Ægir - 01.08.2011, Page 106
104
NAVIS ehf.
Flatahrauni 5A
220 Hafnarfjörður
Sími 544 2450
www.navis.is
Tveggja skrúfu togari, skrokkhönnun
sem nýtir orkuna betur, leiðir til að létta
meðferð kara í lestum ísfiskskipa og
endurbætt hönnun við línuveiðar, eru
dæmi um lausnir sem starfsmenn Navis
hafa verið að vinna að undanfarin miss-
eri samhliða margvíslegum verkefnum
fyrir erlendar útgerðir og skipa-
smíðastöðvar . Navis á Flatahrauni í
Hafnarfirði hefur um árabil annast frum-
hönnun á ýmsum gerðum skipa auk
breytinga á eldri skipum, breytingar og
nýhönnun á vinnslulínum og fjölda
annarra verkefna .
Nánast eingöngu erlend verkefni
„Allt frá stofnun Navis 2003 hafa nánast
öll okkar verkefni verið fyrir erlenda
aðila, því það hefur lítið verið að gerast í
tengslum við nýsmíðar eða breytingar á
íslenska flotanum,“ segir Hjörtur Emils-
son, framkvæmdastjóri Navis . Hann
segir litlar endurbætur hafa farið fram á
íslenska flotanum undanfarið og eina
nýsmíðaverkefnið sem í gangi er var
sett af stað fyrir hrun . Á sama tíma haldi
flotinn áfram að eldast og verða óhag-
kvæmari í rekstri .
Meðal verkefna sem Navis hefur
unnið að undanfarin misseri er hönnun
og eftirlit með breytingum á tveimur
stórum kóreskum togurum . Navis vinnur
einnig að samningum um verkefni í Kína
og hefur fyrirtækið m .a . verið valið
ásamt tveimur öðrum til að taka þátt í
samkeppni um hönnun á liðlega 70
metra togara fyrir kínverska ríkið . Þá
hefur fyrirtækið nýlega forhannað 60
metra togara fyrir japanska útgerð en
japanska útgerðin bíður nú eftir leyfi
stjórnvalda til að hefja smíði nýs togara
að vestrænni fyrirmynd . Loks má nefna
að starfsmenn Navis hönnuðu nýlega
flutningapramma fyrir ástralskt náma-
fyrirtæki, þannig að verkefni fyrir-
tækisins koma úr mjög ólíkum áttum .
Skipahönnun
Auk þeirra verkefna sem Navis hefur
sinnt fyrir erlenda aðila hefur fyrirtækið
haldið áfram vinnu að eigin
skipahönnun og mun kynna sitthvað af
því á sjávarútvegssýningunni . „Við
munum meðal annars kynna nýjan 50
metra ísfisktogara, karakerfi í lestar ís-
fiskskipa og endurbætta hönnun á
línuskipi . Þá erum við með drög að
tveggja skrúfu togara sem er lausn sem
getur verið hagkvæm fyrir skip af til-
tekinni tegund og stærð .“
Hjörtur segir íslenska línuveiðiflotann
kominn til ára sinna og að talsverður
áhugi sé hjá útgerðum að ráðast í
endurnýjun og fá skip sem eyða minna
og sem ná inn meira af aflanum en þau
gera í dag . „Í dag tapast alltaf eitthvað af
fiskinum af línunni við skipshlið þegar
verið er að draga hana um borð . Við
höfum verið að líta til nýrrar lausnar sem
stuðlar að því að ná þessum fiski í
auknum mæli um borð og stefnum að
því að kynna hana á sjávarútvegs-
sýningunni . Við höfum einnig verið að
skoða búnað sem auðveldar
meðhöndlun á fiskikörum í lestum ísfisk-
skipa og höfum komið okkur niður á
frumdrög sem þarf að vinna nánar úr .“
Loks má nefna að Navis hefur
hannað skipsskrokk með nánast lóð-
réttu stefni í stað perustefnis sem er
algengast á fiskiskipum í dag . Hjörtur
segir að með slíku stefni náist lengri
vatnslína á skipið og jafnframt minna
innfallshorn vatnslínu óháð hleðslu .
Nokkurskonar „pera“ er hluti af stefninu
neðan sjólínu en hún stendur ekki fram
fyrir stefnið . Þessi atriði gera skipið að
öðru jöfnu léttara í framdrift . Þau eru þó
engin nýlunda í skipatæknilegu tilliti en
hafa ekki verið notuð við gerð fiskiskipa
í seinni tíð . „Það verður gaman að fá
tækifæri til að kynna hönnun okkar á
sjávarútvegssýningunni og fá viðbrögð
gesta við henni,“ segir Hjörtur Emilsson
framkvæmdastjóri Navis, að lokum .
Hjörtur við líkan af einu þeirra skipa sem Navis hefur tekið þátt í að hanna að undanförnu .
Navis kynnir for-
vitnilegar nýjungar
í skipahönnun