Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.12.2014, Page 49

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.12.2014, Page 49
afrek og bíður spennt eftir nýju plötunni,“ segir Jón. Gefandi að vera fyrirmynd Jón spilar fótbolta af krafti með FH og er það liðið sem hann ólst upp við að spila fót- bolta með. Hann segir að það sé ákveðinn draumur að rætast. Hann kann vel við sig í hlutverki dómara í Ísland Got Talent og að- spurður segist hann njóta þess að vera góð fyrirmynd fyrir íslenska krakka. „Mér þykir mjög vænt um að geta talað við þau á ein- hvern hátt, hvort sem það er fjármálafyrir- lestur hjá Arion banka eða forvarnarfyrir- lestrar sem ég hef verið að flytja í Hafnar- firði í nokkur ár. Mér finnst það sérstaklega gefandi.“ Jón er nefnilega góð fyrirmynd en hann hefur hvorki snert áfengi né önnur vímuefni og aldrei reykt. Aðspurður hvort það hafi verið meðvituð ákvörðun segir hann að þetta hafi bara þróast í þá átt. „Ég og Friðrik bróðir vorum alltaf mjög mikið á móti sígar- ettum, ég veit ekki hvers vegna. En Friðrik tók alltaf vindlana hjá pabba og fór með þá í holræsið úti á götu,“ segir Jón og við skellum upp úr. Það var ekkert verið að henda vindl- unum í klósettið, bara beint í ræsið! „Þetta var svona spari hjá pabba, að fá sér vænan vindil. Svo samdi ég reykingalagið góða sem var spilað í Íslandi í dag þegar ég var 12 ára. Ég var alltaf svo mikið á móti þessu. Ég veit ekki af hverju við bitum þetta í okkur.“ Hvað áfengið varðar segir Jón að bræðurnir hafi ekki lagt í það að grípa rauðvínsflösku föður toppinn í fyrirtækinu, stjórann sjálfan. En síðan varð ekkert úr neinu. Það vantaði í raun einhvern millilið. Það þarf að vera ein- hver innan fyrirtækisins sem sér um ákveðna tónlistarmenn og sér um að koma sínu fólki á framfæri. En í okkar tilviki var það ekki þannig og ég hugsa að það hafi sett ákveðið strik í reikninginn. Lögfræðingurinn okkar, Tómas Þorvaldsson, var í einhverju sambandi við fólk innan Epic Records og sendi fyrir- spurnir um framhaldið en allt kom fyrir ekki,“ segir Jón sem hefur nú formlega rift samningnum við Epic Records. Ferlið tók þónokkurn tíma en gekk greið- lega fyrir sig. Raunin er hins vegar sú að stundum getur verið ansi snúið fyrir hljóm- sveitir að slíta sig frá útgáfufyrirtæki sínu. „Það getur vel verið en við fundum ekki fyrir því. Það kannski hjálpar til að við vorum ekki búnir að gefa neitt út með þeim yfirhöfuð. Ég fann hins vegar fyrir því hvað það leið langur tími frá því að fyrirspurnin um riftun var borin upp og þangað til ferlinu var formlega lokið.“ Þrátt fyrir að ævintýrið hafi ekki farið á þá leið sem búist var við segist Jón sáttur í eigin skinni og með ýmislegt í pípunum. „Þetta er ekki að brjóta mig niður eða neitt slíkt. Þetta var ótrúlega gaman og mikið ævintýri að fara þarna út. Viðbrögð L.A. Reid og fólksins þarna voru mikil viðurkenning fyrir okkur, að þeir vildu gera samning við okkur strax. Þetta er ekki eitthvað sem við sjáum eftir, langt í frá. Það er gott að finna að fólkið okk- ar stendur við bakið á okkur, segir þetta flott síns og hella henni niður. „Vinir mínir drekka flestir og á meðan fólk fer varlega með þetta þá er það bara gaman. Þegar ég fæ fólk í mat heima þá reyni ég að bjóða upp á gott vín með. Ég hins vegar byrjaði aldrei því ég þurfti þess ekki, ég skemmti mér alltaf vel. Í seinni tíð þótti mér þetta bara helvíti flott og ég held að fólk hafi bara verið með mér í liði í þessu og fann ég ekki fyrir neinni pressa að smakka. Það er kannski leiðinlegast þegar fólk ætlar að vera almennilegt og bjóða mér drykk á barnum,“ segir Jón og hlær. Unnið að plötu dag og nótt Ný plata Jóns Jónssonar kom í verslanir í byrjun desember. Jón segir að þegar samn- ingsslit voru endanleg hafi komið upp sú hug- mynd að keyra í gang plötu fyrir jólin. „Við vorum búnir að taka upp fullt af lögum og senda út. Svo þegar við sáum fyrir endann á þessum samningi ákváðum við að taka upp plötu.“ Fyrirvarinn var stuttur og stúdíóið upptekið. „Kristján Sturla var að semja og taka upp tónlist í stúdíóinu fyrir þrjár bíó- myndir, Borgríki II, Sveppamyndina og Graf- ir og bein. Við gátum því ekki byrjað að taka upp plötuna fyrr en 20. október,“ segir Jón. „Ég var hins vegar búinn að semja flest lag- anna og aðeins tvö lög urðu til á miðju ferl- inu. Við vorum einnig búnir að pæla saman í lögunum og útsetningum sem var gott því við höfðum í raun og veru bara tvær vikur til þess að taka upp.“ Hljómsveitarmeðlimir Jóns Jónssonar eru flestir í dagvinnu og því þurfti skipulagning að vera góð. Síðustu þrjá daga fram að skil- um var unnið dag og nótt. „Ég skil í rauninni ekki enn hvernig við fórum að þessu, en þetta var virkilega skemmtilegur tími.“ Ákveðið var að hafa texta laganna á íslensku og því þurfti að þýða nokkra þeirra sem prýtt höfðu lögin sem send voru út. Einar Lövdahl, tónlistarmaður og vinur Jóns, lagði þar hönd á plóg. Allt eyðilagt á einni nóttu Eitt kvöldið í miðjum upptökum þegar fé- lagarnir tóku sér kvöldmatarhlé stingur trommuleikarinn, Andri Bjartur, upp á því að taka afrit af upptökunum. „Hann stingur upp á þessu upp úr þurru og við gerum það. Þarna vorum við búnir að taka upp öll hljóð- færi, allan grunn að plötunni og áttum bara eftir að taka upp sönginn minn og eitthvað smá dúllerí hér og þar. Þegar við komum úr mat syng ég inn þrjú lög og við ljúkum upp- tökum. Það er nokkuð ljóst að einhverjar lukkudísir hafi séð um okkur þarna, því um nóttina eyðilagðist allur harði diskurinn ásamt öllu því sem við höfðum unnið að. Kristján Sturla reyndi allt til að finna það sem við vorum búnir að taka upp og einnig tónlistina fyrir bíómyndirnar þrjár en allt kom fyrir ekki. Hann var sem betur fer bú- inn að skila af sér tveimur dögum áður.“ Ef ekki hefði verið fyrir hugmynd Andra Bjarts hefði sagan orðið önnur og ef til vill engin plata komið út, allavega ekki fyrir jólin. „Það voru aðeins þrjú lög sem ég var búinn að syngja og smá gítarleikur frá Steina sem glataðist. En eftir þetta munum við taka afrit eftir hverja einustu nótu, það er á hreinu.“ Platan heitir Heim og hafa Íslendingar ef til vill flestir heyrt fyrsta lag plötunnar, Gefðu allt sem þú átt, óma á öldum ljósvak- ans undanfarið. Jón fær hugmyndir að text- um laganna úr daglegu lífi og öllu því sem hann trúir á. „Sum lögin fjalla um óend- urgoldna ást, þó að ég sé ekki á þeim stað þá er það hluti af lífinu. Eins fjallar eitt lagið um að sjá ekki eftir hlutunum og annað um að við verðum að trúa á okkur sjálf og skoða hvar styrkleikar okkar liggja. Einnig að trúa á drauma sína og halda áfram veginn,“ segir Jón sem heldur tónleika þann 19. desember í Austurbæ, gamla Austurbæjarbíói. Upplýs- ingar um tónleikana má finna á midi.is. „Ég er afar þakklátur öllum sem komu að plötunni, þó sérstaklega Einari fyrir texta- smíðina og strákunum fyrir samspilið. Við er- um afar stoltir af því hvað við gerðum mikið sjálfir en Binni bassaleikari sá um upp- tökustjórn og saman létum við þetta ganga upp. Það er nefnilega svo að þó ég semji tón- listina sjálfur þá vaknar hún ekki almenni- lega til lífsins nema þegar þessir fagmenn eru búnir að leggja sitt af mörkum.“ Það þarf að hafa fyrir hlutunum Systkini Jóns eru þrjú og gengu þau öll í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar. Tvíburasystir hans, Hanna Borg, elsta systirin, María og yngstur er Friðrik Dór en hann hefur einnig verið að gera það gott í tónlist eftir að lag hans Hlið við hlið sló í gegn fyrir fimm árum. „Við vorum öll í einhvers konar tónlistarnámi og það mótaði okkur mikið, þó að systur mín- ar tvær séu kannski ekki á þeirri braut í dag,“ segir Jón. „Í mínu tilfelli hafði það rosalega góð áhrif á mig að fara í tónlist- arnám. Lífið er náttúrlega eins og söngleikur og tónlistarnám er einnig afskaplega gott upp á aga að gera. Ef maður ætlar sér að verða góður í einhverju þá þarf að hafa fyrir því og æfa sig. Ég lærði það fljótt að kennarinn átt- aði sig alltaf á því þegar ég var ekki búinn að æfa mig heima og ef ég ætlaði að fá eitthvað út úr því að fara í tíma þá þurfti ég að gjöra svo vel að undirbúa mig. Það er eins og með flest í þessu lífi. Það þarf að hafa fyrir hlut- unum.“ Jón segist hafa staðið með tónlistarkenn- urum í kjarabaráttu þeirra um daginn. „Já, að sjálfsögðu. Ég hitti einmitt gamla gítar- kennarann minn, Þröst Þorbjörnsson, og við fórum aðeins yfir málin. Ég þyrfti að kíkja til hans og hressa aðeins upp á kunnáttu mína. Maður getur ekki alltaf verið að spila sömu hljómana,“ segir Jón að lokum. Jón er stoltur af fjöl- skyldu sinni og lífið leikur við hann. Morgunblaðið/Ómar 14.12. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 49

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.