Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1961, Qupperneq 85

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1961, Qupperneq 85
UMSAGNIR UM BÆKUR atburð'unum getur farið fram, og það er brýn nauðsyn, að það verði framkvæmt sem allra fyrst. Þjóðerniskennd er góð og göfug, en innantómur þjóðrembingur, sem hvílir ævinlega á fölskum forsendum, er af hinu illa. Þegar fyrsta bindið af Vestlendingum eftir Lúðvík Kristjánsson kom út, er sagt, að orðhagur Reykvíkingur hafi mælt: „Nú er Páll Eggert sæll að vera dauður". Það er ekki að öllu leyti sanngjarnt að stilla saman ritum þeirra Páls og Lúðvíks um Jón Sig- urðsson. Hinn mikilvirki Páll stóð djúpum rótum hjá þeirri kynslóð, sem forðaðist að þekkja allar hliðar á sjálfstæðisbaráttunni og lét sig manninn Jón Sigurðsson minna skipta en hugsjónina um þennan sama mann. Þær kynslóðir, sem nú byggja þetta land, ættu að hafa önnur viðhorf og fagna skiptum á manni og dýrlingi. Mat á störfum mikilmenna er jafnan miklum vandkvæðum bundið, og þar er oft skammt öfganna á milli, eins og dæmin sanna. „Því nær öll sókn þjóðarinnar til frelsis, bættrar afkomu og aukinnar menn- ingar hefur verið rakin til stúdenta í Kaup- mannahöfn, einkum Baldvins Einarssonar, Fjölnismanna og Jóns Sigurðssonar. Mér hefur aldrei dulizt, að hlutur þessara manna hefur verið mikill. En það hefur mér fund- izt vitnisburður um yfirborðskennda þekk- ingu á þjóðlífi okkar og sögu samfara leið- inlegri persónudýrkun og vanmati á sjálfu fólkinu í landinu, að rekja til þeirra nær alla okkar sögu á 19. öld,“ segir Amór Sig- urjónsson í inngangi að riti sínu um Einar Ásmundsson í Nesi. í riti hans gætir nokk- urrar tilhneigingar til þess að vanmeta eða sniðganga máttarvöldin í Kaupmannahöfn, þar sem um ræðir m. a. upphaf verzlunar- íélaga. íslenzkir sagnfræðingar þurfa að gæta þess, að leiðigjörn persónudýrkun lið- ins tíma leiði þá ekki í þessa villu. Þeir, sem heima sátu í fásinninu og reyndu eftir sinni getu að þoka málum lands og þjóðar áleiðis til bættrar afkomu, eru alls góðs maklegir, en þeir vinna ekkert til lang- frama á því að vera höggnir úr tengslum við aðalforystusveit Islendinga á hinu ör- lagaþrungna skeiði 19. aldar. Rit Jóns Sigurðssonar, sem Sverrir sá um útgáfu á, hefur að geyma blaðagreinar Jóns í íslenzkum og dönskum blöðum, auk langr- ar ritgerðar (62 blaðsíður) um íslenzka hagi, en hún birtist í norsku blaði. Margar blaðagreinarnar eru ritaðar undir dulnefn- um, en Sverrir hefur feðrað þær eftir ýms- um bréflegum heimildum. Þær hafa, að því er ég bezt veit, verið lítt eða ekki kunnar íslenzkum fræðimönnum, en eru nauðsyn- legar heimildir hverjum þeim, sem fæst við rannsóknir á sögu Islands á dögum Jóns Sigurðssonar. Greinarnar eru um hin ólík- ustu efni, því að Jón er alls staðar nálægur, þar sem um íslenzk mál er fjallað. Dönsku greinamar eru meginefni bókarinnar (316 síður) og leiða fram hinn árvakra vörð ís- lenzks málstaðar í höfuðstöðvum andstæð- inganna og slynga blaðamann. Greinum þessum fylgja allýtarlegar skýringar og at- hugasemdir, svo að hér er um hið ágætasta heimildarrit að ræða. Það hefði einungis átt að birtast fyrir nokkrum áratugum. Menn verða að athuga, að rit þetta er ekki aðallega heimild um Jón Sigurðsson, held- ur íslenzka sögu á um 40 ára skeiði. Jóni auðnaðist því miður ekki að rita íslands- sögu. Hann lagði allra manna mest fram til þess að móta einn þátt hennar, og yfirlits- greinar eins og Island og islandske Til- stande em þættir úr íslandssögu ritaðir af Jóni Sigurðssyni. Sverrir ritar rúmlega 50 blaðsíðna inn- gang að bókinni og rnarkar þar Jóni bás í stjórnmálabaráttu hins danska ríkis. Hann dregur fram fyrirmyndir hans meðal Holt- seta, hins þýzka minnihluta, sem átti sér forn réttindabréf eins og eyþjóðin í úthaf- inu. En Sverrir bendir réttilega á, að Jón 419
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.