Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1961, Side 67

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1961, Side 67
KAREL CAPEK urnar úr hinum vasanum eru leyni- lögreglusögur og Sögurnar úr öðrum vasanum eru þeim keimlíkar að efni og blæ. í þessum sögum kemur einna bezt fram dálæti Capeks á einföldum hlutum, og í smásögum hans ber hinn venjulegi maður sigur úr býtum, enda þótt keppinautar hans hafi sér til halds og trausts flókin kenningakerfi. Beinan þátt í stjórnmálum tók Karel Capek ekki á þessum árum, og gerði það raunar aldrei. En á föstu- dögum komu saman á heimili hans vinir hans og félagar, flestir þeirra voru þekkt skáld eða frægir rithöf- undar og ræddu vandamálin, og stundum bættist forsetinn sjálfur, Masaryk, í hópinn. Að sönnu hélt £a- pek. atram að deila á ýmsar misfellur hins ríkjandi skipulags, en var að öðru leyti jafnfráhverfur byltingu sem fyrr og boðaði stéttafrið. í ný- ársgrein 1928 sagði hann m. a.: „Sjá- ið þið nú til, við verðum einhvern veginn að koma þessu saman. Hægri menn og vinstri, þetta er einskis nýtt , lýðveldið er eins og hringur, og er nokkur hægri eða vinstri armur til í hring?“ Heimskreppan og afleiðingar henn- ar rufu stórt skarð í kenningamúr Capeks, enda þótt þeim tækist ekki að brjóta hann til grunna. Capek varð æ orðhvassari í greinum sínum og réðst nú í fyrsta sinn á efnahagskerfi hins borgaralega lýðveldis, Tékkóslóvakiu: „Ég gæti sagt á þessum stað, að af þessu leiddi, að ríkjandi kerfi þyrfti að breyta frá grunni, ég held það annars í raun og veru.“ Og síðar hrutu þessar setningar úr penna hans: „Að því er kennisetningar og bar- áttuaðferðir kommúnismans áhrærir, er ég sammála hugsjónum hans að mestu leyti.“ Og enn síðar í sömu grein segist hann trúa á „þjóðnýtingu framleiðslutækjanna og takmörkun eignarréttarins, skipulagningu fram- leiðslu og neyzlu, endalok auðvalds- skipulagsins og rétt hvers manns til lífsins, vinnunnar, velmegunar og andlegs frelsis.“ En enn sem komið var trúði Éapek á sættir. Efnahagskreppan fékk mjög á hann, en hin andlega kreppa, afleið- ing hinnar, jafnvel enn þá meira. Á þessum árum leitaði Capek að hug- mynd, sem að hans dómi gæti orðið sameiningartákn margklofins mann- kyns. Vandamálið var ekki auðleyst, og Capek var sjálfur í vafa um, livort slík hugmynd væri til eða hvort unnt væri að komast að sannleikanum í nokkru máli. í þriggja binda verkinu Hordubal, Povétron og Hversdagsleg ævi, sem er í rauninni þrjár skáldsög- ur án sýnilegra tengsla, reyndi Ca- pek að svara þessum spurningum á sinn hátt. En nú fór Capek aðra leið en áður. Hann lét efnahagsmál, stjórnmál og heimsstyrjaldir lönd og leið og sneri sér að manninum sjálf- um, athöfnum hans, sálarlífi. í Hor- dubal segir Éapek sögu bóndans Hor- TÍMARIT máls oc mf.nnincar 401 26

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.