Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.12.2014, Blaðsíða 43
Vero Moda
14.900 kr.
Glæsileg kögurslá
sem gerir hversdags-
fatnað að spariflík.
Georgio Armani
9.799 kr.
Dásamlegur, djarfur og hátíð-
legur ilmur frá Armani. Sì In-
tense er ávanabindandi ilmur
sem einkennist meðal annars af
sólberjailmi og fresíum.
Selected
32.900 kr.
Klassískt leð-
urpils. Full-
komið við
þunnar skyrt-
ur eða þykka
prjónapeysu.
Kultur
28.995 kr.
Léttur bolur með
flottum smáatriðum
frá 2nd Day.
14.12. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 43
N
ýverið hóf íslenska
barnafatamerkið Ígló&Indí
samstarf við Líf, styrkt-
arfélag kvennadeildar
Landspítalans, sem einbeitir sér
meðal annars að því að bæta að-
búnað og þjónustu við konur og
fjölskyldur þeirra á meðgöngu, í
fæðingu og sængurlegu.
Í síðustu viku greindi hönn-
unarhúsið frá því að í janúar 2015
myndi Ígló&Indí hefja sölu á lífrænum
barnafatnaði í fyrsta skipti. Pandabjörninn
prýðir fatalínuna en hann var valinn vegna
þess að panda er í útrýmingarhættu. Fötin
eru „unisex“ eða ætluð báðum kynjum og
verða fáanleg í stærðum þriggja mánaða upp
í átta ára. Línan, sem er framleidd í Portúgal,
er úr mjúkri bómull sem er ekki lituð heldur er
hún í grunnlitum. Í fatalínunni er samfella, í
stærðum nýfætt til tveggja ára, en Ígló&Indí mun gefa
Lífi 900 kr. af söluandvirði hverrar samfellu sem seld
verður á Íslandi í gegnum eigin verslanir Ígló&Indí í
Kringlunni og á Skólavörðustíg og vefverslun sína,
ÍGLÓ&INDÍ Í SAMSTARF VIÐ LÍF
www.igloandindi.com, frá og með
janúar 2015.
„Ígló&Indí hefur undanfarna
mánuði og ár verið að leita að
aðila til þess að styrkja því við
teljum það skyldu okkar að
leggja okkar af mörkum til
samfélagsins. Stjórn Lífs
hafði samband við okkur fyrir
nokkrum mánuðum um mögu-
legt samstarf. Á sama tíma erum
við að klára að þróa þessa nýju líf-
rænu vörulínu og þá small heild-
armyndin enda hentar lífræn bómull
ungbörnum ákaflega vel,“ segir Guð-
rún Tinna Ólafsdóttir, framkvæmda-
stjóri Ígló&Indí.
Guðrún Tinna segir samstarfið þeim
afar kært enda starfa tuttugu konur hjá
Ígló&Indí sem þekkja starfsemi og þjón-
ustu Lífs mjög vel af eigin reynslu.
„Þetta er samfélagslegt verkefni sem við teljum að
fyrirtækið passi vel inni og erum með vöru sem passar
ofsalega vel inn í þetta verkefni.“
Þekkja starfsemi Lífs
af eigin reynslu
ÍSLENSKA BARNAFATAMERKIÐ ÍGLÓ&INDÍ KYNNTI Í VIKUNNI SAMSTARF VIÐ
LÍF, STYRKTARFÉLAG KVENNADEILDAR LANDSPÍTALANS. GUÐRÚN TINNA
ÓLAFSDÓTTIR, FRAMKVÆMDASTJÓRI ÍGLÓ&INDÍ, TELUR ÞAÐ SKYLDU FYR-
IRTÆKISINS AÐ LEGGJA SITT AF MÖRKUM TIL SAMFÉLAGSINS.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Velunnarar LÍFS í 5 ára afmæli styrktarfélagsins síðastliðinn sunnu-
dag. Stefán Hilmarsson verndari LÍFs, Bjarney Harðardóttir formað-
ur LÍFs, Vilborg Arna pólfari, Guðmundur Hafþórsson sundkappi,
Guðrún Tinna Ólafsdóttir og Helga Ólafsdóttir hjá Igló&Indí.
Hátúni 6a • 105 Reykjavík • Sími 552 4420 • www.fonix.is
Heimilistækjadagar20%
afslá
ttur