Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.12.2014, Side 22
2. Spenntu og slakaðu svo áKomdu þér fyrir eins og sagði í ráði númer eitt og ein-
beittu þér að einum líkamsparti í einu með því að spenna
hann þangað til þú ferð að finna fyrir titringi, eða að minnsta
kosti í 10 sekúndur, slepptu þá spennunni og slakaðu þá á.
Byrjaðu á fótum, gott er að lyfta þeim upp frá gólfi örlítið.
Stundum er talað um að gott sé að ávarpa líkamspartinn
þegar hann á að slaka á og segja: „Hendur, slaka!“ Farðu svo
í gegnum rass, læri, kvið, bak og háls, handleggi og axlir. End-
aðu á kjálkum og andlitsvöðvum. Þegar öllu þessu er lokið
skaltu liggja og ímynda þér líkamann afar þungan og finna hit-
ann. Liggðu áfram í nokkrar mínútur og farðu hægt af stað í
næstu verk.
7. Segðu fallega hlutiHugsaðu um þá sem þú elskar
Samkvæmt rannsókn sem vísindamenn við
Manchester-háskólann í Bretlandi gerðu
hjálpar það fólki við aðstæður sem reyna á
og skaprauna að hugsa um þá sem þeir
elska mest og segja fallega hluti við
sjálfan sig. Má þar þar nefna eitt-
hvað eins og: Þú ert dugleg-
ur, þú ert elskaður, þú
ert hugrakkur.
1. Í víð föt þegarhægt er
Þegar komið er
heim úr vinnu er
það fyrsta sem allir
stressaðir ættu að
gera að fara úr
fatnaði og sokk-
um og öllu sem
þrengir að og
fara í víð, laus
föt. Leggjast á
gólfið eða rúmið
en passa að hafa
góðan kodda und-
ir höfði. Best er
að finna sér stöðu
þar sem fætur eru í
sundur og hend-
urnar aðeins út með
hliðum og hrista létt
útlimi og velta höfði
létt til þar til þið upp-
lifið að líkaminn sé
mjúkur. Í þessari stöðu
má gera hvaða slök-
unaræfingu sem er.
4. Einföld aðstoð í tölvunniNýgræðingar í slökun geta nýtt fimm
mínútur af tímanum sem þeir eyða á Face-
book í að fara á Youtube og fletta þar upp
sérstökum slökunaræfingum fyrir augu og
andlitsvöðva en auk axla og hálsvöðva
spennast andlitsvöðvar og vöðvar í kring-
um augun ótrúlega undir álagi. Hægt er að
skrifa í leitargluggann setningar á borð við
„relaxing eye exercises“ og „face muscles
relaxing“. Við mælum sérstaklega með
myndbandi sem finnst með því að slá inn
„facial yoga massage“.
6.Öndun og lavenderBest er að gera þessa æfingu
þegar búið er að taka slökunina í
atriði númer eitt. Andaðu að þér
og teldu upp að fjórum á meðan,
haltu stutta stund andanum niðri,
ekki það lengi að það sé óþægi-
legt og blástu mjög hægt frá þér.
Gott er að miða við að telja upp
að átta á útöndun. Breskir vís-
indamenn, og raunar margfalt
fleiri, hafa fært sönnur á að laven-
derjurtin, lyktin af henni, hefur
slakandi áhrif á fólk svo það er
sniðugt að fá sér ilmpúða bæði í
bílinn og á heimilið, og jafnvel
vinnuskrifborðið.
5.B-vítamín og í bólið á sama tíma Svefn er mikilvæg forvörn gegn stressi.
Ekki bara skiptir máli að sofa nóg heldur
getur hjálpað að fara alltaf að sofa á sama
tíma og vakna alltaf á sama tíma. Þá er um
að gera að geispa mikið því það slakar á
vöðvunum. Annað sem hefur góð áhrif
á andlegu heilsuna er að taka inn B-
vítamín og sveppir innihalda til
að mynda glás á B-
vítamínum.
3. Syngdu í bílnum og sturtunniÞeir sem hafa ekki tíma til að fara á
kóræfingar, sem er víst allra stressmeina
bót, geta grætt mikið á því að syngja í
sturtunni eða í umferðinni. Söngur gerir
það nefnilega að verkum að við öndum
djúpt og reglulega, með langri útöndun til
að ná því að klára sönglínurnar. Þeirri önd-
un svipar til jógaöndunar og hún hjálpar til
við að slaka. Vísindamenn við Gautaborg-
ar-háskólann í Svíþjóð hafa rannsakað
tengsl söngs við heilsu og hann hefur að
auki margvísleg fleiri góð áhrif.
ÞAÐ KOSTAR EKKERT AÐ SLAKA Á EF RÉTTAR AÐFERÐIR ERU NOTAÐAR. ÞAÐ BESTA ER AÐ
ÞAÐ TEKUR YFIRLEITT ÖRFÁAR MÍNÚTUR AÐ STILLA HUGANN OG MÝKJA VÖÐVANA AÐEINS.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
Leiðir til að slaka
á í desember
EINFÖLD RÁÐ FYRIR ALLA
S
tress og annir getur auðveldlega læst sig í líkamann, myndað
vöðvabólgu og stífleika í hálsi, gert okkur pirruð og valdið auka-
álagi á stoðkerfið. Hægt er að beita ofureinföldum aðferðum
til að slaka á án þess að fara á jóganámskeið sem fólk hefur
kannski ekki tíma til að sækja í desember, á þeim tíma sem margir
þyrftu þess þó helst með.
Þeir sem komast ekki frá geta nýtt sér aukamínútur sem gefast
á kvöldin, morgnana, í hádeginu og hvenær sem er til að anda rétt
og slaka á vöðvum með ýmsum aðferðum, farið á réttum tíma að sofa,
tekið rétt bætiefni og jafnvel fengið ókeypis aðstoð á Youtube.
Getty Images/iStockphoto
Heilsa og
hreyfing
Sveppir næringarríkir
*Því er stundum fleygt að sveppir séu ekki sér-lega næringarríkir en það er þjóðsaga. Raun-ar eru þeir próteinríkari en flest grænmeti ogmjög ríkir að B-vítamíni eins og fram kemur ígreininni hér fyrir neðan. Þá eru þeir einnigríkir að járni, kalki og A- og C-vítamíni. Þeireru snauðir að hitaeiningum, einungis eru 30
hitaeiningar í 100 g. Sveppir passa í nær allan
mat og eru sérstaklega góðir steiktir.