Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1971, Page 82

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1971, Page 82
Tímarit Máls og menningar upp, hún var borin upp á hákambinn á milli ár og sjávar" (bls. 281). Þá er í bókinni ögt og krökkt af málvillum, ekki sizt í gervi fallskekkju. Á bls. 170 er sagt, að „þessi félagsskapur" sé að hnigna. Við segjum, að einhverjum hnigni, en ekki að einhver hnigni. — „... og þetta man ég nú sér- staklega eftir“, segir á bls. 202. Við mun- um ekki eftir þetta, heldur þessu. „Það gat alveg varnað því, að skipið hvolfdi", segir á bls. 235. En skipiff hvolfir alls ekki, held- ur hvolfir skipinu. — Ábyrgðarmaður seg- ir í formála og það með nokkru stærilæti: „Ekki er heldur til þess vitað, að slík frá- sögn hafi verið gefin út í bók án þess að hnikað væri til svo miklu sem einu orði, eða endingu orðs, til ritmáls". Það er vissu- lega ekki von á góðu, þegar svona kreddu- sjónarmið eru látin ráða vinnubrögðum. En fleira kemur til, sem kippa má í samt lag með einu pennastriki. Oft er um klaufa- legt orðalag að ræða. Þegar Þorsteinn á ReynivöIIum fer á strandstað að sækja kol, þá er sleði tengdur fyrir hestinn, en við- kunnanlegra hefði mér þótt, ef hesturinn hefði verið spenntur fyrir sleðann (bls. 119). Það er talað um hest, sem „við öll snögg viðvik þá varð hann anzi hvumsa við“ (bls. 176). Hér hefur Steinþóri orðið sá fótaskortur á tungunni að segja hvumsa í staðinn fyrir hvumpinn. „Það var nú ekkert sérstaklega gaman af að heyra hann syngja“, segir á bls. 162. Þetta er leiðindavilla, sem ryður sér mjög til rúms nú í seinni tíð, og er leitt til að vita, ef skaftfellskur öldung- ur er látinn gefa henni byr í seglin. Við höfum gaman af einhverju, en svo er gam- an að einhverju. Þá er talað um að koma saman skeifu (bls. 221). Það er ekki vel að orði komizt, því að efni skeifunnar er ekki í tvennu lagi, en skeifuefnið er slegið til. „Að taka átakið“ (bls. 233) er nokkuð klaufalegt, þar sem merkingin er sú að taka í árinni. Þá verður Steinþóri það á að skjóta aukaneitun inn í setningu, svo að fram kemur merking þveröfug við það, sem af sambandi verður séð að við á: „Og það brást varla, að faðir minn kæmi ehki með eitthvað heim“ (bls. 249). „En til þess að allt gæti nú farið formlega fram og ekki væri hægt að rengja það, að ekki væri rétt talið, þá segi ég við húsbónd- ann ..(bls. 299). Mig tæki það mjög sárt, ef litið væri á þessa gagnrýni mína sem löngun til að niðurlægja frænda minn og jafnaldra og samstarfsmann í mikilvægum málum okk- ar héraðs, sem við báðir tveir erum tengd- ir svo einstaklega elskulegum böndum. Ég vil endurtaka það, að ég tel Steinþór mjög góðan sagnamann. En sú er höfuðveila sagnamennsku Steinþórs, að út af getur borið um orðfæri hans, svo ágætt sem það getur verið öðrum þræði, en meginkostir hennar eru þess eðlis, að þeir njóta sín ekki sem lesmál. En það er enginn vel- gerningur við þennan bændaöldung að fara að auglýsa hann sem eitthvert heimsins við- undur, þar sem framsetning hans er gerð að helgidómi, svo að ekki má einu sinni leiðrétta fallvillu eða mismæli. Synd Stef- áns færist í þann flokk synda, sem heita ásetningssyndir, og þess háttar syndir kvað vera erfitt að fyrirgefa. Gunnar Benediktsson. Hallgrímiir Pétursson „Passíusálmarnir eru svo persónulegur skáldskapur, að einhvers konar samband við örlög höfundarins hefur lengi verið óhjákvæmilegt umhugsunarefni." Ritgerð sú, sem Sigurður Nordal hefur nú sent frá sér um Hallgrím Pétursson og Passíusálm- ana,1 er afar persónulegt og einlægt upp- 1 Sigurður Nordal: Hallgrímur Pétursson og Passíusálmarnir. Helgafell 1970. 140 bls. 72
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.