Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1961, Side 68

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1961, Side 68
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR dubals, konu hans og friðils hennar, í Povétron velta nokkrir menn fyrir sér, hvernig lífi meðvitundarlauss, deyjandi manns hafi verið háttað og í þriðju sögunni og síðustu, Hvers- dagsleg ævi, lætur Capek gamlan járn- brautarstarfsmann segja ævisögu sína. Gamli maðurinn kemst að því, að líf hans hefur ekki verið jafn ein- falt og hann hélt, heldur hefur hann í raun réttri lifað lífi nokkurra manna, en líf hans sjálfs skapazt við það, þeg- ar allir þessir þættir hafa komið sam- an. Lesendur tóku trílógíunni vel, enda bregzt Capek ekki frásagnargáfan þar fremur en endranær. En Capek var samt ekki ánægður, því að fljótlega kom í ljós, að menn misskildu bæk- urnar, enda langauðveldast. Sumir gagnrýnendur sögðu jafnvel, að Ca- pek áliti, að heimurinn væri ekki þekkjanlegur, því að í trílógíunni hafi hann haldið því fram, að ekki væri unnt að komast að sannleikanum í lífi manna. Greip Capek til þess ráðs sem oftar að skrifa eftirmála við sitt eigið verk, þar sem hann segir m. a.: „Þegar öllu er á botninn hvolft er þetta (margbreytni mannlegs lífs) í fyllstu röð og reglu; einmitt þess vegna getum við kynnzt margbreyti- leikanum og skilið hann, að á okkur eru margar hliðar. Héðan af er ekkx aðeins ég heldur við fólkið, við get- um talazt við á öllum þeim tungum, sem við höfum. Núna getum við bor- ið virðingu fyrir manni, vegna þess að hann er annars konar en við, og skilið hann, af því að við erum allir jafnir.“ Þetta var í síðasta sinn, sem Capek reyndi að bera sáttarorð milli allra manna. Þegar Capek hafði lokið þessu mikla, flókna og margræða verki hafði andrúmsloftið í heiminum versnað enn að mun. Á því átti sök valdataka nazista í Þýzkalandi. Og í fyllingu tímans sagði Capek þeirri stefnu stríð á hendur. Yfirlýsingin var skáldsaga í þykkra lagi, sem hét Salamöndrustríðið. Salamöndrustríðið1 fæddist ekki áreynslulaust. Sagðist Capek svo frá síðar, er bókin kom út, að upphaflega hafi hann ætlað að skrifa bók, þar sem læknir, góðmenni mikið, hafi átt að vera aðalsöguhetjan. En svo hafi hann efazt svo mjög um hæfni þessa góðmennis til að lækna þær sóttir, sem heimurinn þjáðist þá mest af, að hann hafi hætt við allt saman. Eins og í flestum fyrri verkum sín- um talar Capek í líkingum í Sala- möndrustríðinu. Capek var vel kunn- ugt um, hve tómlátir lesendur voru orðnir, þegar um andfasískar bók- menntir var að ræða. Honum var ljóst, að notkun líkingamáls gaf hon- um frjálsari hendur til að skapa þá listrænu blekkingu, sem hann þarfn- aðist til að vekja menn til umhugsun- 1 Mál og menning gaf þessa bók út 1946, í íslenzkri þýðingu Jóhannesar úr Kötlum. 402

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.