði Modi. „Slæmt að maður skuli vera að fitla við pensla, — því við þurfum að gefa á kjaftinn í 300 ár enn ...“ Hann sagði mér að afi sinn hefði búið í Róm. Hann vildi rækta vínber og keypti litla landspildu — en Gyðingum var að lögum bannað að eiga land. Afi reiddist þá og flutti til Livorno, þar sem margar Gyðingafjölskyldur höfðu lengi búið. Modi las mér ítalskar sonnettureftirlmmanuelrómverska, gyðinga- skáld frá 14. öld, — beisk háðkvæði en um leið full lífsástar. Modigliani sagði mér frá því, hvernig Rómverjar héldu kjötkveðjuhátíðir áður fyrr: gyðinga- söfnuðurinn var skyldugur til að afhenda gyðinga-„brokkara“, sem var af- klæddur og látinn brokka þrisvar í kringum borgina við spott og glósur kátra borgara, biskupa og sendiherra. (Ég samdi þá langt kvæði um þetta efni). Modigliani var þegar orðinn gróinn Parísarbúi, þegar ég kynntist honum árið 1912. Við einn okkar fyrsta fund teiknaði hann mig: allir sögðu að mynd- 379
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.